Eining - 01.07.1969, Blaðsíða 3

Eining - 01.07.1969, Blaðsíða 3
EINING 3 Alfreð Harðarson. KVEÐJUORÐ Við sem höfum annast Sumarmála- síðuna, látum af því starfi með þessu tölublaði Einingar. Viljum við færa Pétri Sigurðssyni, ritstjóra beztu þakk- ir fyrir samstarfið. Margs góðs er að minnast frá 12 ára samstarfi. Væntum við þess að þeir ungu menn, sem munu taka við þessu verkefni, verði aðnjót- andi sama velvilja og vinsemdar, sem við höfum notið frá hendi Péturs Sig- urðssonar. Jafnframt færum við þess- um mönnum, öðrum samherjum og les- endum blaðsíðunnar beztu kveðjur. Einar Hannesson Guðmundur Þórarinsson. ritari Aðalheiður Jónsdóttir, Reykjavík, gjaldkeri Guðlaugur Þórðarson, Kópa- vogi, fræðslustjóri Valdór Bóasson, Keflavík, en meðstjórnendur: Haraldur Framhald á 4. bls. Ellefta ársþing ÍUT var haldið í fé- lagsheimilinu Lyngbrekku í Mýrasýslu 4. og 5. júlí s.l. Um 30 fulltrúar auk stjórnar samtakanna og starfsnefnda sóttu þingið. Forseti þingsins var Sveinn Skúlason, Reykjavík, en ritarar Ragn- hildur Sigurðardóttir, Keflavík og Guð- mundur Einarsson, Reykjavík. Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar ávarpaðiþing- ið og flutti kveðjur frá stórstúkunni. Sömuleiðis fluttu ræður við setningu þingsins séra Leó Júlíusson á Borg, Gissur Pálsson, heiðursfélagi IUT og Jón F. Hjartar, Borgarnesi. Þingið starfaði þannig, að fulltrúum var skipt niður í þrjá starfshópa, er störfuðu vissan tíma. Skilað var síðan niðurstöðum hópanna, þegar þing var kallað saman á ný. Fjallað var ýtarlega um útbreiðslu- og fjármál ÍUT, sam- skipti samtakanna við innlenda og er- lenda aðila og um stöðu ungtemplara- félaganna í landinu í dag. Þingið sam- þykkti nokkrar tillögur, en þar er m.a. ítrekaðar fyrri samþykktir samtakanna um bindindis- og áfengismál. Vikið er sérstaklega að þeim mikla háska, sem núverandi ástand áfengismálanna hér- lendis er og leitt hefur af sér hryggi- lega atburði, eins og dæmin sanna um Hvítasunnuna og 17. júní s.l. Hvatti þingið almenning til þess að styrkja og styðja af fremsta megni hin jákvæðu þjóðfélagsöfl, svo sem þá aðila, sem Arsþing Islenzkra ungtemplara 1969 Alfreð Harðarson kjörinn formaður stefna í starfi sínu að því, að gera ungt fólk bindindissamt. Einar Hannesson, sem verið hefur formaður ÍUT síðustu þrjú árin, baðst eindregið undan endurkosningu. Voru honum þökkuð störfin í þágu samtak- anna og afhent falleg gjöf frá ÍUT. For- maður IUT var kosinn Alfreð Harðar- son, Reykjavík, en aðrir í stjórn: Vara- formaður Sveinn Skúlason, Reykjavík, Frá stofnun ungtemplarafélaysins DJÚPVEJA á Isafirði. Reynir Ingason, for- maður 2. frá h. í fremstu röð. Kirkjustaðurinn Staðarhraun á Mýrum. Fagraskógarfjall í baksýn. (Ljósm.: P.J.). SUMARMÁL Ritstjórn blaZsióunnar: Guðmundur hórarinsson og Einar Hanncsson.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.