Eining - 01.07.1969, Blaðsíða 6

Eining - 01.07.1969, Blaðsíða 6
6 EINING Ávarp Framhald af 5. bls. Ráðstefnur okkar og norræn samvinna á sviði áfengis- og bindindismála, hefur stefnt og stefnir enn að sameiginlegri þekkingu, fræðslu og áhrifamætti. Þótt flest sé líkt um þjóðir okkar, verður þó alltaf einhver mismunur á starfi og starfsháttum. Á þingum eins og þessu tileinkum við okkur hugmyndir og sjónarmið, sem við höfum heim með okk- ur og getum hagnýtt í daglegu félags- starfi okkar. Yfirstandandi ár hafa lagt okkur í hendur mikil verkefni: I umfangsmiklum heimshlutum hefur umferðarmagnið aukizt gífurlega. Þetta útheimtir samræmda löggjöf og skilning á þeirri kröfu, sem umferðarvandinn gerir til allra hlutaðeigenda, og það er- um við raunverulega flestir. Hér höfum við stigið inn á nýtt starfs- svið, og um það mun rætt á þessu þingi. Nýjasta vandamálið er svo eiturefna- neyzlan. Fyrir aðeins nokkrum árum héldum við þetta vera eitthvað, sem ein- göngu ætti sér stað í fjarlægum löndum vanþróaðra þjóða. Einnig þessi mein- semd er á dagskrá ársins. En fyrst og fremst skal þetta þing, eins og hin und- anförnu, vera vettvangur vinafunda, vina, sem vinna að lausn sömu vanda- mála, vina sem standa nærri hver öðr- um á svo mörgum sviðum. Efling slíkr- ar vináttu er ef til vill hið mikilvægasta hlutskipti alli’a funda okkar og þinga. í von um slíka góða samveru og vin- áttu erum við öll hingað komin. Þið, eins og við, standið dag hvern andspænis nýjum og erfiðum heimi, og það viljum við gera með vilja til að skilja, vilja og framkvæma, vilja til að ná fram til hins bezta — hins góða. í von um, að við sameiginlega getum stutt hver annan, gefið og þegið nýjar hvatningar, heils- um við frændum okkar hér vestur í Sagnalandinu. Heilir til fundar, kæru vinir, ykkur heilsa frændþjóðirnar í Norðrinu. Verði þetta okkur öllum gifturíkt og gott þing. ** -jc ** Mesta börfin Heimurinn ólgar allt í kringum mig. Eilifi Guð, um frið þinn bið ég þig, hugró, sem þrek og heilsu bezta veitir, hiki og efa í sigurvissu breytir. P. S. KENNARI I bókinni Öldufall áranna, kemst Hannes J. Magnússon skólastjóri að orði á þessa leið, er hann var að taka við kennarastarfi á Akureyri: ,,Alls staðar skein yndisþokki og sak- leysi úr svip barnanna. Það var heill- andi sjón að horfa yfir þennan stóra hóp morgunfrískra barna, með spurn í augum og eftirvæntingu í svipnum. Þarna voru sannarlega mörg mannsefni. Hvílík náð að mega vinna að því að leysa úr læðingi þá geysilegu orku, sem þarna var saman komin, þá manngöfgi, þann kærleika og það mannvit, sem blundaði í öllum þessum ungu brjóstum. Þarna var mikið efni í fagurt mannlíf. Um þetta var ég að hugsa, þegar ég nam staðar með bekkinn minn framan við 9. stofu á miðgangi þennan morgun.... Ég var stoltur yfir, að mér skyldi vera trúað fyrir þessum mannvænlega hópi, en um leið áhyggjufullur út af því, hvernig mér myndi takast að vinna með þessum börnum, sem biðu þarna með spyrjandi augum. Mér var ljós sú ábyrgð, sem á mér hvíldi gagnvart þeim og foreldrum þeirra. Myndhöggvarinn mótar úr leir og getur skapað listaverk, ef náð himinsins er með honum. Hér hafði ég lifandi efni til að móta, miklu dýrmætara en leir, marmari eða blá- grýti. Kennslan er listgrein — kannski list listanna. Hvernig myndi mér takast með þessi börn og alla þá skara, sem ég átti eftir að fræða og móta.“ - (76. bls.). Um söng í skólanum segir Hannes: „Ekkert sameinar betur eða færir börn- in saman í eina heild en söngurinn. Sönglaus bekkur er fátækur bekkur. Sönglaus skóli dapurlegur skóli.“ - (78. bls.). Fræðsla barna og unglinga, sem stund- uð er af mönnum, hugsandi eins og Hannes J. Magnússon lýsir í þessum orðum, hlýtur að verða gifturík og efla þjóðarheill. Á bls. 94 eru svo eftirfarandi línur: „Það voru geysilega mikil viðbrigði fyrir mig að koma í þetta lifandi og glaðvakandi samfélag. Það var ómetan- legt fyrir ungan kennara að koma inn í þetta andrúmsloft, sem var þrungið af áhuga, viðleitni til að leysa störf sín vel af hendi og að verða börnunum að sem mestu liði. Það er vart hægt að meta það sem skyldi.“ OG BÖRN Ekki reykjarsvæla. „Aldrei var reykt á þessum fundum (kennarafundunum) né annars staðar í skólanum," segir Hannes. „Sígarettu- plágan var þá ekki gengin í garð, en hún átti því miður eftir að halda inn- reið sína í skólann, eins og aðrar stofn- anir þjóðfélagsins. Kirkjan er líklega sú eina stofnun, sem hefur sloppið að mestu við sígarettureykinn. Ég held, að Snorri skólastj óri hafi reykt pípu, áður en hann kom til Akureyrar, en þegar þangað kom, fleygði hann henni. Svona mikil ábyrgðartilfinning ríkti í skólanum.“ Eitt sinn á fulltrúaþingi kennara, voru launakjör kennara eitt mesta áhugamálið. Þá þótti „Snorra Sigfús- syni nóg um og lét orð falla í þá átt, að nær væri að ræða einhver þau mál, sem miðuðu að menntun og þroska kennar- anna en vera með þetta þráláta nudd um launabætur.“ — 94. bls. Vafalaust hefur Snorri vitað, að verð- ur er verkamaðurinn launa sinna, en hann hefur sjálfsagt líka þekkt vizku- orðið: „Sjáir þú mann vel færan í verki sínu, getur hann boðið konunginum þjónustu sína.“ Fyrst var að vera vel starfshæfur og vinna verkið af vakandi samvizkusemi, og svo komu réttlátu launin. (Framhald í næsta blaði). * * * Eitrun — afleiðing hennar? Undir þessari fyrirsögn er grein í sænsk- finnska blaðinu Hembygden, febr. 1968. Þar er m.a. minnst á hina merku bók „Medi- cnska synpunkter pá alkoholism,“ eftir sérfræðinginn Carl Carlsson deildarlæknir Lillhagens sjúkrahússins í Gautaborg. — Hann segir að í Svíþjóð geti hjálparstofn- anir sinnt 3000 drykkjumönnum, en þyrftu að geta sinnt 40.000. „Ég get ekki þagað lengur,“ segir hann, „ég sé þá deyja hvern af öðrum og við getum ekkert aðhafst. Mesta vandamál okkar er þetta: Hvað eig- um við að gera við ofdrykkjumenn með mestu heilaskemmdirnar. Við getum hvergi vistað þá. Hver ber ábyrgðina á ófarsæld þeirra, þeir sem drekka eða þeir, sem selja áfengið ?“ Ennfremur er í þessari grein haft eftir dr. Carlsson, að áfengisdrykkja eigi sök á dauða minnst 5000 manns árlega í Svíþjóð. — Dýrt er nú þjóðargamanið. „Ekki sæmir konungmn að drekka vín, né höfðingjum áfengur drykkur.“ Orðskv. 31, 4.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.