Eining - 01.07.1969, Page 10
10
EINING
Ég átti því láni að fagna að eiga hann að vini, — og
kenna ylinn frá kærleikshjarta hans. —
Ásmundur Guðmundsson var sterkur, hlýr persónuleiki.
Gáfur hans, lífsorka og sannleiksást gerðu hann að mikil-
menni, ljúflyndið og hjartalagið að göfugmenni. — Hann
minnir á máltækið:
Fögur sál er gimsteinn lífsins.
Ásmundur Guðmundsson var hvort tveggja, góður bróðir
og traustur leiðtogi. — Hann var brennandi í andanum, ná-
kvæmur og víðfeðma. — I hjarta hans var skráð, það sem
stendur ritað yfir altari háskólakapellunnar:
„Sannleikurinn mun gera yður frjálsa." (Jóh. 8,32).
Hann gekk til móts við verkefnin stórhuga og þolinmóður.
Kristindómurinn var honum lífsaflið mikla, er mótaði hugar-
far hans og verk. — Hann var óþreytandi, unni sér ekki
hvíldar, og hvatti menn til dáða á akri trúarinnar með upp-
örvandi orðum, hlýju handtaki og þýðlegu geislabliki augn-
anna.“ —
Þess var áður getið, að Ásmundur Guðmundsson hefði verið
afkastamikill rithöfundur. Góð heimild telur fram eftirfar-
andi rit og bækur: Frá heimi fagnaðarerindisins, 1919 (nýtt
safn 1959). Heimilisguðrækni, 1927 (meðhöfundur). Fram-
tíð þjóðkirkjunnar, 1930. Inngangsfræði Gamla testam., 1933.
Samstofna guðspjöllin, 1938. Jórsalaför, 1940 (meðhöfund-
ur). Amos. Skýringar, 1942. Markúsarguðspjall. Skýringar,
1942 og 1950. Þor og þróttur, 1944. Fjallræða Jesú og dæmi-
sögur, 1948. Saga ísraelsþjóðarinnar, 1948. Ævi Jesú, 1952.
Fjölda margt er þar fleira talið, ritgerðir, þýðingar bóka og
fleira, og um langt skeið var hann ritstjóri Kirkjuritsins
(lengst af með öðrum).
Þá var þátttaka Ásmundar Guðmundssonar í félagsmál-
um ekkert smáræði, 1 mörgum nefndum kirkjumála og skóla-
mála og fleiri, um langt skeið í stjórn Prestafélags Islands
og formaður þess. Þá var hann heiðursdoktor í guðfræði við
Háskóla íslands, heiðursfélagi í þjóðræknisfélagi Islendinga
vestan hafs og kirkjufélagi þeirra. Enn er svo margt ótalið.
Þessi ágæti embættis- og starfsmaður kirkjunnar var bæði
mjög mikilvirkur og góðvirkur. Starfsgleðina og starfsþrekið
sótti hann í tvær orkulindir: guðstrúna og heimilishamingj-
una. Allir, sem kynnzt hafa frú Steinunni Sigríði Magnús-
dóttur, munu sammála um, að þar hafi Ásmundur Guðmunds-
son átt mikilhæfan og útvalinn lífsförunaut. Góð kona er gj öf
frá Guði og kóróna mannsins, segir Heilög ritning. Frú
Steinunn er mikil sæmdarkona. Fleiri orð þori ég ekki að
hafa um hana, henni kynni að mislíka það. Hún flíkar ekki
mannkostum sínum. Guð blessi henni og hennar nánustu all-
ar góðu endurminningarnar um ástkæran og mikilhæfan
eiginmann. Gott var jafnan að vera gestur á þeirra fyrir-
myndar heimili. — Hjartansþakkir fyrir mikilsverða vináttu.
Pétur Sigurðsson.
Frá Áfengis-
vamaráði.
Ttiltölulega frjáls sala á áfengi í Sví-
þjóð undanfarandi hálfan annan áratug
hefur valdið því, að svo stefnir nú að
10. hver Svíi muni verða áfengissjúkl-
ingur, segir sænska blaðið ,,Dagen“ í
grein eftir Elis Strömberg.
Þegar skömmtunarkerfið (Bratts-
kerfið) var afnumið í Svíþjóð árið 1955,
lögðu margir trúnað á þá kenningu, að
áfengisneyzla þjóðarinnar myndi auk-
ast fyrst í stað, en síðan minnka, en
reynslan varð önnur.
Ýmiskonar yfirsjónir og afbrot af
völdum ofdrykkju hafa fjölgað geysi-
lega, einkum meðal kvenna, unglinga og
barna.
Samkvæmt skýrslum fangelsanna kem-
ur í Ijós, að 75—80% fanga afplána
refsidóma vegna lögbrota, sem framin
eru í ölvunarástandi eða af völdum
áfengis.
Það er einnig upplýst að 5000 manns
deyr árlega í landinu þar sem áfengið er
dauðavaldurinn beinlínis eða óbeinlínis.
Áfengis-neytendur greiða árlega um
2,5 milljarða sænskra króna (42,5 millj-
arða ísl. kr.) fyrir áfenga drykki.
G.T. blaðið 5/3 1969.
ÁFENGISVARNARÁÐ.
„Sjálfsköpuð þján"
Folket, Noregi: í apríl sl. voru stúdentar
boðnir til heilbrigðisráðstefnu í Noregi. Þar
sagði Arnfinn Teigen yfirlæknir, að 20 af
hundraði þeirra sem brautskráðir hefðu
verið frá eiturefnasjúklingahæli ríkisins,
hefðu síðar látist af ofneyzlu eiturefna eða
drýgt sjálfsmorð.
Góður árangur hafði náðst með svipaða
tölu þeirra, sem hælisvistar nutu á sama
stað. Óheillaþróunin í þessu vandamáli er
sú, að eiturefnaneyzlan nær stöðugt tökum
á yngri og yngri unglingum.
Þetta var fréttin úr norska blaðinu.
Mikill ógæfuvegur er það, að ánetjast
þeim skaðnautnum, sem eyðileggja svo líf
manna, að örþrifaráðið verður sjálfsmorð.
Stokkblinda og djöfulmagnaða ágirndin
sér þó alltaf tvennt, hagnaðinn af eitur-
efnasölunni og veiku bletti mannverunnar,
og þar kemur hún sinni tálbeitu að. Afleið-
ingin verður svo hin sjálfskapaða þján.
Hinn frægi heimspekingur Seneca á að hafa
sagt: „Ófarnaður áfengisneyzlunnar er
blátt áfram sjálfvalið brjálæði.
Hvenær rennur upp sá mikli dagur, sem
skáldið Einar Benediktsson sá í framtíð-
inni, þá „sjálfsköpuð þján bæði þjóðar og
manns, skal þurrkast úr lífsins-bókum?“
„Hve gleðileg verður sú guðsríkisöld."
Indversk stjórnarvöld hafa um langt
skeið verið andsnúin áfengisneyzlu og sölu.
Þeirra mikli Gandhi var ákveðinn bannmað-
ur. Nehru, fyrrv. forsætisráðherra Ind-
lands, sagði eitt sinn: „Ég hef ekki trú á
stjórnarvöldum, sem þurfa að hafa áfengis-
viðskipti sér til framdráttar." — Dóttir
Nehrus, Indira Gandhi, sem nú er forsætis-
ráðherra landsins, hefur sagt: „Vér munum
framvegis fylgja þeim meginreglum, sem
faðir minn setti.“
Alert.
* * *
Rétti gróðrarreiturinn.
Á flugi hér engill fara sást,
með frækorn af sannleika, ljósi og ást.
Hann kallaði — : hvar skal ég sæðinu sá,
er sé því borgið og dafna það má?
Þá hrópaði drottinn himnunum frá:
í hjörtu barnanna skaltu því sá.
LMCF Bulletin. Lausleg þýð., P.S.