Okkar á milli - 01.12.1987, Síða 13
Gerði myndina sérstaklega fyrir Veröld
,,Jú, ég geröi þessa mynd sérstaklega fyrir
Veröld,“ sagöi Rut Rebekka Sigurjóns-
dóttir, myndlistarkona, í stuttu spjalli viö
Okkar á milli, en félagsmönnum gefst kost-
ur á að kaupa grafíkmynd eftir hana núna
fyrir jólin. ,,Myndin heitir Leikur að blómi,“
heldur Rut áfram. „Frummyndin er reynd-
ar gömul, en ég hef gert hana aö nýju af
þessu tilefni og farið frjálslega með.“
Byrjaöi sautján ára
,,Ég byrjaði sautján ára að fást við mynd-
list,“ segir Rut, ,,en það var ekki fyrr en ég
var orðin þrítug heimavinnandi húsmóðir
og þriggja barna móðir, sem ég tók þá
ákvörðun að reyna af fremsta megni og
eins og tíminn leyfði að læra myndlist.
Fyrst sótti ég námskeið í Myndlistarskóla
Reykjavíkur, en síðan hóf ég nám í Mynd-
listar- og handíðarskólanum og útskrifaðist
þaðan úr málaradeild.'1
Þrjár einkasýningar
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir hefur haldið
þrjár einkasýningar og auk þess tekið þátt i
mörgum samsýningum. Fyrst sýndi hún
verk sín í Bókasafni Mosfellssveitar 1984,
og síðan hélt hún sýningu í Viborg í Dan-
mörku, en þar dvaldi hún um skeið í vinnu-
stofu á vegum Nordisk Kunstcenter. Loks
hélt hún einkasýningu á Kjarvalsstöðum
1985. Hún er félagi bæði í FÍM, Félagi ís-
lenskra myndlistarmanna, og Grafíkfélag-
inu.
Ný sýning næsta haust
Verk eftir Rut Rebekku hafa selst vel að
undanförnu, bæði málverk og grafíkmynd-
ir. Sem dæmi má nefna, að Hólmfríður
Karlsdóttir valdi tvær myndir eftir hana í
draumaíbúðina sína á heimilissýningunni
Veröld fyrir skemmstu.
Rut Rebekka hefur vinnustofu í kjallar-
anum á heimili sínu að Stafnaseli 3 í Breið-
holti og þar stundar hún list sína, þegar
tími gefst til. ,,Ég er að undirbúa stóra mál-
verkasýningu,“ segir hún að lokum. „Hún
verður haldin á Kjarvalsstöðum næsta
haust.“
13