Okkar á milli - 01.12.1987, Blaðsíða 20

Okkar á milli - 01.12.1987, Blaðsíða 20
Nr.: 1664 Fullt verð: 1.594 kr. Okkar verð: 1.275 kr. Lifandi fróðleikur „Heimurinn er fullur af furðum og ráðgát- um. Frá örófi alda hafa menn spurt ótal spurninga um umhverfi sitt og uppruna. Mörgum spurningum hefur veriö svarað, mörg vandamál verið leyst, en sífellt vakna nýjar spurningar og ævinlega eru næg verkefni til að rannsaka.11 Þannig hefst Ný fjölfræðibók, sem ætluð er börnum og unglingum, 220 síðna bók i stóru broti. Útgefandi er Setberg en þýð- andi Örnólfur Thorlacíus rektor. Lesendum er boðið í rannsóknarleiðang- ur í litríkum myndaopnum þessarar bókar. Með hjálp ímyndunaraflsins er leitað á vit fortíðar og framtíðar; þotið á svipstundu umhverfis jörðina líkt og í eldflaug til að kynnast því hvernig og hvar mennirnir lifa, hvernig þeir vinna og við hvað þeir skemmta sér. Þetta er lifandi fróðleikur, sem allir hafa gaman af. Fréttablað Veraldar Okkarámilli Útgefandi: Bókaklúbburinn Veröld., Ábm.: Kristín Björnsdóttir Ritstj.: Gylfi Gröndal Ljósmyndir: Magnús Hjörleifsson Jóhannes Long Prentverk: Steinmark

x

Okkar á milli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.