Okkar á milli - 01.12.1987, Síða 16
Jólaplötur Veraldar
Nýjar íslenskar plötur
Jólaplötur Veraldar eru sex, allar meö ís-
lenskum listamönnum og allar spánýjar.
Viö höfum aldrei boðið jafn fjölbreytt úrval af
hljómplötum, kasettum og geisladiskum og
nú.
Bubbi-Dögun
Þegar Bubbi sendir frá sér nýja plötu, er
þaö jafnan sá atburöur í heimi popptónlistar
hér á landi sem mesta athygli vekur. Nýja
platan heitir Dögun og lögin á henni eru
sem fyrr hjá Bubba hnitmiðuð, fjölbreytt og
búa yfir aölaðandi hrynjandi. Söngur hans
er blæbrigðaríkur, öruggur og túlkar vel
innihald textanna. Árangurinn er fersk og
góð plata, sem örugglega verður útnefnd
ein af bestu plötum ársins 1987, á sama
hátt og Frelsi til sölu í fyrra.
Megas - Loftmynd
Loftmynd er léttasta, fjörugasta og að-
gengilegasta plata Megasartil þessa. Hann
hefur bersýnilega skemmt sér vel í hljóð-
verinu. Textarnir bregða upp mörgum
skoplegum myndum af mannlífinu í
Reykjavík fyrr og nú, og söngurinn er eins
og hann gerist bestur hjá Megasi. Honum til
aðstoðar er Björk Guðmundsdóttir, söng-
kona Sykurmolanna heimsfrægu, og Inga,
systir hennar. Þetta er hressilegasta
Reykjavíkurplata, sem gefin hefur verið út.
Bergþóra - í seinna lagi
Bergþóra Árnadóttir er meö allrabestu
vísnasöngkonum hér á landi, og ekki mun
hróður hennar minnka við útkomu nýjustu
plötu hennar. / seinna lagi heitir hún og
inniheldur lög úr samnefndum sjónvarps-
þætti, sem sýndur var í Ríkissjónvarpinu
30. september síðastliðinn. Öll lögin á plöt-
unni eru eftir Bergþóru og sannar hún hér,
að hún er í hópi bestu lagasmiða landsins.
ustu tónlistarmönnum landsins til mikillar
tónlistarveislu. Gestalistinn lítur þannig út:
Kór Öldutúnsskóla, Halla Margrét, Eiríkur
Hauksson, Eyjólfur Kristjánsson, Egill
Ólafsson, Ellý Vilhjálms, Helga Möller, Jó-
hann Helgason, Fóstbræður, Pálmi Gunn-
arsson, Bjarni Arason, Erna Gunnarsdóttir,
Svala Björgvinsdóttir og Sönghópur Söng-
skólans. Sannkallað einvalalið, ekki satt?
Gaui-Gaui
Platan Gaui með samnefndum listamanni
er nýlega komin út og hafa fáar plötur komið
jafn mikið á óvart á þessu ári. Þetta erfyrsta
plata Gaua, en samt virðist stíll hans þegar
mótaður. Lagið ,,Á bak viö fjöllin háu“ hefur
hljómað oft á öldum Ijósvakans að undan-
förnu og einnig er lagið ,,Gatan auða“ lík-
legt til vinsælda.
Hægt er að fá kassettur með öllum plötun-
um og einnig geisladisk. Á geisladiskinum
með Megasi eru fimm aukalög, sem hvergi
eru til annars staðar. Upplagið á geisladisk-
unum er mjög takmarkað.
Kvöld viö lækinn
Á plötunni Kvöld við lækinn flytja söngvar-
arnir Jóhann Helgason, Halla Margrét og
Kristinn Sigmundsson lög eftir Jóhann
Helgason við texta eftir ýmis af bestu
skáldum okkar fyrr og síöar: Jónas Hall-
grímsson, Einar Benediktsson, Halldór
Laxness og Kristján frá Djúpalæk. Þetta er
vönduð plata, sem líkleg ertil vinsælda fyrir
jólin.
Jólagestir
Hér er á ferðinni íslensk jólaplata, þar sem
Björgvin Halldórsson býður öllum þekkt-
16