Okkar á milli - 01.05.1988, Blaðsíða 2
r^iBÓK
MAN AÐARINS
Vönduð og falleg bók
um lífríki náttúrunnar
Bók mánaöarins aö þessu sinni er alþjóð-
leg bók, sem nú er kynnt á íslandi í fyrsta
sinn og býðst fyrst félagsmönnum Veraldar
áöur en hún fer á almennan markaö. Lífríki
náttúrunnar heitir hún og er eftir Mark Car-
wardine, en formála ritar Sir David Atten-
borough. Bókin er gefin út í samvinnu viö
Alþjóöa náttúruverndarsamtökin (World
Wildlife Fund), en íslenska gerðin er gefin
út af Skjaldborg.
í máli og myndum
Hér er um vandaða og glæsilega bók aö
ræöa, sem lætur lesendum í té mikinn fróö-
leik í stuttum en hnitmiðuðum texta og fall-
egum og stórum litmyndum. Sagt er frá
hinu fjölbreytta úrvali þeirra þúsunda dýra-
tegunda sem lifa víös vegar í veröldinni, frá
tilbreytni þeirra í útliti og atferli og furöulegri
aölögunarhæfni. Hún greinir líka frá tengsl-
um lífsins viö vistsvæöin allt frá frjósömum
regnskógum hitabeltisins til haröbýlla freð-
mýra og heimskautasvæða.
Útrýmingarhætta
Mörg dýranna sem sagt er frá í þessari bók
eru í útrýmingarhættu. Þegar þannigstend-
ur á eru orsakir þess raktar og hvaö gert er
og hvaö hægt væri aö gera til að vernda
tegundina. Auk þess sem Lífriki náttúrunn-
ar gefur til kynna hvaöa tegundir er hætta á
aö deyi út, hjálpar hún dýrunum sjálfum, því
aö hagnaðurinn af bókinni rennur beint til
Alþjóöa náttúruverndarsamtakanna. Sú
stofnun hefur eins og kunnugt er lagt meira
af mörkum en nokkur önnur samtök til
aö vernda þær dýrategundir heimsins sem
hætta er á aö veröi útrýmt.
Kunnur höfundur
Höfundur bókarinnar, Mark Canwardine,
nam dýrafræöi viö Lundúnaháskóla og
starfaöi fimm ár sem vísindalegur ráögjafi
Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna. í
því starfi hefur hann átt hlutdeild í fjölmörg-
um verndunaraðgerðum víös vegar um
heim. Einnig hefur hann starfað aö gerö
umhverfisáætlana á vegum Sameinuðu
þjóðanna sem vísindalegur ráögjafi og rit-
höfundur. Loks hefur hann flutt reglulega
þætti um náttúrufræðileg efni í útvarpi og
skrifað fjölda greina í blöð og tímarit bæöi í
Bretlandi og víöar og er höfundur bókar
sem væntanleg er um náttúrulíf og friðunar-
mál á íslandi - hinnar fyrstu sinnar tegund-
ar.