Okkar á milli - 01.05.1988, Blaðsíða 4
Kæru félagsmenn,
Það er okkur mikið ánægjuefni
að geta boðið bókina Lífriki nátt-
úrunnar sem bók mánaðarins,
áður en hún fer á almennan
markað. Lífrlki náttúrunnar er al-
veg einstaklega vönduð bók, full
af fróðleik og fallegum Ijósmynd-
um. Að venju bjóðum við bókina
á afsláttarveröi, og er hún 495 kr.
ódýrari en hún verður á almenn-
um markaði.
Mörg góð tilboð eru í blaöinu,
og má þar nefna Uppgjör konu
eftir Höllu Linker, sem var vin-
sælasta jólabókin, en nú geta fé-
lagsmenn eignast hana á aðeins
1.680 kr. Vér íslandsbörn eftir
Jón Helgason, ein af perlum ís-
lenskra bókmennta, býðst nú
með tveimur afborgunum og
25% afslætti.
Síðast en ekki síst vil ég nefna
bókapakkann á baksíðunni, sem
enginn ætti að missa af, og bað-
sloppa, sængurföt og hljómplöt-
ur, sem boðnar eru á sérstöku
afsláttarverði og að auki með 10
- 20% afslætti til þeirra sem taka
bók mánaðarins. Sem sagt: Það
er nóg af hagstæðum tilboðum í
maíblaðinu.
Með bestu kveðju,
Kristín Björnsdóttir
framkvæmdastjóri
OKKAR Á MILLI — Fréttablað
Veraldar. Útgefandi: Bókaklúbb-
urinn Veröld. Ábm.: Kristín
Björnsdóttir. Ritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Ljósmyndari: Magnús Hjör-
leifsson. Prentverk: Steinmarksf.
Nr.: 2213
Fullt verð: 1.480 kr.
Okkar verð: 1.185 kr.
Málverkabækur
Fjölva í boði:
Líf og list
Matisses
Fjölvi hefur gefiö út flokk málverkabóka um
meistara myndlistarsögunnar. Time-Life-
bókaútgáfan fræga gefur bækurnar út, en
Þorsteinn Thorarensen hefur þýtt þær. Alls
eru komnar út sjö bækur í þessum flokki og
verða þær boönar félagsmönnum Veraldar
annan hvern mánuð ein bók í senn. Að
þessu sinni bjóðum við bókina Lif og list
Matisses, en síðan kemur hver meistarinn
á fætur öðrum: Leonardó, Rembrandt,
Goya, Manet, Van Gogh og Duchamp. -
Þetta eru stórglæsilegar og sígildar mál-
verkabækur, sem hafa hlotið viðurkenn-
ingu víða um heim.
Vcrðlaun fyrir að versla mest
Þeir tíu félagsmenn Veraldar sem versluðu
fyrir hæstu upphæðirnar á árinu 1987 hafa
verið verðlaunaðir, og eru þeir þessir: 12
mánaðarbækur: Elínborg Guðmundsdóttir,
Ballará við Búðardal, 11 mánaðarbækur:
Hallgrímur Halldórsson, Reykjavík, 10
mánaðarbækur: Ólafur Olgeirsson, Vatns-
leysu, Fnjóskadal, 9 mánaðarbækur: Arn-
björg Pálsdóttir, Vopnafiröi, og 8 mánaðar-
bækur hljóta: Hallgrímur Skaptason, Akur-
eyri, Ingibjörg Jónasdóttir, Grásteini,
Hvanneyri, Jósefína Magnúsdóttir, Sunnu-
hvoli við Akureyri, Lilja Birkisdóttir, Bolung-
arvík, Smári Guðmundsson, Reykjavík og
Þóra Sigurjónsdóttir, Lækjarbrekku, Gaul-
verjabæjarhreppi.
Fimm fá grafíkmynd í verðlaun
MAÍ-GETRAUNIN
í maí-getraun Veraldar fá fimm félagsmenn
verðlaun og er það grafíkmyndin Leikur að
blómi eftir myndlistarkonuna Rut Rebekku
Sigurjónsdóttur. Nýlega var dregið um
verðlaunin í febrúar-getrauninni, en það
voru fjögur skáldverk eftir Halldór Laxness,
og þau hreppti Jóhanna Eiríksdóttir á Vogs-
ósum II við Þorlákshöfn. Eins og venjulega
geta aðeins þeir sem skuldlausir eru við
klúbbinn 10. maí tekið þátt í getrauninni. Og
spurningin er aö sjálfsögöu af léttara taginu
eins og alltaf: Eftir hvern er bókin Sagan af
Dimmalimm? Hringdu til okkar rétta lausn
eða skrifaöu hana á svarseöilinn á bls. 7.
1
4