Okkar á milli - 01.11.1988, Page 3
Ég varð gagntekin á fimmtu
biaðsíðu bókarinnar
menn Veraldar viti ekki of mikið
um bókina, áður en þeir lesa
hana. Ég vil aðeins segja að lok-
um, aö þetta er óvenjulega
spennandi saga, og gátan er ekki
að fullu ráðin fyrr en á síðustu
blaðsíðum hennar.“
- segir Guðrún Þórðardóttir, deildarstjóri
á Stöð 2, um Örlagasögu
,,Mér hafði verið sagt, aö á tíundu
blaðsíðunni yrði ég svo spennt,
að ég gæti ekki lagt bókina frá
mér,“ sagði Guðrún Þórðardóttir,
deildarstjóri barnaefnis á Stöð 2,
í örstuttu spjalli við Okkar á milli
um mánaðarbók Veraldar í nóv-
ember, Örlagasögu eftir Johann-
es Mario Simmel. ,,En á fimmtu
síðu sá ég, að þetta var alls ekki
rétt, því að þá var ég þegar orðin
gagntekin af sögunni."
Barnastjarna
fær hlutverk
Bókin fjallar um mann á miðjum
aldri, sem var barnastjarna í kvik-
myndum í Hollywood, en hefur
ekki fengið hlutverk í áraraðir.
Skyndilega er honum boðið að
koma til Þýskalands og leika í
kvikmynd, sem fjallar um örlög
hans sjálfs: barnastjörnu, sem
ekki hefur leikið í háa herrans tíð,
en verður heimsfræg á ný með
því að leika sjálfa sig.
Á síðustu
blaðsíðunum
Síðan gerist hver óvænti atburð-
urinn á fætur öðrum, sem ekki er
vert að segja frá, svo að félags-
Óvenjuleg
uppbygging
„Uppbygging sögunnar er frem-
ur óvenjuleg. Höfundur lætur les-
anda fylgjast með aðalpersón-
unni á ýmsum skeiðum ævinnar.
Þannig eru í rauninni margar
sögur í bókinni, en þær eru allar
sagðar á þann hátt, að lesandinn
verður að fá aö vita hvernig hver
saga endar og ekki síður hvernig
þærtengjastsaman.
OKKAR Á MILLI
3