Okkar á milli - 01.11.1988, Qupperneq 4
BÓK MÁNAÐARINS
Óttinn lamaði hann eins og eitur
Hér fer á eftir örstuttur kafli úr Örlagasögu:
Hjartaáfall.
Ég var að deyja úr hjartaslagi. Ofthafði ég legið andvaka nætur-
langt af ótta við slík endalok. Þetta varhann, endirinn. Hjartaslag.
Þetta, sem fyllti hug minn nú og náði valdi yfir líkamanum, það var
dauði minn. Nú kom hræðilegur risahnefinn ofar, hærra og hærra,
til hjartans.
Ég heyrði úr fjarska stunur sjálfs mín, árangurslausar tilraunir til
þess að ná andanum. Ég þrýsti höndunum að líkamanum og vildi
stöðva hnefann inni ímér á leið sinni til dauðans.
En hann kom ofar.
Ég fann hann nálgast hjartað. Óljóst sá ég herbergið, eins og í
gegnum illa stillta myndavél. Myndirnar í kringum mig horfðu á
mig.
Hnefinn hélt áfram, hægt, miskunnarlaust, og skildi eftir sig á leið
sinni dauð líffæri; hann þrengdi æ meir að því, sem eftir var af lífi,
æðum, andardrætti, blóði; blóði, sem nú tók að hamast í fingrum
og gagnaugum.
Andþrengslin jukust og gerðu líkamann stifan eins og spenntan
boga. Hælarnir grófust niður i gólfteppö, herðablöðin i stólbakið.
„Ég... dey..."
Ég heyrði veika rödd mína. Á sama andartaki náði ógnarhnefinn
hjartanu, hnefinn, sem ekki var til, en deyddi mig samt. Óttinn fyllti
heilann og lamaði hann eins og eitur.
Óttinn!
Aldrei hafði ég fundið fyrir stíkum ótta sem þessum, aldrei vitað
að hann væri til.
Ég hélt mig hræddan, þegar heilt kvikmyndaver brann til kaldra
kola og ég lá grafinn undirsvalarústum. Ég taldiþá tilfinningu ótta,
sem greip mig, þegar ég horfði á dauóastríð móður minnar. Á
ýmsum augnablikum stríðsins þóttist ég viss um, að enginn þekkti
aðra eins skelfingu og ég.
Ótti?
Ég hafði aldrei áður vitað, hvað ótti var. Nú vissi ég það. Nú fyllti
hann mig, hinn rétti, sanni ótti. Hann lamaði útlimi mína, sjón og
heyrn, óx og óx, fyllti mig, eins og loft fyllir blöðru.
Hnefinn opnaðist. Fingurnir umluktu hjatta mitt og þrýstu að. Ég
æpti af skelfingu, hátt og skerandi, en enginn gat heyrt það;
stormurinn geisaði og yfirgnæfði öll óp
Nú. Nú. Nú.
Nú kom dauðinn.
Dauðinn kom ekki. Ekki enn.
Risahnefinn sleppti hjartanu ríaði, en nam staðar í kviðarhol-
inu, lúmskur, öruggurum sig.
Allurlíkaminn skalf. Ég fann njartað slá, ógnarhratt...
Fimm matreiðslubækur fyrir sælkera
Veröld býður nú í einum pakka
fimm matreiðslubækur úr Sæl-
kerasafni Vöku, en ritstjóri þess
bókaflokks er Skúli Hansen
matreiðslumeistari á veitinga-
húsinu Arnarhóli, sem annast
um þessar mundir þáttinn A la
carte á Stöð 2. Þetta eru fall-
egar og aðgengilegar mat-
reiðslubækur; litmyndirnar eru
svo glæsilegar, að lesandinn
fær óðara vatn í munninn.
Heiti bókanna er: Smáréttir við
allra hæfi, Ódýrt og gott,
Svepparéttir, Salatréttir og
Fljótgerðir ún/alsréttir. Þeir sem
eiga þessar bækur hafa úr að
velja hundruð af girnilegum
réttum og geta notið sælkera-
stunda við að matreiða og
borða Ijúffenga rétti, sem eru
við allra hæfi.
Nr.: 2277
Venjulegt klúbbveró: 2.475 kr.
Tilboðsverð: 1.980 kr.
4
OKKAR Á MILLI