Okkar á milli - 01.01.1989, Page 6
Minnisatriði um líf skálda
Jón Óskar skáld er í hópi braut-
ryðjenda nútímaljóðsins hér á
landi; einn af atómskáldunum
frægu. Veröld býður nú þrjár
bækur eftir hann, sem Fjölvi
hefur gefið út: Tvö síðustu bind-
in af hinum skemmtilegu end-
urminningum hans um líf
skálda og listamanna í Reykja-
vík á sjötta áratugnum, Borg
drauma minna og Týnda snill-
inga, og auk þess ritgerðar-
safnið Vitni fyrir manninn.
Gagnrýnendur luku miklu lofs-
orði á minningabækur Jóns
Óskars, þegar þær komu út,
enda eru þær gagnmerk heim-
ild um sinn tíma og góð lýsing á
vandamálum og viðfangsefn-
um nýrrar kynslóðar í skáld-
skap. Andrés Kristjánsson
sagði um fyrsta bindi minning-
anna, að hófsöm kímni og for-
dómaleysi einkenndi frásögn
Jóns Óskars og kvaðst ekki
lengi hafa lesið bók sér til meiri
ánægju. Og Kristján frá Djúpa-
Iæk sagði: ,,Ég gat ómögulega
hætt við bókina fyrr en hún var
öll.“ _______________________
Nr.: 2324
Okkarverð: 980 kr.
Fyrsta bók Ólafs
Jóhanns Ólafssonar
Þegar smásagnasafnið Níu
lyklar eftir Ólaf Jóhann Ólafs-
son kom út fyrir jólin 1986, voru
flestir sammála um, að sjaldah
hefði nýr höfundur hafið ritferil
sinn á jafn glæsilegan hátt. Fyr-
ir síðustu jól kom síðan fyrsta
skáldsaga þessa unga rithöf-
undar, Markaðstorg guðanna,
og vakti mikla athygli.
Ólafur Jóhann Ólafsson er 26
ára gamall Reykvíkingur, sonur
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar
skálds. Hann hefur lagt megin-
áherslu á raunvísindi, en jafn-
framt hefur hugur hans hneigst
að fagurfræði og bókmenntum.
Það er enginn byrjendabragur á
sögunum í Níu lyklum; þvert á
móti bera þær vott um öguð
vinnubrögð, látlausa en list-
rænaframsetningu.
Nr.: 2325
Okkarverð: 1.186 kr.
6
OKKAR Á MILLI