Neisti - 24.06.1936, Qupperneq 1
Útgefandi: Jafnaðarrr.annafélag Siglufjarðar.
IV. árg.
Siglufirði, miðvikudaginn 24. júní 1936
22. tbl.
Skrípaleikur eða
atvinnukúéun ?
Síðastliðinn sunnud. kom eg
auga á eftirfarandi auglýsingu, sem
er all athyglisverð:
„Upplýsingarskrifstofa vinnu-
veiíenda í Siglufirði er opin kl.
7—10 f. h. og 4—7 e. h. hvern
virkan dag í húsinu á Hafnar-
bryggjunni, gengið inn aðsunnan.
Allir atvinnulausir verkamenn,
sem meðmæltir eru einkarekstri
eru beðnir að koma þangað til
viðtals næstu daga."
f*að eitt út af fyrir sig er skrítið,
að þegar vianuveitendur hér opna
skrifstofu, þá virðist hún ekki eiga
að starfa fyrir þeirra félagsskap,
heldur fyrir atvinnulausa verka-
menn, þd ekki undantekningarlaust,
en aðeins fyrir þá einu atvinnu-
lausu, sem aðhyllast einkarekstur.
En, — ætli það séu ekki æði
margir verkamenn. sem eru „með-
mæltir“ einkarekstri svona á yfir-
borðinu þegar þeir þurfa atvinnu
með og þeir vita að það getur kom-
ið að haldi? Pví án efa verður
mörgum á að ætla það, að hér eigi
að íkilja hina góðu sauði frá, ein-
staklingshyggjumennina, og láta þá
eina fá atvinnu.
Með öðrum orðum að hér eigi
opinberleg* að beita þeirri örgustu
atvinnukúgun, sem til er, og sem
svörtustu íhaldssálirnar hafa hingað
til aðeins þorað að framkvæma í
leyni, en sem allur almenningur og
meira að segja þeirra eigin frjáls-
lyndari flokksmenn fyrirlíta og for-
dæma.
Vera má að ekki sé nú á-
stæða til að taka þessa röggsemi!!
íhaldsins alvarlega og að nú séu
þeir búnir aðkoma auga á aðverka-
menn eiga heimtingu á að fá að
vita hvað orðið hefur af stdrgróða
einstaklingsrekstursins frá gdðærun-
um og hvers vegna töp aflaleysis-
áranna eru nú þjdðnýtt. Er það
þetta, sem á að upplýsa? Eða á
maski að sýna fram á hina gull-
vægu mikilsverð uviðleitni formanns
Sjálfstæðisflokksins, hins mikla
vinni’veitanda Olafs Thors, til þess
að auka á vellíðan verkafdlksins i
landinu og efla þjóðarheillina, með
Sundlaugar-
málið.
Eins og kunnugt er hefir sérstakri
nefnd verið falið að rannsaka og
undirbúa byggingn heitrar sund-
laugar hér í Siglufirði.
Nefnd þessi hefir nú starfað á
annað ár, því miður með litlum
sýnilegum árangri, en þó gert ým-
islegt til að afla fjár til undirbún-
ings og rannsóknar á málinu, Hins-
vegar hafa hinir erfiðu tímar orðið
þeis valdandi, að fjáröflunin hefir
orðið torsótt og þar af leiðandi hef-
því að gera ekki út togara sína,
(sem nú raunar þjóðin á margfald-
lega) á síðasta vori?
Pað á líkiega annars að leggja
fram „skalan'* yfir arðrán einstak-
lingsrekstursins á hendur verka-
mönnum og útskýra kaupkúgunar-
herferðirnar?
Eða á að sýna framáhið mikla
mildi og náð einstaklingsreksturs*
ins, hina guðsþakkarverðu góð-
mennsku að veita sauðsvörtum al-
múganum atvin.nu og þar með lífs-
viðurværi?
Á að segja frá ástæðunni fyrir
því, hversvegna að stórkaupmenn-
irnir í Rvík, sem hafa 50—100 þús.
kr. árslaun, töldu á nýafstöðnu
verzlunaJþingi sínu nauðsyn á að
lækka kaup verkafólks? Hafa þeir
kannslce sent lista yfir lækkanir á
nauðþurftarvörum almennings?
Eða á að lesa upp hinar lær-
dómsriku og athyglisverðu ræður
þingmanna Sjálfstæðisflokksins, þar
Framh. á 4. síðu.
ir nefndin ekki getað rannsakað
nægilega þá leið, sem henni væri
hugþekkust og hún teldi h'klegasta
til frambúðarúrlausnar á þessu máli,
er þar átt við heitu uppspretturnar
í Skúludal. Par sem svona er á-
atatt, hefir nefndin talið réttast, að
skýra almenningi frá því helzta, sem
hún hefir hugsað, rætt og fram-
kvaemt í þessum efnum, svo að
engin skyldi ætla, að nefndin væri
alveg dauð og dottin upp fyrir.
Pegar nefndin hóf sin á milli
umræður og athugun um að koma
hér upp heitri sundlaug, virtist
henni þrjár leiðir koma tilgreina:
1. Setja miðstöð í núverandi
sundlaug og hita hana þannig
með kolum.