Alþýðublaðið - 06.11.1919, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 06.11.1919, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ St. Jeanne í’yirc. Eftir Mark Twain í Harpera líagazin. Lausl. þýtt. (Frh.). Henni var nú varpað í myrkra- klefa Rouen kastalans og þar var hún reirð, með járnfestar um hendur, háls og fætur, við máttar- atoð í klefanum. Og alla þá mán- uði sem hún dvaldi þarna, héldu ruddafengnir hermenn vörð yflr henni nótt og dag. Og svo voru verðirnir ósvífnir, að þeir héldu fyrir inni í klefa hennar, en ekki fyrir framan dyrnar eins og venja er til í fangelsum. Þetta var dap urleg og viðbjóðsleg fangavist; en það gat þó ekki unnið bug á henni, því kjarkurinn var óbilandi. Það var fágætt og hrífandi, að sjá þessa göfugu stúlku, einmana og yfirgefna, fjarri öllum vinum og vandamönnum, sem hefðu get- að rétt henni hjálparhönd og hughreyst hana á þessum reynslu- tíma. Hún gat ekki fengið afrit af þeim kærum, sem á hana voru bornar, né heldur fékk hún út- drátt af öllum þeim flóknu og viðfangsmiklu réttarhöldum, sem haldin voru yflr henni á hverjum áegi. í stuttu máli: Henni var synjað um alt það, sem á ein- hvern hátt gat létt henni þær voðalegu sálarkvalir, sem hið undraverða minni olli henni, og um alt sem gat styrkt hana í sjálfsvörninni. En móti öllum þessum órétti barðist hún með dásamlegri þrautseigju og kjarki, enda á hún engan sinn líka, hvorki í árbókum veruleikans, né í hetju- sögum skáldanna. Og hversu fögur og mikilfengleg voru ekki orð þau er hún talaði daglega; hversu and- rík og látlaus! Og líkamsþrekið var hið sama, þrátt fyrir of- sóknir, þreytu og fæðisskort. Saga hennar leikur á allan tónstiga mannlegra tilfinninga og orða — alt frá reiði og ógnunum, eins og það tvent lýsir sér í gletni og smánaryrðum hermannanna, og niður til hinnar djúpt særðu göfgi og sómatilfinningar, er lýsir sér í hinum göfogu orðum, sem hún mælti, þegar þolinmæði hennar var að þrotum komin við allar þær rannsóknir og flækjur, sem ofsækj- endur hennar beittu, til þess að komast íyrir það, með hvaða djöfla- mætti og göldrum hún hefði get- að vakið stríðsandann hjá hinum öttaslegnu hermönnum sínum. (Frh.). Ný bók. HallcLór frá Laxntsi: Barn náttúr- nnnar. Ástarsaga. Bókaverzl. Arin- bj. Sveínbjamarsonar. Rvík 1919. Þeir sem þekkja Halldór frá Laxnesi, munu opna bók þessa með nokkurri forvitni, því höf. er kornungur, Og fiestir munu van- trúaðir á, að slíkt barn hafi nokk- uð nýtt á borð að bera fyrir heim- inn. En þeim sem þannig hugsa, vi) eg ráða til að lesa bókina, þvi að hún er vafalaust inngangur að mörgum, og vonandi miklu betri sögum frá Halldóri. Og það er jafnan fróðlegt, að fylgjast með þroska rithöfundanna frá byrjun. Sagan er mestmegnis lýsing á ungri stúlku, sem hvorki þekti hvað móðurumhyggja né föðuragi var. Hún hét Hulda. Faðir hennar, sem var efnaður bóndi, lét hana alast upp í algerðu sjálfræði og agaleysi. Hún þurfti ekkert fyrir lífinu að hafa, og þess vegna lék hún sér öllum stundum í náttúr- unni. Og því fór svo, að hún varð stjúpu sinni, náttúrunni, samgróin að lunderni og lifnaðarháttum. Hún varð einræn og dutlungafull. Stundum var hún blíð og innileg, og elskaði alt og alla, en hitt veifið var hún ólm og trylt og þoldi engin bönd. Hún hafði eng- an hemil á tilfinningum sínum og ást hennar gekk æði næst. Og um afleiðingar hugsaði hún aldrei. Þess vegna skeytti hún því engu, þó að hún sviki unnusta sína, hvern af öðrum, nálega strax eftir að hún hafði trúlofast þeim. Það var ólán aðdáenda hennar. Þetta er nú aðal söguhetjan hans Halldórs, og er hugmyndin góð, og meðferðin má heita stór- lýtalaus. En þá er mikið fengið. Önnur aðalhetja sögunnar er Randver, fasteignasalinn. Fyrst kynnumst vér honum sem kvenn- hatara. Hann hafði reynt kvik- lyndi kvennþjóðarinnar. En engu að síður tekst Huldu að ná ást- um hans, og fyr en varir eru þau harðtrúlofuð. Og Randver er sá eini unnusti hennar, sem hún fær sanna ást á. En þrátt fyrir það svíkur hún hann eftir stutta við- kynningu. Tekst höf. klaufalega með ástæðurnar fyrir heitrofinu, og sérstaklega er hið heimskulega gheit* Randvers barnalegt. Þegar Hulda hefir brugðið Rand- veri upp, reynir hún að fullnægja ástarþrá sinni með því, að trúlof- ast Ara kaupmanni. Og í fyrstu fer vel á með þeim, enda er hann reiðubúinn til að verða við þeirri bón hennar, sem Randver hafði synjað henni um, sem sé, að ferðast með henni um útlönd. En þegar Húlda er ferðbúin og komin á leið til skips, sér hún Randver liggja á götunni útúrfullan og eyðilagðan af sorg og ofdrykkju. Þá gýs hin niðurbælda ást hennar til gamla unnustans upp af nýju. Og hún læðist burt frá Ara og sameinast Randveri aftur. Er þetta eini þátturinn í sögunni, sem vek- ur dálitla samúð með Huldu. Höf. skiftir bókinni í 25 kafla með ýmsum fyrirsögnum, svo sem: Maðkurinn, Huldumærin, Maður- inn í hellinum o. s. frv. Fer all- vel á því, og bókin verður þægi- legri aflestrar fyrir vikið. Fyrsti kaflinn er leiðinlegur ogr klaufalegur. Hann segir frá fyrsta elskhuga Huldu, og hvernig hann ræður sér bana fyrir trygðrof hennar. Og engu betur tekst höf. í 24. kafla, þegar hann segir frá sjálfsmorði Ara og aðdraganda þess. Betur væri, að höf. hefði slept sjálfsmorðskryddinu, því van- smíð þess verða á kostnað Huldu. Enskusletturnar í bókinni eru óþolandi. Þær minna alt of mikið á lauslega þýdda eldhúsrómana, nema hvað málið er miklu af- káralegra. Yiðvaningshöndin er auðfundin á allri bókinni. En þrátt fyrir alla gallana, hlýtur lesandinn að dáðst að dugnaði og dyrfsku unglings- ins, og eg hygg, að vér megum vænta hins bezta frá honum, þeg- ar honum vex aldur og vizka. Dauðinn hefir verið djarítækur til íslenzku skáldanna á síðstunni, og þjóðin bíður með eftirvæntingu eftir mönnum í auðu sætin. En þá fær hún því að eins, að húö hlúi að nýgræðingunum, og láti þá ekki þurfa að leita sér rótfestu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.