Reykvíkingur - 22.12.1928, Page 10

Reykvíkingur - 22.12.1928, Page 10
870] KEYKVÍKINGUR meiri en það, að klukkan tíu var ennþá lifandi undir katl- inum. Lét skipstjóri þá nota eimpípuna, og var pípað í sí- fellu til kl. 11, en þá var bú- ið að eyða öllum eimnum. Ná- lega hálfri stundu síðar fóru vélarmenn alfarnir úr vélar- rúmi. Skipverjar voru 16 alls, og voru nú 10 eftir um borð. Þetta skeði við Skaftárós 20. nóvem- ber 1926. Ekki verður sagt, að þeim tíu, eftir voru um borð, hafi liðið illa. Þó útlitið væri ekki glæsilegt. — Þeir gátu eldað, höfðu góða matarlyst, og leið svo nóttin. Næsti dagur. Þegar birti af degi næsta morgun, sáu skipverjar fólk á landi. Skildu þeir að það var að benda þeim hvar bezt væri að lenda, en brimið var svo mikið, að ekkert viðlit var að reyna lendingu. Ekkert vissu þeir skipverjar enn hvernig farið hafði fyrir félögum þeirra, en afdrif þeirra höfðu orðið þau, að bátnum hvolfdi. Komust fimm þeirra á kjöl og rak á land með bátn- um, en sá sjötti, 'sem var donkey-maðurinn druknaði. En er þeim hafði skolað á land, þá vissu þeir ekki hvert halda skyldi, og héldu því kyrru fyr- ir. Eftir 4 eða 5 tíma bið þarna holdvotir í kalsaveðri, jíom fólk á strandstaðinn, og fylgdi þeim til húsa. Voru þeir þá töluvert þjakaðir. Nú víkur aftur að þeim, sem um borð voru. Leið allur næsti dagur, án þess viðlit væri að reyna að fara í land. Vatn var í vélararúmi upp til miðs, og ekki var hægt að komast fram í hásetaklefa, því ^að braut yfir skipið að framan. Næstu nótt var skipverjum nokkuð kalt, en þó var líðanin furðugóð. Þriðji dagur. Þegar morgnaði mátti sjá að skipið hafði heldur færst upp, en ennþá var haugabrim. Ekkert var hugsað um að elda þennan dag. Þegar ' komið var fram yfii’ hádegi hafði sjóinn lægt nokk- uð, og fóru menn þá að hugsa til að reyna landgöngu. Ekki var nema einn bátur eftir í skipinu, og var það tveggj amanna-f ar. iKvaddi skipstjóri nú Björg- vin til þess að reyna að komast í land á bátnum, en Björgvin tók með sér Ástralíumaim, er

x

Reykvíkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.