Reykvíkingur - 22.12.1928, Side 12

Reykvíkingur - 22.12.1928, Side 12
872 RBYKVÍKINGUR 4 komu þeir að kaupfélagshús- inu. Var þar kaffi tilbúið, en er þeir höfðu þegið það, var þegar haldið af stað aftur, og komið heim að bæjum eftir hálftíma reið. Niðurlag. Voru strandmennirair nú um kyrt í fjóra daga, en á fimta degi var lagt af stað landveg til Reykjavíkur. Var það fimm daga ferð og voru skipverjar kátir og ánægðir yf- ir því hveraig úr þessu hafði ræzt. En í einhverju norsku bygð- arlagi hefur, móðir, kona, unn- usta eða systir fengið kald- ranalega frétt, um að sonur hennar, eiginmaður, unnusti eða bróðir hafi druknað við ís- land. Líkið hafi rekið, og verið grafið í kirkjugarði í afskektri sveit, sem hún á ilt með að lesa nafnið á. Vafalaust eru nú skipverj- amir af Nystrand dreyfðir um h'eimshöfin með norskum skip- um. Og maðurinn frá Ástralíu er sennilega kominn á suður- hvelið, þangað sem heitir vind- ar blása; segir hann þá félög- um sínum þar, einhverntíma söguna af því þegar hann strandaði við kalda Island, eyju, sem sé hinumegin á hnettinum, um för hans í land á litla bátnum, og um Islend- inginn, sem fór um borð aftur að sækja hina félagana þeirra, en hér á Islandi er atvikið gleymt, eins og svo ótal mörg ! önnur karlmensku- og dreng- skaparbrögð sjómanna vorra, í látlausri baráttu þeirra við höfuðskepnumar. Ö. F. Moissi. .— 'a, Hinn heimsfrægi þýzzki leikari Alexander Moissi, sem sagður er að eiga mest ítök allra í þýzzkrn kvenhjörtum, er nýlega farinn til Bandaríkjanna, og er ráðinn til þess að leika þar þangað til í marz. Fer hann þaðan til Buenos Aires í Argentínu, en að því búnu fer hann til Lundúna, því þang- að er hann ráðinn á eftir. Hanin á að leika í Bandarikjunum í „Líkinu lifandi1' (eiingöngu í því), en í Suður-Ameríku í „Öþidus konungur" og „Afturgöngur". Kennarinn: Heldurðu að það þætti mikið til Ólafs Tryggvason- ar koma, ef hann væri á lífi nú- Drengurinin: Já afar mikið. Hann væri þá yfir 900 ára.

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.