Vera - 01.02.1994, Blaðsíða 47

Vera - 01.02.1994, Blaðsíða 47
UR SIÐU ADAMS KARLAFRÆÐ Karlmenn undir beltisstab Kenneth Purvis Stefán Steinsson þýddi Mál og menning 1994 Karlafræðarinn greinir skilmerkilega og á gamansaman hátt frá staðreyndum og ýmsum bábiljum urn hvatalíf og æxlunar- færi karlmanna. Höfundurinn beitir þeirri aðferð til að ná at- hygli kynbræðra sinna að skreyta læknisfræðilega útlistun sína bröndurum. Þetta gerir hann væntanlega vegna þess að umræða karlmanna um kynferðismál hefur til skamms tíma einkennst af slíkum bröndurum sem eru ákjósanlegir til að halda ákveðinni fjarlægð frá kjarna málsins. Þetta veldur svo því að karlmenn eru oft fákunnandi um líffærafræðilegar, sál- rænar og félagslegar ástæður kynhegðunar sinnar. Bókin bætir úr vankunnáttu á líffærafræðilegu hliðinni, en eykur lítið við upplýsingar um þá sálrænu og félagslegu. Hún skýrir kynlífs- vandamál karlmanna nær eingöngu út frá líffræðilegu sjónar- miði og verð ég að játa að ég hefði gjarnan viijað sjá umfjöll- unina fara um víðari völl. Eftir að hafa fræðst um allt sem úr- skeiðis getur farið í hormónafabrikku okkar karlmanna og hvernig aldur og fyrri störf geta leikið vininn eina, þá getur maður ekki annað en undrast yfir því að þetta skuli allt saman virka manni til ánægju og yndisauka. Bókin er skemmtilega skrifuð og prýðilega þýdd og kær- komið innlegg í fátæklegar bókmenntir um sérstakan reynslu- heim karla, þar sem konur geta kynnt sér kynlíf karla og karl- menn eigið lif. n Hafliði Helgason Karlímyndin „...það er komið að sjálfskoðun karlmanna, hið þögla kyn sunnan nafla fær ekki lengur frið í hinni hljóðu naflaskoðun heldur verður hér gerð krafa um að sjá sig í tengslum við nýjan tíma, rými og efni.“ Þannig hljóma orð Hörpu Bjömsdóttur hugmyndasmiðs ný- afstaðinnar myndlistasýningar í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi sem bar nafnið Karlímyndin. Þetta var samsýning tólf lista- karla sem leituðust við að túlka ímynd kynbræðra sinna, karl- ímyndina. í sambandi við sýninguna voru einnig haldnir fyrir- lestrar þar sem rithöfundarnir Steinunn Sigurðardóttir og Guð- rnundur Andri Thorsson lögðu sitt til umræðunnar. Sýningin tengdist aukinni umræðu um breytta stöðu karla í samfélagi með jafnari verkaskiptingu og íjölskylduábyrgð. I raun má segja að þetta sé rökrétt afleiðing af kvenfrelsisbaráttunni sem tekið hefur áherslubreytingum og er vonandi að þróast í átt að frelsisbarátttu beggja kynja. En hvernig stendur á því að karlmenn hafa ekki lagt eins mikla áherslu á að skilgreina sig sem karlmenn í stað „mannsins í mannkynssögunni“? Hefur Guðbergur Bergsson kannski rétt fyrir sér í nýútkominni bók sinni þegar hann segir: „Karlmönnum hætt- ir til að lokast inni í eigin gildismati á svipaðan hátt og hendir þjóðlíiið í einræðisríkjum og þeir verða því hrömun að bráð og bíða bana vegna oftrúar á lífskraft sinn.“ Því verður hvorki svarað hér né reynt að túlka útfærslu listakarlanna i Gerðubergi. Hins vegar var sýningin gott innlegg í þá umræðu sem nú er í gangi á Islandi. Menningarmiðstöðin Gerðuberg lætur hér ekki staðar numið og mun árlegt málþing hennar að þessu sinni íjalla um „ímyndir“ svo sem kvenímyndir, karlímyndir og listamannsímyndir. Mál- þingið verður í Gerðubergi þann 20. mars, hefst kl. 13.00 og eru allir velkomnir. n Ragnhildur Helgadóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.