Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1932, Qupperneq 10

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1932, Qupperneq 10
20 LJOSMÆÐRABLAÐIÐ ir barnsfarasóttar, og eftir aó frænka lians ein, sem liann hafði hjálpað. í harnsnauð, dó af harnsfarasótt, varð hann svo örvinglaður, að liann framdi sjálfsmorð á þann Iiátt að kasta sér fyrir eimreið. Allan fyrri hlula síðustu aldar háðu menn vonlausn haráítu á fæðingastofnuhunum gegn harsfarasóttinni. Þcssi hræðilegi sjúkdómur hafði ætíð verið til, en nú urðu fæðingastofnanirnar gróðrarstíur hans, og ástand- ið versnaði með ári hverju. Utan fæðingadeildanna geys- uðu einnig oft hræðilegir faraldrar af harnsfarasótt, og eitl sinn, þegar ástandið var sérstaklega alvarlegl, komst einn læknir í Kaupmannahöfn þannig að orði, að „það ár dó alt, sem yndislegt var í Danmörku“. Eftir þvi sem leið á öldina, versnaði ástandið á fæðingadeildun- um til muna og stóð það i beinu sainhandi við það, -— þó að mönnum væri auðvitað dulin hin rétla orsök, — að þá fór mjög að vakna áhugi manna fyrir meinafræði (jiathologisk anatomi) og stunduðu stúdentarnir liana af kappi. Við líkskurðinn óhreinkuðu þeir hendur sínar og háru síðan sýklana í konurnar, þar sem menn þá ekki kunnu að sóttlireinsa hendurnar. Menn þóttust vita, af hverju barnsfarasóttin stafaði. Hin ríkjandi skoðun var sú, að hún slæði að einhverju leyti í sambandi við jarðvegsvatnið. 'l'il voru j)ó þeir menn, sem álitu að barnsfarasóttin væri af likum toga spunnin og sárasóttin, seiu heita mátti að allir sjúkling- ar fengju eftir uppskurði á sjúkrahúsunum. Arið 18155 geysaði óvenjulega illkynjuð harnsfarasótt á fæðingastofuninni í Kaupmannahöfn. Það var því gri])ið til þeirra ráða að flytja deildina úr spítalanum og i hús eitt i Stormgötu, en all kom fvrir ekki. liarns- farasóttin gaus þar jafnskjótt upp. A gömlu fæðinga- stofnuninni voru gerðar miklar umbætur og upphitun setl eftir enskri fyrirmynd, en öll þessi og önnur harátta gegn sjúkdómnum var árangurslaus, sökum þess að orsakir lians voru óþektar.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.