Ljósmæðrablaðið - 01.01.1935, Side 12
10
LJÖSMÆÐRABLAÐH)
mlklu læknishæfileika Matthiasar Einarssonar, fullyrti,
að liann gæti bætl henni; dreif hún konu þessa til
Reykjavíkur, fór með henni á sinn kostnað um háhjarg-
ræðistímann, og fékk konan fullan i)ata. Þetta getur nú
heitið að sýna trú með verkum.
Það sýnir hest hverra vinsælda og virðingar Kristin
naut iiér, að ungmennafélag sveitarinnar „Bára“, stofn-
aði minningarsjóð um hana og skyldi lionum varið
til styrktar sjúkum, og er það í fyrsta sinn, sem nokkr-
um hér í sveil er sýnd slík virðing. —
Kristín hafði verið ein af fyrstu og beslu styrktar-
mönnum félagsins.
Kristín var ógift, en vorið 1920 tók hún að sér heim-
íli Árna Sigurðssonar, að Ivrossgerði, og gekk 0 ungum
J'örnum lians síðan í móðurstað, og annaðist einnig ör-
vasa föður lums.
Sæl eru þau móðurlaus hörn, sem eignast slílca fóslur-
móður, því móðurástin cr fegursti geisli guðs dýrðar
hér á jörðu.
Kristín var tiguleg á velli, frið sýnum, yfirhragðið
hreint og djarft og har vott um hreinlyndi og slaðfestu.
Hún var gáfuð og fróð um margt, mjög hókhneigð;
einkum unni luin skáldskap, hæði í hundnu og óbundnu
máli. Málrómur hennar var alveg sérkennilega fagur,
og engann hefi eg heyrt lesa betur en bana.
Blessuð Kristin! Þú átt stóra þökk allra þeirra, sem
kyntust þér, og nutu þíns mikla kærleika, en ])ó slærsta
frá þeim, sem þú lifðir mest fyrir. Blessuð sé minn-
ing þín!
Vinur.