Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Qupperneq 4

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Qupperneq 4
2 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ þegar sjúklingurinn er hættur að nota meðalið, ber að hella því burtu á stað, þar sem engin hætta getur stafað af því. Flöskuna eða glasið má nota aftur, þegar búið er að þvo hana rækilega úr heitu vatni. Fólk gerir sér al- mennt ekki grein fyrir því, að flest lyf eyðileggjast við geymslu og að lítil líkindi eru til þess, að lyf, sem eru gefin við ákveðnum sjúkdómi, komi til notkunar seinna meir. Hættuleg eitur, þ. e. a. s. efni, sem valda alvarlegum veik- indum eða dauða, þótt þeirra sé neytt aðeins í mjög smá- um skömmtum, eiga alls ekki heima í lyfjasafni heimilis- ins. Lyf handa húsdýrum er ekki heldur rétt að geyma þar, heldur ber að geyma þau lyf í sérstökum skáp, greini- lega merktum, svo að misgrip geti ekki átt sér stað. Ráðlegt er að taka til í lyf jaskápnum að minnsta kosti þriðja hvern mánuð og kasta þá burt meðulum, sem eru ekki notuð öðru hvoru. Einnig er gott að biðja lækni fjöl- skyldunnar að athuga lyfin og fá ráð hjá honum um, hvaða lyf beri að hafa við höndina. Inntaka meðala. Lyf, sem notuð eru á réttan hátt, geta orðið sjúkum manni til ómetanlegs gagns. Séu lyfin aftur á móti mis- notuð eða ekki tekin inn á réttan hátt, geta þau valdið alvarlegum skaða. Þegar læknir segir fyrir um meðal handa sjúklingi, þá er það meðal eingöngu ætlað handa sjúklingnum einum, en ekki handa neinum öðrum af fjöl- skyldunni, og þegar sjúklingurinn er hættur að nota lyfið, er því réttast að kasta afganginum þegar í stað, þar sem hann, eins og áður er sagt, kemur sjaldan að notum síðar. Læknirinn skrifar venjulega á lyfseðilinn, hvernig beri að taka inn meðalið og lyfsalinn endurtekur þau fyrir- mæli á meðanum á meðalaílátinu. Þegar meðalið er tekið inn eða gefið, er nauðsynlegt að vita nákvæmlega, hvernig á að nota það, og ber því að lesa gaumgæfilega notkunar-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.