Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Side 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
5
indum í kviðarholinu, ef ekki er vitað með vissu, af hverju
verkirnir stafa.
Laxerolían er sennilega það hægðameðal, sem mest er
notað hér á landi, en auk hennar eru ýmis önnur meðul
notuð, t. d. parafínolían, sem hefur eingöngu mýkjandi
áhrif á hægðirnar og er því algjörlega hættulaus, senna-
og manna-saft, milt hægðameðal, sem aðallega er notað
handa börnum, margskonar pillur, og þá sérstaklega
sagradapillur, cascalínpillur og svonefndar Brandreths-
pillur. Þær síðasttöldu eru samsettar úr mörgum efnum
og hafa talsvert sterk áhrif. Ýms sölt eru líka mikið notuð
sem hægðameðul. Af þeim, sem algengust eru hér á landi,
niá nefna Karlsbaðsalt og magnesíumsúlfat. Eins og áður
er tekið fram, getur það stundum verið hættulegt, að taka
inn hægðameðal, og á hverjum lyf jaskáp ætti því að standa
skrifað, að hægðameðal megi aldrei nota við magaverkj-
um, sem menn vita ekki orsakir til.
Önnur lyf, sem venjulega eru til á heimilum, eru kvala-
stillandi lyf. Algengast er, að slík meðul séu notuð við
höfuðverk, en þau eru einnig mjög notuð við svokölluðum
gigtarverkjum, ígerðarverkjum, tannpínu og við öðrum
verkjum af óþekktri orsök. Stundum eru þessi meðul
einnig notuð sem svefnmeðul. Flestir höfuðverkjaskammt-
ar innihalda phenacetín, acetanilid eða antifibrin, stund-
um í talsvert stórum skömmtum. Það er ekki ráðlegt að
uota acetanilid mikið, því að sé það tekið oft og í stórum
skömmtum, getur það haft slæm áhrif á líkamann, og þó
sérstaklega á blóðið og hjartað. Auk þess er alltaf hætt
við, að menn venji sig á að nota þessi lyf í óhófi, og getur
það haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Sem svefnmeðul eru einnig mikið notuð barbitursýra
°g sölt úr barbitursýru. Þau algengustu eru: veronal,
medinal, luminal, altonal, dial o. fl. Þetta eru sterk svefn-
meðul og hættuleg, séu þau tekin í of stórum skömmtum,
enda er ekki leyfilegt að selja þessi lyf hér á landi, nema