Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Blaðsíða 11

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Blaðsíða 11
L J ÓSMÆÐR ABLAÐIÐ 9 Laxerolia. Kröftugt hægðameðal. Fyrir fullorðna er mátulegt að taka 1—2 matskeiðar. Laxerolíu er ekki rétt að nota við langvarandi hægðatregðu. Senna- og mannasaft. Milt hægðameðal fyrir börn. Fyrir ungbörn er 1 teskeið hæfilegur skammtur og fyrir stærri börn 1 barnaskeið. Parafínolía. Milt hægðameðal, sem nota má við lang- varandi hægðatregðu. Skammtur fyrir fullorðna 1 mat- skeið einu sinni til þrisvar sinnum á dag. Natríum bicarbonat (natron). Mikið notað við brjóst- sviða. Skammtur: 1 teskeið í glasi af vatni. Aspirín. Mikið notað við allskonar verkjum. Skammt- ur: 1—2 töflur á Vá g. með minnst 4 tíma millibili. Vaselin, coldcream og zincáburður. Þessa áburði má nota við aftaki, sólbruna, sprungum í hörundinu o. fl. Auk þessa, sem upp hefur verið talið og geyma á í lyf ja- skápnum, er gott, að til séu á heimilinu nauðsynlegustu hjúkrunaráhöld og þá fyrst og fremst hægðaskál, stól- pípa með tilheyrandi gúmmíslöngu og könnu, hitamælir, hitapoki eða hitaflaska og vatnsþéttur dúkur, sem nota má við bakstra. Þess verður að gæta, að lyfjaskápurinn sé hafður á öruggum stað, þar sem börn geta ekki náð til hans. Hver flaska, krukka eða askja, sem 1 skápnum er, verður að vera greinilega merkt. Gíeymið ekki gömul meðul, sem hætt er að nota. Hafið aðeins þau meðul í lyfjaskápnum, sem heimilisfólkið þarf nokkuð oft á að halda. Nýskipaðar ljósmæður. 1. jan. 1944 voru 3 ljósmæður lögskipaðar í Reykjavík, og eru þá 4 ljósmæður lögskipaðar í höfuðstaðnum. En um langt skeið hafa þær aðeins verið tvær, en önnur þeirra lét af störfum síðastliðið haust.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.