Ljósmæðrablaðið - 01.03.1947, Side 10
20
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
að það leitaði liðsinnis manna, sem því fannst ,,styrkur“ í
að hafa nærri stadda á þrautastundum, jafnvel þótt önn-
ur hjálp þeirra væri af „lítilli getu.“
Ég fæ ekki betur séð við lestur greinanna „Tveir snill-
ingar“ og „Viðsjárverð sagnaritun" en það, sem höfund-
unum ber í milli, séu ólík sjónarmið á atburðum, sem raun-
verulega hafa gerzt og eru ekki ómerkari til frásagnar en
ýmsar aðrar þjóðfélagslýsingar frá sama tíma.
Þar sem ég bar ábyrgð á, að frásögn Ragnars Ás-
geirssonar birtist í Ljósmæðrablaðinu, blandaðist mér ekki
hugur um, er ég hafði lesið grein landlæknis, að mér bar
og að taka á mínar herðar umvandanir hans. Þykist ég
nú hafa gert það og ekki undanskilð neitt það, er máli
skipti. Hitt er svo lesendanna að dæma um, hvort þær hafi
verið á rökum reistar.
Sigríður Sigfúsdóttir
Tvö bréf.
Til formanns Ljósmæðrafélags Islands.
Sigríðar Sigfúsdóttur, Rvík.
Fyrir hönd Landsambands norskra ljósmæðra veitist
mér sú ánægja að bjóða íslenzkum ljósmæðrum að taka
þátt í landsmóti voru, sem haldið verður að unglingaskól-
anum „Solhovd“ á Lyngseidet í Tromsö-fylki í Norður-
Noregi dagana 1. 2. og 3. júlí n. k.
Við vonum, að sem flestar íslenzkar ljósmæður sjái sér