Ljósmæðrablaðið - 01.03.1947, Blaðsíða 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
21
fært að taka þátt í þessu móti og geti jafnfram notað
tækifærið að sjá nyrsta hluta Noregs. Við mun-
um tilkynna yður strax og við höfum fengið upplýsingar
hjá ferðaskrifstofu vorri um ferðaáætlanir og ferðakostn-
að. Formaður Ljósmæðrafél. Tromsöfylkis frú Nordvág
og form. móttökunefndarinnar frú Klara Johannessen
munu koma til móts við þátttakendurna í Narvík og veita
þeim leiðsögn sína á ferðalaginu um Tromshérað til á-
kvörðunarstaðarins. Að landsmótinu loknu verður farið
á skipi til Nordkap og í bakaleiðinni komið við í Tromso,
þar sem mótinu verður slitið. Þátttaka tilkynnist fyrir 1.
júní. Við hlökkum til að sjá stéttarsystur okkar frá ís-
landi, og bjóðum þær velkomnar til Noregs.
Kær kveðja yðar einl.
Fanney Greif
form.
Ljósmæðrafélag Islands, Reykjavík.
Landssamband sænskra ljósmæðra leyfir sér hér með
að bjóða íslenzkum stéttarsystrum að taka þátt í lands-
móti, sem haldið verður í Visby dagana 6., 7. og 8. ágúst
næstkomandi.
Þátttaka tilkvnnist fyrir júnímánaðarlok.
Ellen Erup
form.
Nánari upplýsingar hjá Jóhönnu Friðriksd., sími 1775
og Sigríði Sigfúsd., sími 4171.