Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1921, Blaðsíða 10
20
T 1 M A R I T V. F. í. 1 9 2 1.
Fluttai' kr 522400
5. Tillög til akfærra
sýsluvega.......... — 64600
--------------- kr. 587000
B. Til brúargerða.................... — 527000
Samtals kr. 1114000
Af því, sem varið er til flutningabrauta, hefir ná-
lega 170 þús. kr. farið til viðhalds og endurbygg-
ingar flutningabrautanna hjer sunnanlands frá
Reykjavík austur að pjórsá-, Suðurlandsbrautarinn-
ar og þingvallabrautarinnar. Umferð sjerstaklega
um Suðurlandsbrautina er nú orðin mjög mikil, svo
viðhaldið verður æði dýrt, þar sem brautin er víð-
ast ópúkkuð og erfitt um haldgóða möl í slitlag veg-
arins. Hafa því undaníarin ár verið teknir fyrir smá-
kaflar, sem mest voru úr sjer gengnir, og endurbygð-
ir, þannig að gert er slitlag úr grjótmulningi, sem
þjappað hefir verið með valtara. pessi vegabót er dýr
og miðar seint áfram, þó að fjái’veitingar sjeu nokk-
uð miklar, sjerstaklega í slíkri dýrtíð, sem magnast
hefir undanfarið. þó hefir verið ráðgert að fullgera
endurbyggingu Flóabrautarinnar á næstu 3—4 ár-
um. Leggur Árnessýsla fram 1/3 hluta kostnaðar til
þessa vegar en ríkissjóður 2/3 hluta. Er ráðgert að
byrja endurbyggingu Holtabrautarinnar næsta ár,
og verður hún kostuð að x/3 hluta af Rangárvalla-
sýslu.
Af nýjum flutningabrautum var unnið að fram-
haldi Húnvetningabrautar og Biskupstungnabraut-
ar. Er sú fyrri nú að heita má fullgerð frá Blönduós
að þjóðveginum hjá Vatnsdalshólum um 22 km. að
lengd. Biskupstungnabrautin er framhald Grímsnes-
brautar, sem nú er fullgerð frá Sogsbrú um endilangt
Grímsnes að Brúará austanvert við Mosfell, en þar
verður sett ný brú á ána í sumar. þessi braut á að
ná að Geysi, en ógerðir eru enn rúmir 20 km.
Byrjað var á lagningu Hvammstangabrautar, sem
á að liggja frá Hvammstanga á akveginn hjá Stóra-
Ósi. Verður sú braut 5*4 km. að lengd, en síðastlið-
ið sumar var að eins unnið að undirbyggingu vegar-
ins, svo að sá kafli, sem gerður var, kemur enn ekki
að notum.
þjóðvegafjenu var mestmegnis varið til viðhalds
og til þess að leggja akfæra smákafla víðsvegar um
land. Af akbrautum var haldið áfram lagningu Norð-
urárdalsvegar í Borgarfirði og þar unnið fyrir 54
þús. kr. Er sá vegur nú kominn yfir hraunkaflann
norðan við Laxfoss, er það um 31,5 km. vegalengd
frá Borgarnesi. pá var og unnið nokkuð að fram-
haldslagningu Langadalsvegar í Húnavatnssýslu og
Hróarstunguvegar í Norður-Múlasýslu.
Fjallavegafjenu var varið til viðhalds og vörðu-
hleðslu, smáupphæðir á hverjum stað.
Keypt hafa verið ýms stórvirkari áhöld en undan-
farið til vinnuspamaðar, eða til þess að gera vegina
haldbetri; má þar telja sjerstaklega 4 bifreiðar til
malarflutnings og 1 vegvaltara. Á þessum gjaldlið
er ennfremur talið ýmislegt efni, sjei'staklega til brú-
argerða, og loks nokkuð af áhöldum og öðru, sem
keypt var síðastliðið sumar, ekki beinlínis vegna
vegagerðanna, en verður þó síðar notað við þær eða
brúargerðir.
Móti upphæðinni til akfærra sýsluvega hafa hlut-
aðeigandi sýslufjelög lagt 50 þús. kr. Akfærir sýslu-
vegir hafa sjerstaklega verið gerðir í Gullbi’ingu-
sýslu, Mýra- og Boi’garfjai'ðarsýslu, Húnavatns-
sýslu, Eyjafjai’ðarsýslu og Suður-þingeyjasýslu.
Skiftist upphæðin nær eingöngu milli þessara sýslna.
Á þessu ári voru í fyrsta sinn gerðar brýr sam-
kvæmt lögum frá 1919 um brúargerðir. Vegna þess,
að fyi'irsjáanlegt var, þá er kom fram á vor og und-
irbúningur hófst til fx-amkvæmda, að bæði efni og
vei’kalaun mundu verða miklum mun hæira en búist
var við í ársbyrjun, komu ekki allar brúargerðir til
framkvæmda, sem áformað hafði verið að ráðast í á
árinu.
Skulu hjer taldar þær helstu brýr, sem gei’ðar
vonx, og jafnframt tilgreint, hve mikið hjer um bil
hver þeirra kostaði:
1. Jökulsá á Sólheimasandi............ kr. 209000
2. Hólmsá á Mýrdalssandi................ — 58000
3. Fagradalsá í Suður-Múlasýslu .... — 8000
4. Eyvindai’á í Suður-Múlasýslu .... — 19000
5. Reynistaðará í Skagafirði............ — 34000
6. Kópavogslækur á Hafnarfjarðarvegi —■ 14000
7. Elliðaár hjá Reykjavík............... — 26000
8. Ilvítá í Borgarfirði á Kláffossi .... — 21000
Allar þessar brýr nema bi’úin á Jökulsá og Hvítá
eru úr járnbentri steinsteypu. Á Hólmsá, Fagi'adals-
á, Eyvindará, Kópavogslæk, Elliðaánum og Hvítá
voru áður timburbrýr, en orðnar mjög fúnar. þær
eru flestar komnar að því að falla, gömlu trjebrýrn-
ar, svo ekki fer hjá því, að *á næstu árum vei'ði að
vei’ja tiltölulega miklu af fje þvi, sem veitt vei’ður
til bi’úargerða, til endurbyggingar þeirx-a. Hvítár-
bi’úin og bi’úin á Jökulsá enx úr járni, er sú síðari um
230 metrar að lengd og stendur á samtals 10 stöpl-
um úr steinsteypu. Voru í fyrra steyptir stöplanxir
og lokið að mestu leyti smíði jái’nbrúai’innar í bi’úar-
smiðjunni í Reykjavík. 1 ár verður bi’úin fullgerð,
og er áætlað til þess um 50 þús. kr.
Auk áður talinna brúa voru gerðar úr jái’nbentri
steinsteypu smábx'ýr, sem allar eru frá 5—7 metra
langar:
1. Á Hraunholtslæk á Hafnaxfj arðai'vegi,
2. Á Laugalæk á Lauganesvegi,
3. Á Lækjarbotnalæk á Suðui’landsbraut,
4. Á Krókskeldu á Flóavegi,