Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1921, Síða 12
22
T í M A R I T V. F. í. 1 9 2 1.
tæki frá vitastjórninni sænsku og sýna hvítt,rautt og
grænt ljós með myrkvum. Ljósvídd vitans er 6 sm.
Vitinn hefir kostað um kr. 22,800, og er hann sett-
ur upp á kostnað sveitanna, en rekstur hans tekur
ríkið að sér.
Svalbarðseyrarvitinn. — Vitahúsið er
5 m. hátt, úr steinsteypu, en að öðru leyti er hann bú-
inn eins og Hjalteyrarvitinn. Hann hefir kostað um
kr. 19,700, og greiða sveitasjóðir upphæðina.
Th. Krabbe.
5. Rafveita Reykjavíkur.
Undir umsjón verkfræðinganna A. Broager
Christensen, Guðmundar Hlíðdal og
Steingríms Jónssonar hefir verið unnið að
Rafveitunni. Útboð voru gerð fyrri hluta ársins, og
byrjað á verklegum framkvæmdum tímanlega á ár-
inu. Var að mestu lokið við byggingu stöðvarhúss,
íbúðarhúss og stýflunnar við Elliðaárnar, svo og að-
veitustöðvar og 8 spennistöðva í bænum. Byrjað var
á lagningu vatnspípunnar og fyrstu vélarnar komn-
ar á staðinn. í flestum aðalgötum bæjarins voru lagð-
ir neðanjarðar rafstrengir og settir upp staurar fyrir
taugar í allmörgum öðrum götum. Um 250 neðan-
jarðar húsálmur voru fullgerðar.
Á árinu 1920 hafa alls verið greiddar kr. 1715264,-
58, auk kostnaðar við lántöku og rannsóknir á fyrri
árum,er endurgreiddur hefir verið bæj-arsjóði með kr.
197867,28; þar af til verkalauna ca. kr. 894864,00.
Gert er ráð fyrir að rafveitan taki til starfa í sum-
ar og verði fullger á þessu ári (1921).
G. J. H.
6. Húsagerð.
Til húsagerðar hefir verið varið úr ríkissjóði kr.
473269,82. Hjermeð ekki talinn byggingarstyrkur til
sjúkrahússins á Eyrarbakka, og kostnaður við að-
gerð á eldri húsum ríkisins.
1. Til íbúðarhússins á Hvanneyri,
. sem byrjað var að reisa sumarið
1920, hefir verið varið....... kr. 190921,80
2. Til að fullgera læknisbústaðinn á
Vífilsstöðum, og að breyta fyr-
verandi bústað læknisins í sjálfu
hælinu (sem nú er notaður fyr-
ir barnadeild, og er þar rúm fyr-
ir 20 börn) var varið......... — 125053,22
I þessum kostnaði eru innifal-
in öll húsgögn ásamt borðbúnaði,
rúmum og rúmfatnaði í baraa-
deildina.
3. Á Kleppi var grafið fyrir öllum
kjallaranum að hinni fyrirhug-
uðu byggingu þar, sömuleiðis
var steyptur kj allari og gólf yfir
hann, á stærri álmu hússins,
kostnaður við það var..........
4. Til framhalds byggingar á húsi
yfir listaverk Einars Jónssonar
var varið.................... . .
5. Byrjað var að reisa sjúkrahús-
ið á Eyrarbakka vorið 1920, og
komst það undir þak um haustið,
en þá var hætt við vinnu, en að
öllum líkindum verður byrjað
aftur á verkinu í vor, kostnaður
um.............................
98417,15
58877,65
100000,00
Guðjón Samúelsson.
7. Vinna við Reykjavíkurhöfn 1920.
Á árinu 1920 var haldið áfram með uppfyllingu
þá fyrir vestan Batteríisgarðinn, sem byrjað var á
í maímánuði 1919. Ennfremur var vesturhluti hafn-
arinnar dýpkaður og sömuleiðis svæðið fyrir framan
hið fyrirhugaða bólvirki meðfram uppfyllingunni.
Efninu í uppfyllinguna var ekið ofan úr Eskihlíð
á járnbraut hafnarinnar og auk þess var uppmokst-
urinn úr höfninni notaður í uppfyllinguna eftir því
sem ástæður leyfðu.
í júnímánuði var samningur gjörður við verkfræð-
ingana Kampmann, Kjerulff & Saxild í
Kaupmannahöfn um byggingu bólvirkis þess, sem á
að takmarka vesturhlið uppfyllingarinnar.
Frá 1. júní til ársloka var alls ekið niður úr Eski-
hlíð 51000 ten.mtr. af grjóti og sandi og kostaði það,
komið í uppfyllinguna, kr. 218500.00. Á sama tíma
var mokað upp úr höfninni 68000 ten.m. af sandi og
kostaði það, komið í uppfyllinguna, ca. kr. 141000,00.
Verkfræðingunum Kampmann, Kjerulff &
S a x i 1 d var greitt upp í kostnað við bólvirkisgerð
kr. 198000.00.
Viðhaldskostnaður á hafnargörðunum m. m. var
árið 1920 kr. 55794.21.
þór. Kristjánsson.
>-
j