Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1960, Blaðsíða 6

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1960, Blaðsíða 6
28 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ senn) í deildinni. Boðuðu þær þá til sín ákveðinn fjölda barna úr umsjá sinni, og voru þau athuguð og bólusett. Með þessu var að mestu komið í veg fyrir, að ungbörn lentu í þrengslum og bið. Auk þess var tekið á móti börn- um innan 7 ára aldurs 4 sinnum í viku til eftirlits og at- hugunar. Ennfremur var vikulega sértími ætlaður kúa- bólusetningu og einnig annar tími á vikufresti til ýmissa annarra bólusetninga. Alls voíru framkvæmdar 31785 ónæmisaðgerðir. Langsamlega flest barnanna voru heilsu- hraust, þroski þeirra eðlilegur og framför góð. Síðasta aflátsbón í Eyjafirði — ef ekki á öllu íslandi. Stúlka í Grundarsókn í Eyjafirði eignast barn ógift og fyrir þetta á hún að „biðja forláts" í kirkjunni frammi fyrir söfnuðinum, og sitja krókbekk, sem þá var siður að láta þá gera, sem eitthvað höfðu brotið af sér, að þeirra tíma dómi. Þá bjuggu á Grund Gunnlaugur Briem sýslu- maður og conferensráð og Valgerður Árnadóttir kona hans. Nú var það ákveðinn sunnudag, að stúlka þessi kom til kirkjunnar og átti að biðja forláts á ,,broti“ sínu. Sat hún að sjálfsögðu í krókbekk, og sat þar ein. En þegar sýslu- mannshjónin komu í kirkjuna, víkur frú Valgerður sér til hliðar og sezt í krókbekk hjá stúlkunni og sat þar allan messutímann. Þótti þetta mikil uppreisn fyrir stúlkuna. J. F. AÐALFUNDUR. Aðalfundur Ljósmæðrafélags íslands verður haldinn í Reykjavík snemma í september n. k. Nánar auglýst í næsta blaði, og dagblöðum og útvarpi rétt fyrir fundar- daginn. Stjórnin.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.