Ljósmæðrablaðið - 01.05.1960, Qupperneq 12
34
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
sýndi hann iðulega sitt eigið áhald kolryðgað, sem sönn-
un þess, að hann notaði það ekki við þær fæðingar er
hann aðstoðaði við.
Annar enskur fæðingarlæknir, William Smellie (1697
—1763), sem tók til meðferðar mörg athyglisverð atriði,
t. d. þýðingu mjaðmagrindarmáls, er dæma skyldi um
líkur fyrir eðlilegri fæðingu, jók mjög útbreiðslu fæðing-
artengur með yfirgripsmikilli kennslu. Sjálfur hafði hann
búið til töng, eingöngu úr tré, til þess að hinar fæðandi
konur þyrftu ekki að hlusta á ónotalegt málmglamur.
Seinna hefir tönginni verið breytt í það óendanlega, og
hefir hún orðið einn hinn mesti bjargvættur í sögu lækn-
islistarinnar,, og má í því sambandi hafa hugfast, að
þetta áhald bjargar oft úr lífshættu tveim mannverum,
bæði móður og barni.
Heiðurinn af uppfinningu þessari á Pailfin með réttu,
og má teljast lítt viðeigandi, að yfir einn af Chamberlen-
ættinni var reist glæsilegt minnismerki í Westminster
Abbey, við hlið frægustu lækna Englands, vegna þess
að við hirðina fæddi mikilsmetin hertogafrú af Bucking-
ham barn sitt giftusamlega með aðstoð hins leynilega
tækis. Lauslega þýtt úr sænsku. J.J.
BASARINN
Ákveðið hefir verið að fresta um óákveðinn tíma ,,bas-
ar“ þeim sem félagið auglýsti 14. maí. Sennilega verður
hann ekki haldinn fyrr en í sept., eða byrjun október, verð-
ur nánar skýrt frá því í júlíblaðinu, og dagblöðunum.
Margar góðar gjafir hafa þegar borizt, en þátttakan er
ekki nógu almenn, er hér með skorað á sem flestar
ljósmæður að sýna rausn sína og áhuga, svo basarinn
megi verða myndarskap þeirra samboðinn.
Verið allar samtaka í því að senda eitthvað, smátt
eða stórt, og það sem fyrst.