Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1904, Side 8

Freyr - 01.01.1904, Side 8
4 FRE YR. Sé reiknað 5% í rentu og gert ráð fyrir að gaddavírinn endist í 14 ár, yrði þá hver sýsla að greiða að meðaltali 30,31 kr. á ári, og alt landið rúmar 545 kr. eða sem svarar andvirði tveggja reiðhesta. Ætlast jeg til, að girðing- arkostnaðurinn sé greiddur af sýslusjóðum, en hagatoll og eftirlit borgi hver folaeigandi sjálfur, enda yrðu það að eins fáar krónur á ári, er kæmu á hvern og mundu allir þeir, sem á annað borð vilja ala upp kynbótahesta, greiða það gjald fúslega. Hér er því, eins og allir sjá, að eins um lítilfjörlegan tilkostnað að ræða en aptur á móti stórvægilegt atriði til framfara fyrir hestarækt vora. Þegar kynbóta- hestarnir eru orðnir 4 ára og farið er að nota þá til und- aneldis, verður að hafa þá í haldi, því að á annan hátt er hvorki hægt að koma upp sérstæðum kynj- um eða að girða fyrir að þeir fylji unghryssi. I hverju bygð- arlagi þurfa að vera tveir eða fleiri stóð- hestar, eftir staðhátt- um og hrossafjölda, einD af reiðhestakyni og einn eðafleiri af áhurðarhestakyni. Eiga þeirþann tíma ársins, sem þeir eru notaðir til undaneldis, að vera geymdir á hentugum stöðum, þar sem anðvelt er fyrir hændur að ná til þeirra með hryssur sínar. Undir stóðhesta af reiðhesta- kyni á svo að leiða þær hryssur aðeins, sem hafa reiðhe3tahyggingu og eiginleika, en hinar undir stóðhestana af áburðarhestakyni. Verðum vér að láta oss nægja í bráðina þessi tvö aðalkyn, en þegar fram líða stundir og þekking og þroski eykst, efast ég ekki um, að menn fari að leggja stund á fleiri kyn. — Folatollarnir eiga að vera svo háir, að þeir nægi til að borga allan kostnað við stóðhesta- haldið. Svipað fyrirkomulag og þetta tíðkast hvar- vetna hjá siðuðum þjóðum, enda efast ég ekki um, að það muni komast á hjá oss, þegar fram líða stundir og er vonandi, að þess verði ekki lengi að híða, enda þótt hér sé við ramman reip að draga, þar sern er gömul rótgróin venja. Mér hefur dottið í hug að benda hér á annað fyrirkomulag, að minsta kosti til bráða- birgða; er það í sjálfu sér mjög einfalt og stríðir minna á móti gömlum venjum. Ætlast ég þá til, að hafður sé á umgirtu svæði eða afskektum stað einn stóðhestur með hæfi- lega mörgum, völd- um hryssum, fyrri part sumarsins eða þann tírna, semmenn vilja að hryssurnar fyljist. Er fyrir- komulag þetta all- títt í sumum hér- uðum í Noregi og má geta þess, að ríkið hefur átt þar lengi eigi allfáa stóð- hesta af Guðbrands- dalskyni, sem hafðir eru á hverju sumri í afgirtum dölum með 30—40 hryss- um hver. Bændurnir, sem hryssurnar eiga, verða svojað borga meðhverri hryssu allt að 40 kr. í fola-ogbeitartoll. Auðvitað mundi bændum vorum þykja þetta hár folatoll- ur, en ekki blöskrar Norðmönnum það, því að þeir hafa fyrir löngu séð, hvaða þýðingu gott kynferði hefur. Hjá oss mun og 10 sinnum lægri folatollur nægja, 3—4 kr. fyrir hverja hryssu. Til þess að reyna þessa aðferð hér, ættu nokkrir framfaramenn eða félög, þar sem vel hagar til, að kaupa úrvals stóðhesta, og koma þeim að sumrinu, þar sem góð hagaganga er, annaðhvort á afskektum stöðum, þar sem ekki er samgangur við önnur hross, eða að afgirða fyrir þá. Styrk til að kanpa graðhestana og til að koma upp girðingunni — þar sem þess

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.