Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1925, Blaðsíða 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1925, Blaðsíða 10
36 T I M A R IT V. F. 1. 1925. unni Sýnir það meðal annars, á hversu reikulum grundvelli þetta hvílir enn þá, að upp á síðkastið er Bohr farinn að halda því fram, að orkuinnihald at- ómanna geti breyzt þó rafeindimar flytjist ekki milli brauta. Áður hefir hann haldið því fram, að orkan gæti aðeins breyst við slíkan flutning. Sam- kvæmt hinni nýju viðbót við kenninguna ætti t. d. vetnisatómið að senda frá sjgr rafsegulöldur með tvennskonar sveiflutölu, þegar rafeindin er í 3. braut, sem sje með báðum þeim sveiflutölum, er svara til flutnings frá 3—2 og 3—1. Ef rafeindin flyzt í braut nr. 2, byrjar atómið strax að senda frá sjer öldur með sveiflutölu þeirri, sem svarar til flutnings 2—1. þegar rafeindin er komin í braut 1, þ. e. í sitt eðlilega ástand, sendir atómið enga orku frá sjer, enda mundi af slíkri orkugeislun leiða, svo sem fyr er sagt, að rafeindin yrði að flytjast nær og nær kjarnanum, og það er auðsjeð, að slíkt er útilokað, því það er þó staðreynd, að rafeindabraut- irnar hafa þverm.,er aldrei fer niður fyrir vissa stærð. þess má geta, að fylgjendur þessarar nýju kenn- ingar telja, að strangt tekið gildi orkusetningin ekki um víxláhrif milli geislaorku og atóma, nema um mik- inn fjölda af atómum sje að ræða. Annað mál er það, hvort þetta kemur nokkurn tíma í ljós við tilraunir, vegna þess, að þar er að jafnaði einmitt unnið með mikinn fjölda af atómum. þeir hinir sömu telja einn- ig, að orsakasetningin muni á þessu sviði standa höll- um fæti; en út í þá sálma skal ekki frekar farið hjer, með því að þessar tilgátur eru nýkomnar fram. þess hefir áður verið getið, að röntgengeislar og gammageislar sjeu sama eðlis og Ijósgeislar. Er því rjett að minnast á, hvemig talið er, að þessir geislar myndist. I sambandi við myndun Ijósgeislanna var aðallega rætt um vetnispektrið, þ. e. ljós það, sem vetnisatóm- ið sendir frá sjer. þegar ytri rafeindimar eru margar og skipa sjer í marga brautaflokka, geta hreyfingar þeirra orðið á miklu fleiri vegu en í vetnisatóminu, þar sem aðeins er ein. Rafeindirnar í instu brauta- flokkunum verða mjög fast bundnar, vegna þess, að kjarninn er stór og sterklega rafmagnaður. Til að losa þessar rafeindir þarf mikla orku. En sje búið að losa einhverja af þeim, svo að autt sæti verði, hafa rafeindir þær, sem utar eru, möguleika til þess að flytja sig þangað inn, og við það losnar mikil orka, er kemur fram sem geislar með harri sveiflutölu, (sbr. formúluna h . v = Ex -f- E2). þetta eru röntgengeislar. Sveiflutala þeima er margaflt minni en ljósgeislanna (öldubreiddin lítil), en annars eru engin sjerstök takmörk milli þeirra og útfjólubláu geislanna. þessi atóm, sem gefa þannig röntgengeisla, geta auðvitað einnig sent frá sjer ljósgeisla, til þess þarf minni orku og þeir myndast þá við flutning rafeinda utantil í rafeindakerfinu, en röntgengeislar við flutning inn í instu brautaflokk- ana. Hörðustu röntgengeislarnir (þeir sem hafa hæsta sveiflutölu) fást við flutning inn í allra instu brautirnar. Sveiflutalan fer vaxandi með atóm- þunganum. Öldubreidd gammageislanna er enn minni en röntgengeisla, en engin ákveðin takmörk eru þar á milli, frekar en milli röntgengeisla og ultrabláu geislanna. Samkvæmt því, sem áður er sagt, eru gammageisl- arnir orkufrekari en aðrir geislar og skoðun manna er sú, að þeir eigi að jafnaði rót sína að rekja til breytinga innan atómkjamans. Ný og gömul heiti úr sjómannafræðinni, með þýðingum á ensku, þýsku og dönsku, Akkerislás — Anchor-lock — Ankerschloss — An- kerlaas. Akkerisskeið — haws-hole — Kliisenloch — Klyds. xisgöng (flt.) — Tunnel — Tunnel — Akselgang. Atrennulykkja — running nose, ground snare — Laufdohne — Rendelökke. Aukavjel — Auxiliary engine — Hiilfsmaschine — Hjælpemaskine. Austurop — scupper — Speigat — Spygat. Austurrenna — waterway eða gutter — Wasser- gang — Rendesten. Band, sjá röng. Bárufleygur — oilbag — Öldámpfer — Oliedæmper. Bátsugla — boat davit — Bootsdavid — Baaddavid. Bifari — steamturning engine — Dampfdrehvor- richtung — Drejemaskine. Bjargbátur — life boat — Rettungsboot — Red- ningsbaad. Bjargbelti — life belt — Rettungsgiirtel — Red- ningsbælte. Bjargfleki — life raft — Rettungsfloss — Red- ningsflaade. Bjargreip — life-Iine — Rettungsleine — Rednings- line.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.