Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.07.1926, Blaðsíða 8
26
T í M A R I T Y. F. í. 1926
103. fundur V. F. í. var haldinn miðvikudaginn 3.
febr. 1926 á Hótel ísland. Fundurinn hófst kl. 7%
með venjulegu borðhaldi og sátu }>að 9 fjelagsmenn,
auk tveggja gesta fjelagsins, þeirra Ólafs Thors og
Björns Kristjánssonar alþingismanna. Varaformað-
ur setti fundinn og stjórnaði i fjarveru formanns.
Undir borðum skýrði forseti frá því, að formaður
hefði skrifað fjelaginu og þakkað fyrir nýárskveðju
þá, er send var af síðasta fundi.
Að borðhaldi loknu var lesin upp fundargerð síð-
asta fundar og samþykt. J?ví næst flutti Björn Krist-
jánsson alþingismaður erindi um málmarannsóknir
sínar lijer á landi síðastliðinn aldarfjórðung. Skýrði
hann frá ástæðum fyrir því, að hann hóf þessar
rannsóknir og livers hann hefði orðið vísari. Taldi
hann víða gull i jörðu hjer og mundi það að mestu
vera bundið í efnasamböndum. Að lokum hvatti hann
þing og stjórn að efla rannsólcnarstofuna, svo að
hún gæti orðið fær um að taka að sjer þessar rann-
sóknir. — Forseti þakkaði ræðumanni erindið og fór
nokkrum orðum um þá merkilegu starfsemi og
áhuga, er hann hefði sýnt í verki þessu.
104. fundur V. F. I., er var aðalfundur, var hald-
inn miðvikudag 24. febr. 1926 á Hótel Island og hófst
kl. 7V2 með venjulcgu borðhaldi. 15 fjelagsmenn
komu á fundinn og auk þess Bjarni Jósefsson cand.
polyt., gestur fjelagsins. Bauð formaður hann vel-
kominn og þakkaði fjelaginu jafnframt kveðju-
skeyti, er honum hafði verið sent frá l'undinum 13.
jan. Guðm. Hlíðdal bauð form. velkominn heim aft-
ur og óskaði honum varanlegs bata.
Að borðhaldi loknu var lesin upp fundargerð síð-
asta l'undar og samþykt. J?á stakk formaður upp á
Guðjóni Samúelssyni sem fundarstjóra og var það
samþykt með lófaklappi. pví næst flutti formaður
skýrslu um starfsemi fjelagsins siðastliðið ár.
Fjelagsmenn voru í byrjun ársins 28, en einn hef-
ir sagt sig út á árinu, Hjörtur porsteinsson verkfr.
24 fjelagsmenn eru búsettir i Reykjavík, 1 í Kaup-
mannahöfn, 1 í pýskalandi og 1 í Aþenuborg. — 7
fundir hafa verið haldnir á árinu og 5 erindi flutt.
— N e f n d i r. Steingrímur Jónsson var kosinn i
stjórnarnefnd Iðnbókasafnsins og Benedikt Gröndal
til þess að taka sæti í nefnd þeirri er semja á reglur
um eftirlit með vjelum á landi. J?eir O. Forberg, Geir
G. Zoega og Steingrímur Jónsson voru kosnir af
stjórninni í nefnd til þess að undirbúa þátttöku af
fjelagsins hálfu á fundi norrænna raffræðinga í Osló
í sumar. — 9 stjórnarfundir höfðu verið haldnir og
hafði meðal annars Steingrimi Jónssyni verið falið
að sjá um útgáfu á 1. hefti af orðasafni orðanefnd-
arinnar. — Formaður gat þess ennfremur, að frum-
varp það um raforkuvirki, er samið var að tilhlut-
un fjelagsstjórnarinnar, væri nú komið fyrir þingið
og yrði sennilega fyrsta frumvarpið, sem samþykt
yrði i ár. Einnig skýrði hann frá, að gerð hefði verið
stór og vönduð mynd af stofnendum fjelagsins, sem
ekki hefði selst; lagði hann því til, að myndin yrði
gefin pjóðminjasafninu og var það samþykt.
J?á lagði gjaldkeri fram endurskoðaða reikninga
fjelagsins og húsnæðissjóðs; eru þeir birtir á öðrum
slað i Tímaritinu, og voru þeir samþyktir án breyt-
inga.
pá var gengið til stjórnarkosningar. Formaður var
kosinn Steingrimur Jónsson með 11 atkv. I stað
Steingríms var kosinn í stjórnina til eins árs Finn-
bogi porvaldsson með 7 atkv. Úr stjórninni átti að
ganga Geir G. Zoega, varaformaður, en var endur-
kosinn með 10 atkv.
Endurskoðendur fjelagsins, Sig. Thoroddsen og O.
Forberg, voru endurkosnir með lófataki.
pá mintist fráfarandi formaður á fundahöld fje-
lagsins, hvort fjelagsmenn vildu breyta borðhaldi og
fundardegi; nokkrar umræður urðu um málið og var
síðan samþykt að fresta ákvörðun til næsta fundar.
Hinn nýkjörni formaður þakkaði fráfarandi form.,
Th. Krabbe, fyrir langt og gott starf í þágu fjelags-
ins og tóku fjelagsmenn undir. Th. Krabbe þakkaði
og óskaði formanni og fjelaginu allra heilla.
J?ar næst flutti Geir G. Zoega vegamálastjóri langt
og fróðlegt erindi um járnbrautarmálið. Urðu nokkr-
ar umræður á eftir, og verður það birt í Tímaritinu.
Að lokum þakkaði formaður fundarstjóra góða
fundarstjórn.
105. fundur V. F. í. var haldinn fimtudaginn 25.
mars 1926 á Hótel ísland og liófst kl. 7% síðdegis
með venjulegu borðhaldi. Formaður setti fund og
slýrði. 12 fjelagsmenn voru á fundi og auk þess Jón
Ófeigsson yfirkennari, Magnús Benjamínsson, skóla-
nefndarmaður Iðnskólans, Hannes Arnórsson cand.
polyt. og Bolli Thoroddsen cand. polyt., er höfðu ný-
lokið verkfræðipról'i í Kaupmannahöfn. Formaður
bauð gestina velkomna og óskaði nýju verkfræðing-
unum til hamingju.
Að loknu borðhaldi var aðalfundargerð lesin upp
og samþykt. — pá flutti Jón Ófeigsson yfirkennari
fróðlegt erindi um iðnskóla í pýskalandi og er það
birt á öðrum stað í Tímaritinu. Nokkrar umræður
urðu á eftir erindinu og ræðumanni þakkað.
106. fundur V. F. I. var haldinn fimtudaginn 19.
april í Ingólfshvoli, og hófst kl. 7. siðdegis með
venjulegu borðhaldi. Formaður setti fund og stýrði.
14 fjelagsmenn sátu fundinn og auk þess 2 gestir,
verkfræðingarnir Rasmussen og Maekeprang, er hjer
var til þess að athuga skilyrði fyrir olíugeymum, og
bauð formaður þá velkomna á fundinn.
Að borðhaldi loknu var fundarbók lesin upp og
samþykt. J?ví næst flutti porkell porkelsson fyrir-
lestur um afstæðiskenninguna og tilraunir Michels-