Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1907, Síða 7

Freyr - 01.01.1907, Síða 7
FítEYR. 3 magrir og meiddir og yfir fiöfuð illa útlítandi, -bæði af vondri brúkun og lélegum högum. Þetta er þó ekki það versta, því það geta kaupendurnir séð. Hitt er verra, að þeir eru Mþvældir, hafa verið gjörðir uppgefnir hvað eftir annað, og með því að þetta eru alt full- orðnir hestar, sumir janfvel um tvítugt, má ganga að því vísu, að þeir nái sér aldrei fram- ar, hvorki að því er þrótt eða vilja snertir. Engan skyldi því undra, þótt útlendingar, er hreppa slik happakaup, hefðu ekki mikið álit á íslenzkum hestum eða mæltu eigi með þeim við aðra. Með hrossin gildir sama regla og allar aðrar vörur, er ganga kaupum og sölu: Því vandaðri sem varan er, þess betur er hún borg- nð, og því vissari markaðurinn. Eyrirkomulagið á flutningi hrossanna á markaðinn og sölu þeirra þar er afar óheppi- legt. Um síðara atriðið skal þó eigi ræða hér, enda erfitt ef ekki ómögulegt að ráða bót á því með lðgum. tJr stærstu göllunum á út- flutningnum er þar á móti auðvelt að bæta. Hrossin eru flutt til útlanda á gufuskipum, meiri hlutinn með skipum Zöllners stórkaup- manns í Newcastle, er flytja vörur til kaupfé- laganna og taka hrossin til baka. Hitt með póstskipunum. I báðum tilfellunum er lögð aðaláherzlan á, að koma sera flestum hestum íyrir í sem minst rúm, því ákveðið flutnings- gjald er tekið fyrir hvern hest, og gróðinn á flutuingnum þar af leiðandi því meiri, þess þéttara sem hægt er að stafla hestunum saman. Munurinn er aðeins sá, að á póstskipunum eru hestarnir ekki hafðir á þilfari, en á hrossatöku- ■skipunum erraðað á þilfarið, eftir því sem ástæður leyfa, þegar búið er að troðfylla niðri. -— Hrossin eru höfð í stærri eða minni stíum, eftir því sem tilhagar, og óbundin; jötur eru engar eða vatnsstokkar, heyinu kastað á hrygginn á hestunum, og vatnað í fötum. Mikið afheyinu treðst niður í forina, og tápminstu hrossin fá •oft lítið eða ekkert hvorki af heyi eða vatni, verða að láta sér nægja með bit ogslöghinna, sem meiri máttar eru. Hitasvækjan og óloftið keyrir fram úr hófi, einkum á neðri þiljum, bæði vegna þrengslanna og vondrar loftræst- ingar. Talsvert af hestum þeim, sem fluttir eru til útlanda, eru seldir strax og þeir koma af skipsfjöl. Það hefir því eigi lítil áhrit á sölu- verðið, hvernig um þá fer á leiðinni, því leið- in er eins og kunnugt er löng og vond. Og eigi mun það ótítt, að kaupa verði dýra haga fyrir hestana, áður en þeir eru seldir, til þess að þeir nái sér eitir flutninginn, og eykur það oft verulega sölukostnaðinn. Þá er ekki óal- gengt að hestar drepist og stórmeiðist í flutn- ingnum, þótt hlutaðeigendum lánist oft að halda því leyndu. Nokkrum sinnum hafa þó orðið svo mikil brögð að þessu, að komist hefir í hámæli, meðal annars seinast liðið sumar. Allar misfellur í flutningnum lenda á eig- endum hrossanna, því þau fást ekki vátrygð. Hér er því um mjög mikið beint og óbeint peningalegt tjón að rœða fyrir bændur, ogskömm og skaða fyrir þjóðina. Til þess að ráða bót á þessu, verður að ákveða með lögum, hvað mikið rúm skuli ætla hverjum hesti, eftir því hvar er í skipinu, og hvað marga megi hafa saman í stíu. Þá verður að heimta jötnr, og þær verða að vera vatnsheldar svo hægt sé að vatna íþeim, og þannig fyrirkomið, að allir hestarnir í hverri stíu geti etið í einu. Viðunanlega loftræsing verður að heimta, og banna að flytja hesta á þilfari milli landa, því á öllum tímum árs geta komið þau veður, að hross, sem þar eru höíð, séu vonarpeningur. Loks verður að ætla hverjum hesti nægilegt fóður, og má það eigi vera minna en 10 pd. af góðu heyi á dag, mið- að við áætlun skipsins, eða sem því svarar í öðru fóðri. Til þess að lög um útflútning hrossa með líkum ákvæðum og að framan eru nefnd, verði eigi dauður bókstafuT, þarf landsstjórnin að skipa áreiðanlegau manu, sem hefir vel vit á hrossum í hverju kauptúni á landinu, þaðan sem hestar eru fluttir, til þess að hafa á hendi eft- irlit og umsjón með útflutningnum. Þeir, sem senda vilja hesta til útlanda, verða að tilkynna það umsjónarmanni með nægum fyrirvara. Hann skoðar hestana nákvæmlega, og gjörir þá afturreka, er að hans dómi eigi fullnægja

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.