Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.06.1907, Qupperneq 2

Freyr - 01.06.1907, Qupperneq 2
74 FREYR sýningar bæði til dóms og verðlauna, og mun það eflaost koma að miklum og góðum notum. Til þess að halda við og koma fram frekarium- bótum á hrossamarkaði, þeim sem myndast hefir hér í Danmörku, einkum á siðustu árum, er sér í lagi mjög áriðandi að hingað verði send- ir góðir hestar. Með því 4 eg ekki við góða raðhesta; þeirra þörfnumst vér mjög lítið; heldur unga (4—6 vetra), , stóru og sterk- lega skapaða dráttarliesta Því miður hefir það komið fyrir einkum síðustu 2-3 árin, að hing- að hefir verið sent nokkuð af hestura,'sem eiga ekki hér við Tvævetur tryppi á alls ekki að senda og þrévetur þvi að eins, að þau séu stór og sterkbygð. Mikiu er það þó viðsjárverðara, að vér höfum fengið hingað allmarga gamla hesta, og hefi eg þar á meðal séð hesta, sem eg hefi orðið að álíta um 20 vetra eða eldri. Það er auðvitaður hlutur, að þvilíka hesta á ekki að senda hingað og mun náumast heldur svara kostnaði að borga hátt farmgjald fyrir slíka ganialklára, en verst er þó það, að að- finslur manna að þessum hestum lenda gjarnan á íslenzkum hestum yfirleitt. ísl. hestar eiga að koma hingað seinni ihluta sumars (ág. — aapf-), þegar þeir eru komnir i góð hold, Eg hefi sé hesta koma hingað um miðjan vetur eða snemma vors.í svo slæmu st.andi, að þeir fældu strax frá sér kaupeudurna. Þar við bætist svo, að um það leyti árs verður að gefa hestunum inni, þang- að til þeir seljast, og hefir það mikinn kostn- að í för með sér, og auk þess verða þeir hæg- lega veikir, þegar þeir í fyrstunni koma ekki daglega undir bert loft. Eins og skilst, af því, sem sagt hefir verið, þarfnast danskir smábændur miklu fieiri smárra hesta en Island getur flutt út nú semstendur; þar af leiðir þó ekki, að vér getum nú notað alia eða nándar nærri alla hesta, sem íslend- ingar selja úr iandinu. Það eru sem só all- margir hestar, sem of litlir eru handa oss. En vér getum notfært oss mjög rharga. ef vér get- um fengið þá nógu stóra (altað 54 þumli) og sterka. Eyrir slíka hesta getum vér boðið hátt verð og haft hagnað af. Um vekringa gefa menn ekki hér; skeið- hestar seljast miklu ver en klárhestar, þótt þeir að öðru leyti séu klárhestunum engu síðri. Af framförum landbúnaðarins íslenzka mun að öllum líkindum leiða meðal annars, að hest- unum verði séð fyrir meira og betra fóðri, en af þvf leiðir aftur, að hestakynið stækkar; hins vegar hefi eg heyrt þvi fleygt, að hugsað væri til að blauda kynið með norskum vesturlands- hestum á þeim stöðum, þar sem bezt er til heyfanga og beitar og mun í þeasu lýsa sér ósk nm stækkun kynsins. Og ef á annað borð á að nota útlenda hesta til kyubóta, virðist mér sjálfsagt að nota norska vesturlandshesta. Því stærri sem ísl. hestar verða, þeim mun betur gengur að fá Dani til að kaupa þá og brúka og sérhver viðleitni frá íslendinga hálfu til þess að ná þessu takmarki,, mun gleðja alla þá, sem vinna að því að koma íslenzkum hest- um a danskan markað og þá ekki sízt undir- ritaðan. Svend Larsen, dýralæknir. Nýjar ræktunaraðferðir. Eftir Pál H. Jónsson á Stóruvöllum. Mig langar til að gera ræktunarmálið að umtalsefni, og fara nokkrum orðum um reynslu mína áhrærandi ofanafristu á sléttu vallendi, og um að rækta með útlendum áburði. I minum augum er jarðræktin, einkum þó grasræktin, stærsta framtíðar-atriði þessa lands, og ekkert, sem muni betur styðja að því að hefja þjóðina og gera hana sjálfstæða i efna- legu tiiliti; ber því að leggja alla st.und á að rækta iandið, og með engu móti sýna menn ljósar „ættjarðarástina" en með því að „leggja hönd á plóginn11 til þess að auka gróður lands- ins, auka og bæta ræktaða landið, þ. e. túnin okkar. En á rheðan margt af beztu mönnum þjóðarinnar eru svo sinnaðir, að þeir meta meira, að st.anda við búðarborðið og krækja sér i lé- leg embætti, en að helga laudbúnaðinum krafta sina, er lítilla framfara að vænta.- Þjóðin verð- ur að finna og skiija, hvað beri að gera iand-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.