Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1907, Síða 11

Freyr - 01.06.1907, Síða 11
FBEYE. 83 In'in er ill, vanþrífast þau, en ef hún er góð, er hún öflugur þáttur, er styður að þrifum og vel- liðun búfjárins. Hesthúsin eru víða þröng, lág, myrk og loftvond hér á iandi, ekki með dyraumbúnaði fyrir heystæði, svo heita loftið streymir sí- felt þangað inn og skemmir heyið, en orsakar dragsúg um útidyrnar, svo gólfið frýs í frost- hríðum og snjór fýkur inn og bleýtir gólfið ogsaurindi hestanna þegar þiðnar, en myndar stækju svo loftið verður fúlt, einkanlega þar sem húsin eru sjaldan mokuð. Þó til séu undatekningar frá þessu sumstaðar, eru þannig löguð hesthús því miður alt of víða. Ekki j>arf að taka til mörg dæmi til að sýna þetta. Hið óholla stækjuloft, sem hestarnir anda að sér truflar efnaskifti blóðsins, orsakir brjóst- veiki, augnaveiki o. fl. En saurforin á gólfinu, sem hestarnir standa í, aflagar hófana, gerir þá meýra og lina, en hestarnir verða sárfættir og fótaveikir. Þegar hestarnir liggja, skitna þeir mjög á kvið og síðuuj, en það hefir ill áhrif á húðgufunina, og er orsökin til hörunds- kvilla, hármissis o. fl. vanþrifa. Haganleg og velbygð hesthús, sem eru björt, há, rúmleg, með sérskildum bás og jötu handa þyerjum hesti, með fóðurgangi og flór- rennu, aem mokuð er á hverjum degi, er hafa vandaða dyrabúnaði fyrir heystæði og útidyr- um o. s. fr., þau sporna móti áðurtöldum kvill- um, og styðja þrif og vellíðan hestanna. Ejósin hafa allviða verið endurbætt á síð- astliðnum árum, en þó finnast mörg fjós enn, sem eru myrk og loftvond, sum of heit og önnur of köld. Væntanlega verða fjósin endur- bætt alstaðar á landinu samhliða rautgripa- ræktinni, auðvitað þar fyrst, er bændur hafa stofnað félag til kynbóta og betri meðferðar á mjólkurkúm. Yíða erlendis er fjósabyggingu hagað þann- ig, að töðuhlaðan er bygð úr timbri ofan á fjós- inu, sem er upphleyptur steinlímdur kjallari. Ofan á hann eru undirlagstré og gólfbitar hlöð- unnar lagðir. Gólfið er haft úr tvöföldura sterkum borðum eða hálfplönkum með beton- steypu á milli. Venjulega snýr húsið öðrum stafni að hæð eða brekku, þannig að aka má heyvagninum inn á loft hlöðunnar og kasta heyinu út af til beggja hliða í hlöðuna. Stærð fjóssins fer eftir nautaíjölda, og breidd eftir því, hvort það er einstæðu eða tvistæðu fjós. I tvístæðufjósi eru fóðurgangar meðfram veggjunum og snúa nautin höfðuuum að þeim. Elórar eru tveir og gangtröð á milli úr sem- entsteypu, lítið eitt ávöl að ofan. Básgólf og flórar eru höfð úr sama efni, og er flái nálægt einn móti einum á þeirri hlið flórsius, sem að básnum veit, svo kýrnar skriki á honum og standi síður niðrí flórnum. Veggir eru venju- lega hvítkalkaðir að innan, nál. 3'/2 alin á hæð, raeð hæfilega mörgum og stórum gluggum, svo hvergi beri skngga á. Tré-tremlar eru hafðir í einu rúðustæði á sumum gluggunum, er opna má og loka, til að hleypa lofti út og inn. Vatnsveita er í fjósið; jötur sópaðar og nautunum vatnað í þeim. A vissum tímura er alt í fjósinu þvegið og fágað í kalkvatni, t. d. t.visvar í mánuði. I flórinn eru borin bind- andi efni, er sjúga í sig þvagið, svo eigi mynd- ist keitustækja; er loftið þá jafnan hreint og bæfi- lega heitt í fjósinu. Saurnum er mokað og ek- ið á málum í áburðarhúsið, sem er fast við fjósið. Yfir höfuð er öllum hreinlætisreglum fylgt mjög stranglega. Kýrnar kemdar og burstaðar á málum og þvegnar, efþörf gjörist. Veggir eru einu sinni og tvisvar dregnir yfir á ári með kalkmáli og þvegnir, þegar þörf gjör- ist, úr kalkvatni. 011 .réáhöld eru iðulega þvegin, er heyra til fjósinu, einnig úr kalkvatni. Vitanlega geta fjós verið bygð með minni kostnaði en hér er sagt, svo allgóð megi kalla, en allajafnan ber hverjum bónda að hafa það hug- fast, þegar hann byggir fjós, að vanda fyrirkorau- lag og byggingu þess sem allra bezt, eins og það væri viðhafnarstofan hans. JÞóihanavantaði legu- bekk eða dýrindis gólfábreiðu, gerði minna til, ef alt væri í góðu lagi i fjósinu. Þegar þess er gætt, hversu arðsamar og hraustar skepnur góðar mjólkurkýr eru, þegar fóðrið er gott og ijósin góð, og þess hinsveg- ar hversu arðlausar kýr eru, þó vel séu fóðr- aðar, ef fjósin eru vond, og hversu kýrnar þá eru óhraustar og kvillasamar, að þær naumast borga fóður sitt,— þá fyrst er það ljósthversu afarnauðsynlegt það er, að hafa fjósin vönduð og vel útbúin.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.