Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1915, Page 8

Freyr - 01.01.1915, Page 8
2 FREYE. s. frv. — Jafnframt eykst og stöðugt tala þeirra, bæði hér og annarsstaðar, sem ganga mentaveginn, sem kallað er. Allir skólar full- ir, hverju nafni sem nefnast, og hvernig sem árar, og þá eigi sízt þeir skólarnir, sem veita von um stöðu að loknu námi. Sem dæmi um aðsóknina að skólunum skal þess getið, að síð- astliðinn vetur (veturinn 1913—’14) voru á Mentaskólanum 144 nemendur, þar af um 30 stúlkur, á Háskólanum 57, og aukþessSO —40 á báskólanum í Kaupmannahöfn. Ennfremur voru rúmir 100 nemendur á Akureyrarskólan. um, 60—70 á Kennaraskólanum, 100 á Kvenna- skólanum í Reykjavík o. s. frv. — Hvar lend- ir þetta? I bæjum og kaupstöðum er jafnan tiltölu- lega ffeira af fólki, er ekki vinnur likamlegt erfiði, en til sveita. Af íbúum Kaupmannahafn- ar voru árið 1901: Framleiðendur............20,4% Eramleiðsluaðstoðendur. . 22,0% Samtals 42,4°/0 Hinir sem ekki voru taldir að vera fram- leiðendur, börn, gamalmenni, embættismenn, skrifstofuþjónar o. fl., voru 54,6% af íbúum bæj- arins. Auk þessa nálægt 3% af borgarbúum, er lifðu á eignum sínum. (W. Scharling: Sam- fundets Produktion, I. bls. 59—61). Þegar miðað var við landið í heild sinni, nam hlutfallstala þeirra, sem taldir eru í fram- leiðsluflokknum, 28,6% °g framleiðsluaðstoð- endur 12,1% eða samíals 40,7%. Samkvæmt þessu voru það aðeins % hlut- ar dönsku þjóðarinnar 1901, er unnu að fram- leiðslu í landinu. Hugsað get eg, að ástandið hér á landi muni vera eitthvað svipað þessu. Eftir mann- talinu frá 1910 er hlufallstala framfærenda 51,2%, en framfœrðra að nokkru eða öllu 48,8%- En við það er að athuga, að í tölu framfærenda eru taldir allir þeir, sem eigafyr- ir sjálfum sér eða öðrum að sjá, þar á meðal embættismenn, skrifstofufólk o. fl. Ef þeir fram- færendur eru nú dregnir frá, er ekki vinna að1 neinni framleiðslu, mun láta nærri, að hlutfalls- tala þeirra, er teljast framleiðendur að nokkru eða öllu leyti, só nálægt 42°/0- Hór eru taldir þeir sem framleiða, og fram- leiðsluaðstoðendur. En í raun róttri eru hinir eiginlegu, réttu framleiðendur mun færri. Eftir maDntalsskýrslunum að dæma, munu þeir, sem vinna að landbúnaði og fisJciveiðum, bændur og verkamenn þeirra, og sjómenn á fiskiskipum — naumast vera fieiri en sem nemur s/10 hlut- um landsmanna, eða um 28%, miðað við tölu allra landsmanna i heild sinni. — Mikið má það nú vera, eí mönnum ekki bregður í brún, er þeir athuga þessar tölur. Sennilega gera fiestir sér hugmynd um, að þeir séu fleiri, sem vinna að framleiðslunni, en raun er á. Og um leið er eigi ólíklegt, að það vakni sú spurning, hvernig mundi nú fara, ef þeim fækkaði enn meir en orðið er? — Verður því nánar vikið að einstökum atriðum þessa máls, en farið fljótt yfir sögu. . III. Það er álitið, að áður fyr á tímum muni tiltölulega fleiri en nú á sér stað hafa unnið að framleiðslnstörfunum, en þó var minna fram- leitt. Astæðan til þess, að framleiðslan er meiri nú, liggur vitanlega i bættri jarðrækt, betri meðferð á skepnum, auknum fiskiveiðum, fullkomnari vinnutækjum og breyttri verka- skipun. Hins vegar hlýtur það jafnan að hafa veru- leg áhrif á kjör bænda og allrar alþýða, hvað margir taka verklegan hátt í framleiðslufyrir- tækjum þjóðarinnar. I>ví færri sem þeir eru í hlutfalli við hina, er ekki vinna, því meira verða þeir á sig að leggja. £>að er deginum ljósara. — Eyrsta og sjálfsagðasta skyldan er

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.