Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1915, Síða 10

Freyr - 01.01.1915, Síða 10
4 JFREYR. að í verzlun og viðskiftum sé mörgum manu- inum ofaukið. Þar er alt fult af óþörfum milli- liðum. iPeir gera ekki annað en að spilla við- skiftunum og hækka verðið. Arðurinn af þeim lendir í þeirra vasa. — Ónauðsynlegir millilið- ir í viðskiftalífinu, hverrar tegundar sem við- skiftin eru, verða því að álítast óeðlilegir, og í fjárhagslegu tilliti skaðlegir. V. Það hefir nú verið sýnt fram á það, hvern- ig arðurinn af vinnu þeirri, sem gengur til þess að framleiða úr skauti náttúrunnar gæði lífsins, skiítist á ýmsar hendur, og að jafnvel minstur hlutinn lendir á endanum hjá þeim, er mest hafa til matarins unnið. En þá er næst að athuga það, með hvaða hætti að auðið er að aikasta meiru en gert er og auka þannig fram- leiðsiuna. En ekki er þó unt hór að rekja það mál til hlitar. Eitt af því, er hér kemur til greina, er lega landsins og frjósemi jarðvegarins. Iköldu loftslagi er jarðyrkjutíminn styttri, jarðargróð- urinn takmarkaðri og uppskeran því minni. Hér á landi t. d. vex ekki korn, kaffi, sykur o. fl., og verðum vér því að kaupa það frá öðr- um löndum, og láta fyrir það afurðir okkar eig- in lands í einhverri mynd. Þar sem hér hagar nú svo til, að jarðyrkju- tíminn er stuttur, og nytjaplöntugróðurinn fá- skrúðugur, þá leiðir þar af, að nota verður tim- ann vel og kappkosta að afla sem mests at því, er landið gefur af sór. Vinna á meðan dagur er og láta sem mest eftir sig liggja, en gæta þess jafnframt, að gera sér vinnuna léttbæra. Menn eru misduglegir og misjafnlega kapps- fullir, og af því leiðir, að rneira liggur eftir einn en annan. En það, sem hér ræður þó mestu, er það, hvort menn eru verkséðir og verklagnir, og kunna að vinna. Sá sem kann að vinna afkastar meiru en hinn, er aldrei hef- ir lært það, að öðru jöfnu, og lýist seinna, Hjá þeim, sem lftið eða ekkert kunna til verkar þó þeir hafi horið þau við, fer margt handtak- ið til ónýtis. Þannig er til saga um mann, er þurfti 22 handtök og hreyfingar til þess að losa hnaus, sem hann var að stinga, og koma honum upp úr pælunni. Þetta dæmi sýnir, hvað menn geta verið ófyrirgefanlega fákunnandi og klaufalegir í handtökum sínum. Verklegri kunnáttu er því roiður mjög ábótavant hér á landi; það verður ekki út skaf- ið. En af því leiðir oft, að verkin ganga seint, endast illa og koma ekki að tilætluðum notum. — Það er því mikils um vert, og meira en margur hyggur, aö menn kunni að vinna. Það léttir þeim starfið, eykur gildi þess og veitir ánægju. VI. Notkun verkfæra og verkvéla létta vinn- una og stuðla að því, að meira er framleitt en ella. Hefir orðið mikil breyting í þessu efni á síðari árum, bæði hér og annarsstaðar. Þarf eigi annað því til sönnunar, en að minna á nokkur dæmi, er sýna breytingarnar, sem orð- ið hafa. í gamla daga möluðu menn alt sitt korn í handkvörn. Þetta á sér enn stað hér hjáoss,- en er ella fyrir löngu lagt niður hjáöllumöðr- um menningarþjóðum. Nú er það vatnið og vindurinn, sem malar kornið. — Áður fyr var öll ull spunnin á snœldu. Svo kom rokkurinn fram á sjónarsviðið, og er hann enn notaður víða. En útlit er samt fyrir, að spunavélarnar smátt og smátt riðji honum á braut. — Öll jarðyrkja var áður framkvæmd með handverk- færum, og þeim ófullkomnum, og tréplógnum, sera nú er fyrir löngu hætt að nota. í stað þess er nú járnplógurinn og önnur nýtísku jarð- yrkjuverkfæri að ryðja sér til rúms. Um samgöngufærin er hið sama að segja.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.