Freyr - 01.01.1915, Síða 19
FREIR.
13
hafa verið flutt út um eða yfir 5000 hross alls.
— Verð á tvævetrum og þrevetrum tryppum
var í haust, 80—100 kr. Og fullorðin hross,
óvalin, bæði hryssur og hestar seldust á 120
—150 kr.
Hætt er við, að hagur almennings sé nú
víða miður góður, og sjáifsagt mun lakari en
hann hefir verið undanfarin ár, eða frá því
fyrir aldamótin. Tjónið af skepnufellirnum í
vor, og afurðamissirinn af þeim fénaði sem lifði,
er stórfeldur. Það er enn órannsakað og verð-
ur líklega aldrei gert til hlýtar, hvað það tjón
nemur miklu. Sennilegt þætti mér, að þessi
skaði allur mundi reynast, ef öll kurl kæmu
til grafar, ettthvað á aðra miljón króna.
Ofan á þetta eignatjón bætast svo skuld-
irnar, sem farið hafa mjög í vöxt síðustu árin.
Og margir bændur urðu í vor að hleypa sér
í skuldir vegna fóðurbætiskaupa handa fénað-
inum, í því trausti að bjarga honum frá
fellir. En sú von brást mörgum, sem við var
að búast, eins og alt var í garðinn búið. —
Horfurnar eru því alt annað en góðar, og ham-
ingjan má vita, hvernig fer. En nauðsynlegt
er bændum nú, að gæta allrar varúðar i hví-
vetna, og sýna hyggindi þau sem í hag koma.
Meðal annars þetta, að setja gætilega á vetur,
og fara vel með skepnurnar, svo að þær geri
sem mest gagn.
Þrátt fyrir alt, var þó töluvert unnið að
jarðabótum þetta ár. Og sérstaklega er vert
að geta þess, að komið var upp og lokið við
nokkrar stærri samgirðingar. Á sumum þeirra
var byrjað áður, en flestar þeirra voru þó gerð-
ar í ár. — Af stærri samgirðingum skal eg
nefna:
1. í Svínavatnshreppi í Húnavatnssýslu. Afrétt-
argirðing, um 18710 metra á lengd.
2. í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Girðing milli
túna og bithaga, um 17700 metra.
3. í Selvogi í Árnessýslu. Afréttar og hagagirð-
ing um 15000 metra.
4. í Laugardal í Árnessýslu. Girðing milli engja
og beitilanda, um 14725 metra.
5. Í Aðaldal í S.-Þing. Afréttargirðing á
Hvammsheiði 13685 metra.
6. í Mývatnssveit í S.-Þing. Afréttargirðing, um
11375 metra.
Auk þessara girðinga er hér hafa verið
nefndar, er enn verið að gera tvær samgirð-
ingar í S.-Þing., sem komnar eru langt á veg,
að minsta kosti önnur þeirra. Þessar girðing-
ar eru, önnur í Ljósavatnshreppi, — Kinnínni
— og er um 13200 metra. Hin er á Tjörnesi,
og er um 28000 metra.
Til allra þessara samgirðinga hefir verið
veitt lán úr Ræktunarsjóði Islands.
í sumar voru gerðar á ný mælingar í Fló-
anum, til rannsóknar og undirbúnings hinni
fyrirhuguðu Elóaáveitu. Var byrjað á þeim
um 10. júni, og lokið við þær nálægt 20. okt.
Mælingarnar gerði Jón verkfræðingur ísleifs-
son, undir yfirumsjón Jóns verkfræðings Þor-
lákssonar.
Smjörbúin sem störfuðu þetta ár, voru 26
alls. Hefir þeim fækkað síðustu árin. Við
árslokin 1912, lögðust 2 bú niður, Reykjadals-
búið i S.-Þing. og Kerlækjarbúið í Snæfn. —-
I vor var Geirsárbúið í Borgarfirði lagt niður.
Þetta bú, sem stofnað var og tók til starfa
1904, gekk vel fyrstu árin, en svo fór þvi smá-
hnignandi þar til í vor, að það sofnaði. Eyrsta
starfsár þess, var flutt út frá því um 15400 pd.
af smjöri.
Auk þessara þriggja búa, sem lögð eru
niður, gengu ekki í sumar önnur þrjú, sem þó
má telja lifandi. Það eru Eramtíðin í Skaga-
firði, Landmannabúið í Rangárvallasýslu og
Laxárbakkabúið í Borgarfjarðarsýslu. Ástæðan
til þess, að þau héldu kyrru fyrir, mun hafa