Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1930, Side 7

Freyr - 01.03.1930, Side 7
FREYR 35 hluta, sem svo aftur myndi samband fyrir alt landið. b. Húsmæðrafræðslan sé eitt af aðai- stefnumálum þessa lands-sambands. Vinni það að umferðakenslu fyrir húsmæður og sé ríkisstj órninni til ráðuneytis og aðstoðar um þau mál. Enda sé því veittur hæfilegur styrk- ur úr ríkissjóði. c. Til undirbúnings og stofnunar slíks félagsskapar heimilast Búnaðarfélagi íslands að verja alt að 1500 kr. hvort árið 1929 og 1930.. Enda sé skipulag það, er um getur undir tölulið 2 a komið á fót í síðasta lagi 1930“. Samþ. með 12 samhlj. atkv. 3. „Búnaðarþingið samþykkir, að veita 3000 kr. til húsmæðrafræðslu og garð- ræktar, hvort árið 1929 og 1930“. Samþ. með 12 samhlj. atkv. Þessi viðaukatillaga við 3. lið kom fram, á þskj. 455, frá húsmæðrafræðslu-nefnd- inni: „Gegn jafn miklu tillagi annarsstaðar frá. — Landsfundarnefndinni sé falin þessi starfsemi á yfirstandandi ári, en verði kvenna-landssamband myndað 1930, fær það féð til umráða“. Samþ. með 11 samhlj. atkv. Ennfremur kom fram þessi tillaga, á þskj. 454, frá húsmæðrafræðslu-nefndinni: „Búnaðarþingið lýsir yfir, að það er fúst til að styrkja að því, að kensluskóli fyrir konur, sem kenna eiga húsmæðra- fræðslu, verði komið á fót t. d. með því að gefa land og hús Búnaðarfélagsins í Gróðrarstöðinni, þá starfsemi þess er þar lokið, og þá trygt er fé af ríkissjóði til starfrækslu skólans framvegis". Vísað til stjórnar Búnaðarfélags íslands með 12 samhlj. atkv. Nefnd sú, er Búnaðarfélagið hafði skip- að til að athuga húsmæðrafræðslumálið hélt nú áfram starfsemi sinni, og eftir að hafa leitað til hinna ýmsu kvenféiaga- sambanda, og þau tjáð sig fús til að stuðla að því að stofna landsfélag og senda full- trúa á stofnfund slíks félagsskapar, samdi refndin frumvarp til laga fyrir slíkan félagsskap og ákvað stofnfund félagsins. Þessi fundur var svo háður í Reykjavík dagana 21. jan. til 2. febr. 1930. Á fundinum mættu þessir fulltrúar: Frú Guðrún J. Briem, Reykjavík. Frú Ragnhildur Pétursdóttir, Reykjavík. Frk. Halldóra Bjarnadóttir, Reykjavík. Frú Guðrún Pétursdóttir, Reykjavík. Frk. Inga Lára Lárusdóttir, Reykjavík. Frk. Laufey Valdimarsdóttir, Reykjavík. Frú Kristín Vídalín Jakobsen, Reykjavík. Frú Steinunn Bjarnason, Reykjavík. Frú Kristín Jósafatsdóttir, Blikastöðum. Frú Stefanía Thorarensen, Hróarsholti. Frú Rósa Kristjánsdóttir, ísafirði. Frú Jóninna Sigurðardóttir, Lækjamóti. Frú Amilía Sigurðardóttir, Víðivöllum. Frk. Jóninna Sigurðardóttir,Akureyri. Frú Kristbjörg Marteinsdóttir, Ysafelli. Frú Margrét Friðriksdóttir, Seyðisfirði. Frú Sigurbjörg Bogadóttir, Heydölum. Frú Oddný Vigfúsdóttir, Borgarnesi. Frú Sigrún Stefánsdóttir, Borgarneci. Á fundinum var stofnað „Kvenfélaga- samband íslands“. Lög þess hljóða svo: Lög fyrir Kvenfélagasamband Islands. 1. gr. Félagið heitir Kvenfélagasamband ís- lands. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. I. Tilgangur félagsins. 2. gr. Tilgangur félagsins er: a.. Að efla húsmæðrafræðslu og heimilis-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.