Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1930, Blaðsíða 10

Freyr - 01.03.1930, Blaðsíða 10
38 FRE YR ins og semur skrár yfir þær og verðmæti þeirra við árslok. Hann undirbýr stjórn- arfundi og boðar til þeirra þegar honum þykir þess þörf. 10. gr. Forseti stjórnar Landsþingi kvenna og ber ábyrgð á að ályktunum þess sé fylgt. ITann skal og leggja fyrir þingið: a. Skýrslu um störf sambandsins. b. Reikninga sambandsins. c. Tillögur frá sambandsfundum. d. Tillögur stjórnar og starfsmana um hvernig störfum þess skuli hagað næsta ár. e. Áætlun um tekjur og gjöld sam- bandsins. 11. gr. Gjaldkeri sambandsins skal færa alla reikninga þess, og hefir sjóð þess í vörsl- um sínum. Hann annast allar greiðslur að fyrirlagi eða eftir ávísun forseta, svo og allar innheimtur, og færir til reiknings eftir þeim reglum, sem um það eru settar. 12. gr. Þegar stjórn sambandsins tekur á- kvarðanir um málefni, sem einhver starfs- manna þess hefir aðallega með höndum, skal leita tillagna hans í málinu. 13. gr. Endurskoðendur skulu árlega rannsaka reikninga Kvenfélagasambandsins, skoða sjóði þess og öll eignaskírteini og rita á reikningana vottorð þar að lútandi, ásamt athugasemdum. Athugasemdum þeirra skal svarað af þeim, er hlut eiga að máli, og skulu endurskoðendur síðan gera til- lögur til úrskurðar, er lagðar verða fyrir I.andsþing kvenna. 14. gr. Nú telur forseti og meðstjórnendur þörf á að eitthvert félagsmálefni fái sérstak- an undirbúning, rannsókn eða úrskurð, og geta þeir þá skipað nefnd hæfra manna til þess. 15. gr. Kvenfélagasamband Islands skal eiga fastasjóð, sem ávaxta skal í jarðræktar- bréfum Ræktunarsjóðs Islands. % vaxt- anna leggist við höfuðstólinn en 3/4 iegg- ist við árstekjur félagsins. I fastasjóð skal leggja skilyrðislausar gjafir er félaginu hlotnast. Semja skal skipulagsskrá fyrir sjóð þennan. 16. gr. Lögum þessum má breyta á Landsþingi kvenna, en til þess þarf minst 3/4 hluta atkvæða allra mættra fulltrúa á því þingi. 17. gr. Lög þessi voru samþykt á stofnfundi Kvenfélagasambands íslands, hinn 1. fe- brúar 1930, og öðlast gildi nú þegar. Á fundinum voru skipaðar nefndir til að gera tillögur um aðalverkefni félags- ins, en þau eru: 1. Húsmæðrafræðsla og handavinna í barnaskólum. 2. Heimilisiðnaður. 3. Umferðakensla í heimilisiðnaði. 4. Ilúsmæðraskólar. Allar nefndimar skiluðu ítarlegum álit- um. Tillögur þær, sem samþyktar voru, eru þessar: 1. Um húsmæðrafræðslu og handavinnu í barnaskólum voru samþyktar þessar til- lögur: „Nefndin leggur til að fundurinn skori á fræðslumálastjóm landsins að hlutast

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.