Freyr - 01.03.1930, Síða 11
FREYR
39
til um að lögboðin verði þegar á þessu
Alþingi kensla í handavinnu og mat-
reiðslu, sem skjddunámsgreinar í öllum
barnaskóium landsins og í fræðsluhéruð-
unum líka, að svo miklu leyti sem unt er“.
Handavinna.
Nefndin leggur til að handavinna verði
kend 2 stundir á viku í öllum deildum
skólanna, bæði drengjum og stúlkum, og
að samin verði reglugerð, er gildi fyrir
alla fastaskóla landsins, þar sem ákveðið
sé, h v a ð sé kent í skólunum og hvað
kenna skuli í hverri deild skólans. Einnig
sé þar ákveðið um umferðakenslu í handa-
vinnu í öllum sveitum landsins.
Matreiðsla,
Nefndin leggur til, að matreiðsla verði
kend í öllum fastaskólum landsins stúlku-
bömum á aldrinum 12—14 ára, og gerir
nefndin ráð fyrir 4 stunda kenslu á viku.
Umferðakensla fer einnig fram í þessum
efnum i fræðsluhéruðunum. Með reglu-
gerð skal ákveðið, hvað kenna skuli í
matreiðslu, bæði í verklegum og bóklegum
efnum.
2. Um heimilisiðnað voru samþyktar
þessar tillögur:
Að Kvenfélagasamband íslands ráði svo
fljótt sem það sér sér fært konur í þjón-
nstu sína, er leiðbeini í heimilisiðnaði
bæði í heimahúsum þar sem þess væri
óskað, og með námsskeiðum þar sem því
verði við komið. Konur þessar hafi með
sér fyrirmyndir að velunnum heimilisiðn-
aði til leiðbeiningar.
Ennfremur felur fundurinn stjóm fé-
lagsins að rannsaka möguleika fyrir því
að félagið komi upp útsölu á heimilisiðn-
aði, og leggi fram tillögur um það fyrir
næsta landsþing kvenna.
3. Um umferðakenslu voru þessar til-
lögur samþyktar:
Að stjórn Kvenfélagasambands íslands
verði falið að útvega nægilegt fé svo fé-
lagið sjái sér fært að ráða á næstu árum
4 konur er hafi á hendi umferðakenslu í
matreiðslu, og 8 konur er Ieiðbeini í
garðyrkju.
Félagið setji reglur um fyrirkomulag
kenslunnar. Útvegi nauðsynleg kensluá-
höld og sjái um útgáfu leiðbeinandi smá-
rita.
4. Um húsmæðraskóla voru samþyktar
þessar tillögur:
Samkvæmt yfirlýstum vilja Búnaðar-
þingsins, að það sé fúst til að styrkja
kenslukvennaskóla (þingsk. 454 frá hús-
mæðraskólanefndinni) væntum við alis
góðs styrks frá þeim í þessu efni og' von-
um að það sjái sér fært að afhenda Kven-
félagasambandi Íslands hús og lóð félags-
ins í Gróðrarstöðinni til umráða.
II. Tillaga.
Vegna þess að nefndin getur ekki í
skjótri svipan gert alla þá rannsókn sem
nauðsynlegt er til þess að byggja hús-
mæðraskólamálið á traustum grunni, né
heldur gert áætlanir um kostnað, starf-
lækslu, kenslufyrirkomulag og alt annað
sem hér kemur til greina, leggur hún til
að fundurinn kjósi sérstaka nefnd í málið,
og skal sú nefnd framkvæma allar nauð-
synlegar rannsóknir og gera ítarlegar til-
lögur um húsmæðrafræðslukerfið, og fá
fulla vissu fyrir hvern stuðning Búnaðar-
félagið mundi vilja veita til um stofnun
kenslukvennaskóla, svo og semja reglu-
gjörð fyrir hinn væntanlega skóla, sem
lögð væri fyrir Alþingi 1931.
Að síðustu var kosin stjórn Kvenfélaga-
sambands íslands. Hana skipa:
Frú RagnhildurPétursdóttir (form.),
Frú Guðrún J. Briem,
Frú Guðrún Pétursdóttir.