Einherji - 28.02.1967, Qupperneq 3
I*i'iðjudagur 28. febrúar 1967.
EINHERJI
3
30. Til verklegra framkvæmda:
a. ibamaskóli, nýbygging ................... 400.000
b. gagnfræðaskóli — 400.000
d. ráðhús — 500.000
e. sjúkrahús — 500.000
f. íþróttamannvirki (sundl. og íþróttav.) 1.000.000
g. nýbygging vega ......................... 800.000
31. Afborganir skulda:
a. atv.tr.sj. og tr.st. ríkisins ........ 1.750.000
b. afb. vegna hafnarsjóðs ................. 400.000
d. afb. vegna sjúkrahússbyggingar ......... 400.000
e. Útvegsbanki Islsands, víxilskuld ........ 150.000
f. afb. annarra lána ....................... 966.500
32. Vinna við þjóðveg (Hvanneyrarbr.) ...... 1.500.000
33. Ýmislegt og ófyrirséð .................. 410.000
27.419.000
ÚTSVÖR I SIGLUFIRÐI
1 fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs Siglufjarðar 1967 eru
útsvör áætluð 20 millj. kr.
Árið 1966 voru útsvörin á-
ætluð 16 millj. 850 þús. kr.
Hækkun <er því 3 millj. 150
þús. 'kr., eða um 18.7%.
Áætluð útsvör á fjárhags-
áætlun 1966 voru 16 millj.
850 þús. kr., en álögð útsvör
1966 reyndust hins vegar 12
millj. 430 þús. kr. Vantaði þá
kr. 4 millj. og 420 þús., eða
26.25% upp á að fjárhags-
áætlun næðist.
Úr jöfnunarsjóði fékkst
sem aukaframlag 1966, kr.
2 millj. og 800 þús., eða
63.33% af því sem á vantaði
að áætluð útsvarsupphæð
stæðist.
Voru þá eftir kr. 1 millj.
og 620 þús., sem alveg vant-
ar fyrir árið 1966. Hvernig
raunveruleiki ársins 1967
verður, skal ekikert fullyrt,
en fljótt á litið er ekki ólík-
legt að mismunur áætlaðra
útsvara og álagðra verði
kringum 5 millj. kr., sem þá
verður að fást sem auka-
framlag úr Jöfnunarsjóði
eða og á annan hátt ef ekki
á að verða gat í fjárhagsá-
ætlunina eins og 1966.
Álögð útsvör og aðstöðu-
gjöld 1966 voru kr. 14 millj.
884 þús. Greitt á árinu kr.
12 millj. og 5 þús., eða um
80.7%. Áuk þess innheimt-
ust á árinu 1966 kr. 1 millj.
og 642 þús. af eldri útsvör-
um og aðstöðugjöldum.
Fjárhagsáættun Vatnsveítu Siglu-
fjarðar 19G7
TEKJUR:
1. Vatnssala (skip og starfræksla) ........ 485.000
2. Vatnsskattur (hús og bílar) ............ 325.000
3. Framlag bæjarsjóðs vegna halla ......... 300.000
4. Lántaka (ætlað til endurbyggingar) ..... 2.000.000
3.110.000
GJÖLD:
1. Stjórn Vatnsveitu ........................ 325.000
2. Viðhald og endurbætur .................. 2.305.000
3. Rekstur dælustöðvar ................... 94.000
4. Afborganir skulda og vextir .............. 376.000
3.110.000
VATNSVEITAN
Á undanförnum árum
hafa fulltrúar Framsóknar-
manna í bæjirstjórn Siglu-
fjarðar bent á að óhjákvæmi
legt væri að endurbyggja
hluta vatnsveitukerfisins. Og
nú er svo komið, að þessu
verður ekki lengur skotið á
frest, því ástand vatnsveitu-
kerfisins er nú þannig, að
endurbygging verður að fara
fram á þessu ári. Því hefur
verið tekinn nýr liður inn á
fjárhagsáætlun vatnsveitu,
að upphæð 2 millj. kr. lán-
taka í þessu skyni, sem á að
fara til endurbyggingar.
Þessu máh verður að
fylgja eftir og framkvæmdir
að hef jast með vorinu.
Fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs Siglu-
fjarðar 1967
TEKJUR:
1. Hafnargjöld ............................... 1.860.000
2. Söltunarstöðvar (3) og bátastöð ........... 420.000
3. Hafnarbryggja (leiga olíufélaga) ............ 45.000
4. Vöruhús og kolaport ........................ 60.000
5. Dráttarbraut ................................ 20.000
6. Bílavogir .................................... 40.000
7. Hafnarkrani, leiga ......................... 500.000
8. Lóðagjald SR ................................. 6.500
9. Afborgun af láni frá ibæjarsjóði ........... 400.000
10. Ríkissjóðsframl. (skv. fjárlögum 1967) .... 400.000
11. Lántaka og eða framl. úr hafnarbótasjóði
vegna dýpkunar í höfninni og endurbóta
á bátastöð ............................... 2.220.000
12. Lántaka vegna dráttarbrautar ............. 4.500.000
10.471.500
GJÖLD:
1. Stjórn hafnarinnar ........................ 576.000
2. Hafnarbryggja og öldubrjótur .............. 232.000
3. Vöruhús og kolaport ....................... 102.000
4. Dráttarbraut ............................... 21.500
5. Bílavogir .................................. 39.000
6. Hafnarkrani ............................... 424.000
7. Vitarnir ................................... 67.000
8. Afborganir og vextir .................... 1.550.000
9. Til hlutabréfakaupa (í síldarfl.skipi) .... 225.000
10. Söltunarstöðvar og bátastöð ............... 440.000
11. Uppsátur trillubáta ........................ 70.000
12. Dýpkun í höfninni ....................... 2.000.000
13. Dráttarbraut (ef tilskildar heimildir og
lán fást ................................. 4.500.000
14. Óráðstafað framkvæmdafé ................... 175.000
10.471.500
Sæluvika
Skagfirðinga
Sæluvikan 1967 hefst á
Sauðárkróki, sunnudagiim 9.
apríl, og verður í átta daga,
eins og venja er. Undirbún-
ingur er nú hafinn fyrir
nokkru, en dagskrá vikunn-
ar verður fjölbreytt að
vanda.
Leikfélag Sauðárkróks sýn
ir skopleikinn „Hve gott og
fagurt“,eftir Somerset Maug-
ham, leikstjóri verður Kári
Jónsson.
Kvenfélag Sauðárkróks
sýnir gamanleikinn „Deleri-
um Búbónis", eftir bræðurna
Jónas og Jón Múla Árna-
syni.
Kórsöngur verður að
vanda, og munu 3 karlakór-
ar koma fram. Sauðárkróks-
b£ó sýnir úrvals myndir alla
daga sæluvikunnar.
Dansleikir verða 6 kvöld
vilcunnar.
Sjálfsagt verða fleiri
skemmtiatriði á boðstólum
en nú er vitað um, en stefnt
er að því að vanda sem bezt
allt það er fram fer.
Félagsheimilið Bifröst sér
um framkvæmd sæluvikunn-
ar nú sem fyrr. — St. G.
Síldarflutningar
FBAMHALD AF 1. SÍÐU
gjaldalið 90 í f járhagsáætlun
bæjarsjóðs fyrir árið 1967.“
Samþ. 5 atkv.
DÝPKUN I HÖFNINNI
I fjárhagsáætlun bafnar-
sjóðs eru áætlaðar 2 millj.
króna til dýpkunar í höfn-
inni. Hafnarnefnd og bæjar-
stjórn 'hafa samþ. eftirfar-
andi:
„Hafnarnefnd samþ. að
taka nú þegar upp viðræður
við eigendur uppmoksturs-
skipsins ,,Björninn“ um, að
þeir taki að sér uppmokstur
í höfninni, þann hluta, sem
við kemur hafnarsjóði, svo
að hin stærri síldveiðiskip
komist hindrunarlaust um
höfnina. Verkið verði unnið
í ákvæðisvinnu.“
FjárSiagsáætlun Rafveitu Siglu-
fjarðar 1967
TEKJUR:
1. Raforka og mælaleiga í Siglufirði ..... 7.792.000
2. Raforka til Ra rík..................... 1.000.000
3. Heimtaugagjöld og húsaleiga ........... 70.000
4. Tekjur af Fd-26 ....................... 250.000
5. Tekjur af jarðeignum .................. 50.000
9.162.000
-e söluskattur ........................... 544.000
8.618.000
GJÖLD:
1. Skrifstofan, yfirstjórn ..................... 770.000
2. Rafmagnseftirlitið .......................... 260.000
3. Vextir og kostnaður af lánum ................ 760.000
4. Ýmis kostnaður .............................. 250.000
5. Föst lán, afborganir ...................... 1.267.000
6. Önnur lán ................................... 847.000
7. Verðjöfnunargj............................... 550.000
8. Rekstur fasteigna og véla.................... 270.000
9. Efniskaup ................................... 500.000
10. Bæjarkerfið ............................... 1.100.000
11. Skeiðsfoss ................................ 1.690.000
12. Rekstur dieselvéla .......................... 354.000
8.618.000
Fréttir frá Sauðárkróki
Það ber að fagna því, að
hafnarnefnd og bæjarstjórn
hafa lýst yfir einhuga stuðn-
ingi sínum við það framtak
síldarsaltenda í Siglufirði, að
stofna hlutafélag til kaupa
og reksturs skips til flutn-
inga á síld til söltunar í
Siglufirði. Hafnarnefnd hef-
ur á raunhæfan hátt, stuðlað
að því að slíkur félagsskap-
ur yrði stofnaður með því að
leggja fram hlutafé upp á
225 þús. kr. Hér er um stór-
merka nýjung að ræða, stór-
mál, sem snertir ekki ein-
göngu síldarsaltendur og at-
vinnulíf í Siglufirði, heldur
og tekjur hafnarsjóðs og
bæjarsjóðs, því tekjur þess-
ara aðila af síldarsöltun hér
áður fyrr voru ekkert smá-
ræði. Þessu máli verður því
að veita alla fyrirgreiðslu og
það má ekki stöðvast.
Húnavakan
Húnavakan £ ár hefst ann-
an páslcadag. Margt verður
til fróðieiks og skemmtunar,
og er undirbúningur £ fuU-
um gangi.
Leikfélag Blönduóss æfir
nú sjónleikinn „Úifhildur",
eftir Pál Jónsson.
Karlakórinn Vökumenn æf-
ir gamanleikinn „Óboðinn
gestur“, eftir Svein Hall-
dórsson. Þá eru söngæfing-
ar hjá bóðum kórunum £
fullum gangi.
Ungmennasambandið verð
ur með s£na vinsælu Hús-
bændaviku.
Hijómsveitin „Sveitó“ mun
leika fyrir dansi á Húna-
vökunni. Hljómsveitarstjóri
er Gunnar Sigurðsson, bak-
ari á Blönduósi. Söngvari
er Baldur Valgeirsson.
Dagskrá Húnavökunnar
verður nánar auglýst siðar.
Fjárhagsáætlun Sauðár-
króksikaupstaðar var samþ.
við síðari umræðu í bæjar-
stjórn í janúarlok.
1 sambandi við endurskipu
lagningu bókhalds bæjarins,
var formi áætlunarinnar
breytt mjög verulega frá
fyrri árum. 'Eru nú gerðar
| glöggar sundurliðanir á flest
um þáttum útgjalda og enn-
fremur gengið frá fjárhags-
áætlunum fyrir bæjarfyrir-
tæki og sérskilda starfsemi.
Heildar teknaáætlun bæj-
arsjóðs með endurgreiðslum,
sem teknar eru til lækkunar
útgjaldaliða í áætluninni er
um 16 millj. og að auki lán-
tökur um 4.5 milljónir.
Af þessum upphæðum sam
anlögðum eru um 10.2 millj.
áætlaðar til margs konar
framkvæmda og eignabreyt-
inga.
Helztu beinir útgjaldaliðir
eru til félagsmála um 3.3
millj. þ.e. tryggingar, sjóða-
gjöld, sjúkrasamlag, styrkir,
framfærsla o.fl.. Þá er skipu-
lagsmál og gatnagerð um 2
millj. og auk þess áætlað á
eignabreytingareikningi á
móti sérstakri lántöku fram-
kvæmdir við olíumalarlögn
og malbik á götur fyrir um
3 millj.
Stjórn kaupstaðarins er á-
ætluð að kosti brúttó um 1.6
millj., löggæzla um 600 þús.,
menntamál 1350 þús., og heil
brigðis- og hreinlætismál um
650 þús., auk smærri liða.
Stærsta átakið, framkvæmd
á vegum bæjarins, er bygg-
ing gagnfræðaskólahúss, sem
áætlaðar eru 4 millj. kr. til á
árinu, og vatnsveitufram-
kvæmdir kr. 600 þús., hvort
itveggja mjög nauðsynlegar
framkvæmdir, sem verður að
hraða. Stórframkvæmdir í
varanlegri gatnagerð eru
bundnar áætlaðri lántöku
eins og áður getur, en slíkar
framkvæmdir verða minni
bæjarfélögin að gera í stærri
áföngum en unnt er að
greiða af sjálfsaflafé á einu
eða tveimur árum. Ennfrem-
ur er haldið áfram með fram
kvæmdir, s.s. byggingu sund-
laugar og bókhlöðuhúss og
ennfremur nokkur nýmæli.
Ákveðið er að bæjarskrif-
stofurnar flytji í vor í nýtt
húsnæði, í Búnaðarbanka-
FRAMHALD á 6. SÍÐU