Einherji - 22.07.1970, Qupperneq 7
Miðvikudagur 22. júlí 1970.
EINHERJI
7
Blikksmiðjan Voyur h. f„
Auðbrekku 65, Kópavogi
• Smíðum loftræsti- og lofthitakerfi, stór og smá.
® Útvegum eða seljum af lager alls konar tæki til-
heyrandi loftræsti- og lofthitakerfum.
® Framkvæmum alla algenga blikksmíði viðkomandi
húsbyggingum o. fl.
• Smíðum ýmsa hluti úr eir, áli, messing og járni eða
stáli.
Símar: Verkstjóri/Teiknistofa 40340
Skrifstofa 40341
Framkv.stjóri 40342
' FYRIR FERÐAMANNINN
í FERSTIKLU HVALFIRÐI
Heitir réttir:
Hamborgarar
Kjúklingar
Svínakótilettur
Franskar kartöflur
o. fl.
• KAFFI
• MJÖLK
e IS
• TÖBAK
• FERÐAVÖRUR
' BENZÍN, OLÍUR
SELJUM VEIÐILEYFI
LEIGJUM ÚT SAL FYRIR 100—150 MANNS
VEITIN G ASKÁ LINN
FERSTIKLU
SÍMI 93-2111
Húsmœður munið Vals-vörurnar: Sultu Sósulit
Ávaxtahlaup Edikssýru
Marmelaði Tómatsósu
Saftir ísSósur
Matarlit Búðinga
VALUR VANDAR VÖRUNA
Sendum um allt land.
VALUR S-':
Box 1313 — Sími 40795 — Reykjavík . ■ • ' ■ 1V • í ;• J
Gagnfræðaskéli
Siglufjarðar
Gagnfræðaskóla Siglufjarð-
ar var slitið þriðjudaginn 2.
júní s. 1. Skólastjórinn, Jó-
hann Jóhannsson, skýrði frá
störfum skólans, afhenti
verðlaun og ávarpaði að lok-
um nýútskrifaða gagnfræð-
inga og landsprófsnemendur.
8 fastir kennarar störfuðu
við skólann og 6 stundakenn-
arar. 172 nemendur voru í
skólanum, í 4 bekkjum en 9
bekkjardeildum. 170 nemend-
ur gengu undir próf. 11 nem-
endur gengu undir landspróf
miðskóla, og hlutu 6 þeirra
framhaldseinkunn. 37 nem-
endur gengu undir gagn-
fræðapróf. Hæstu einkunn á
gagnfræðaprófi hlaut Fanney
Jóna Þorsteinsdóttir, 8,46,
en í 3. bekk Inga Jóna Jóns-
dóttir, 8,46.
Á unglingaprófi hlaut Marí-
anna Jónasdóttir hæsta ein-
kunn, 9,22, en í 1. bekk
hlutu h'æstar einkunnir:
Hrafnhildur Tómasdóttir 9,12
Sigurður Pálmi Sigurðsson
9,23 og Jónas Guðmundsson
9,41, en það var jafnframt
hæsta einkunn skólans að
þessu sinni.
Við skólaslit hlutu nokkr-
ir nemendur verðlaun: Fann-
ey Jóna Þorsteinsdóttir frá
vestur-þýzka sambandslýð-
veldinu og Lionsbikarinn,
Oddný Ríkharðsdóttir frá
vestur-þýzka sambandslýð-
veldinu og frá Stúdentafélagi
Siglufjarðar, Selma Tómas-
dóttir frá vestur-þýzka sam-
bandslýðveldinu, Sturlaugur
Kristjánsson vélritunarbikar
Björns Dúasonar, Una Rögn-
valdsdóttir frá vestur-þýzka
sambandslýðveldinu, Hafliði
Helgi Jónsson úr minningar-
sjóði Odds Tryggvasonar,
Inga Jóna Jónsdóttir frá
danska sendiráðinu, Jónas
Guðmundsson og Sigurður
Pálmi Sígurðsson úr minn-
ingarsjóði Jóns Jóhannesson-
ar. Frá skólanum hlutu verð-
laun: Hrafnhildur Tómas-
dóttir og Sigurður Pálmi Sig-
urðsson.
Við skólaslit mættu 10 og
20 ára gagnfræðingar og
færðu skólanum gjafir. Frú
Jakobína Þorgeirsdóttir hafði
orð fyrir 20 ára gagnfræð-
ingum, en þeir færðu skól-
anum vandaða saumavél að
gjöf.
Steinar Baldursson talaði
af hálfu 10 ára gagnfræð-
inga, en þeir færðu skólan-
um ágætt kennslutæki, mynd
varpa. Skólastjóri þakkaði
ágætar gjafir, hlý orð og
vinarhug.
3. júní voru gagnfræðing-
ar, landsprófsnemendur og
fastir kennarar boðnir á
fund í Rótarýklúbbi Siglu-
fjarðar. Sigurjón Sæmunds-
son, prentsmiðjustjóri, á-
varpaði nemendur, en forseti
klúbbsins afhenti verðlaun
þeim nemendum, sem hæsta
einkunn höfðu hlotið í hverj-
um bekk.
Fanney Jóna Þorsteins-
dóttir, úr 4. bekk, þakkaði
af hálfu nemenda.