Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1940, Blaðsíða 7

Freyr - 01.08.1940, Blaðsíða 7
FRE YR 117 Áhrif framrœslunnar á rœtur jurtanna og þroska þeirra. í illa rœstum jarðvegi verða rœturnar að halda sig sem nœst yfirborði jarðar. í vel rœstum jarðvegi scekja þœr langt niður. að sú fyrirsögn sé á reynslu og tilrauna- rökum byggð. Við vitum, að framræsluþörfin er mis- munandi eftir jarðvegi, veðurfari og eftir því hvaða jurtir rækta skal. Við vitum ennfremur, að ísl. jarðvegur er um margt sérkennilegur og frábrugðinn jarðvegi ná- grannalandanna, ekki hvað minnst um það, hvernig hann tekur framræslu og hvernig hann hagar sér gagnvart sveifl- um vætu og þurrka. Hér verður því að hyggja mjög varlega á erlendum fram- ræslutilraunum. Innlendar framræslutilraunir eru engar til. Við verjum miljónum til þess að rækta land, sem þarfnast framræslu, án þess að vita hvernig eða hve mikið við eigum að ræsa það. Eyðum hundruðum þúsunda í óvissa framræslu, en tímum ekki að eyða fáeinum þúsundum í þær grundvall- artilraunir viðvíkjandi framræslu, sem ræktunin ætti og þarf að byggj- ast á. Hvernig stendur á þessu munu margir spyrja. Því gera tilraunastöðvarnar á Ak- ureyri og Sámsstöðum ekki nauðsynlegar tilraunir með framræslu? Því er til að svara, að tilraunastöðvarnar, með þeim takmörkuðu starfskröftum, sem þar er áskipað, eru ekki iðjulausar. Þar er gert það sem hægt er og jafnvel meira en það. Fjárframlög til tilraunastarfsemi stöðv- anna eru svo knöpp, að fátt eitt er hægt að gera af því, sem fyrir liggur og að- kallandi er. Einn maður við tilraunirnar á hverjum stað, auk margs annars, sem þessir menn hafa að sinna. Á þessu sviði

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.