Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1940, Blaðsíða 11

Freyr - 01.08.1940, Blaðsíða 11
FRE YR 121 gefa kartöflur, eins og sést á töfluliö II og III, en ekki telur Rochmann ráðlegt að hafa kartöflurnar meiri. í staðinn fyrir 100 grömm af harðbökuðu brauði koma 275 grömm kartöflur. Aðgæzluvert er, að fóðurblandan þarf að vera vel samfeld. Þunn fóðurblanda er yfirleitt talin ó- heppileg fyrir meltingu þessara dýra. Á töflulið III kemur refaostur og síldar- mjöl í stað nokkurs hluta af kjötinu. Þeir, sem ekki hafa verulega gott síldarmjöl geta sleppt því og notað í staðinn 5 grömm meira af ostinum. Á töflulið IV kemur fiskimjöl og aukinn mjólkurskammtur í staðinn fyrir allan nýja fiskinn og nokkurn hluta kjötsins. Hér er ætlast til, að fiskimjölið drekki svo mikið í sig af mjólkinni, að fóðrið verði samfellt sem áður. Rochmann gerir ráð fyrir, að 100 grömm af kjöti jafngildi 60 grömmum af refaosti, en þá miðar hann við ost, sem hefir nokkru minna þurrefni en ostur sá, sem Atvinnu- deild Háskólans rannsakaði í vetur frá Mjólkursamlagi Borgfirðinga. Hins vegar má búast við, að refaostur frá mjólkur- búum landsins verði lítið eitt mismunandi að þurrefna innihaldi, og því ekki annað fyrir hendi en að miða við þau hlutföll, sem Rochmann tiltekur. Eins og áður er tekið fram, eiga töflurnar aðallega að sýna hlutföll fóðurefnanna. Rochmann kallar þetta dagfóður fyrir fullorðinn silfurref, en tekið skal fram, að venjulega þurfa fullorðin dýr ekki svona mikið fóður. Rochmann lætur þess getið, að hann ætlist til að læður fái aðeins % hluta venjulegs fóðurskammts síðustu 6 dagana fyrir got. Seint á árinu sem leið, kom út skýrsla fyrir tilraunabú Norðmanna í refarækt árin 1934—1939. í skýrslu þessari eru meðal annars niðurstöður nokkurra tilrauna með htjólk, refaost (magerost) og ostefni. Ein tilraunin var, að minnka kjötið um 60% og nota refaost í staðinn. Tilraun þessi stóð eitt ár, og þar sem árangur hennar var á allan hátt mjög góður, læt ég fylgja hér fóðurskrá tímabilsins. (Tölurnar eru grömm) 11/10 til 2 vikum 20/7-15/8 16/8-10/10 eftir got Kjöt 50 60 70 Refaostur ... 45 55 70 Grautur 120 160 150 Nýmjólk .... 55 60 60 Fiskur 80 100 120 Bein 15 15 15 Grænmeti . .. 15 15 15 Fita 5 7 10 Lýsi 3 3 3 Fóðurblandan var notuð þannig áfram í sömu hlutföllum. Athugavert er, að fita er notuð í fóðr- inu, og á það helzt að vera góð dýrafita. Þar sem osturinn er svo að segja fitulaus, þarf að bæta þessa vöntun upp með ein- hverri góðri, ódýrri fitu. Athugavert er, að þrá fita er óholl dýrunum. Ég vona, að þessar fóðurtöflur geti orðið refaeigendum nokkur leiðarvísir til að setja saman hentugar fóðurblöndur fyrir refabú sín. Það þarf varla að taka fram, að ekki er hægt að minnka kjötið og láta t. d. meiri graut koma í staðinn, því við það truflast næringarefna hlutföll fóðurs- ins, en það er hægt að minnka kjötið og láta ost koma í staðinn, eins og töflurnar benda til, sé það gert í þeim hlutföllum, að 60 gr. ostur komi fyrir 100 gr. kjöt, eins og áður er sagt. Fiskur inniheldur þýð- ingarmikil næringarefni, en kemur þó að- allega í kjöts stað. Rochmann ræður ekki til að fara hærra með hann en töflurnar sýna. Kristinn P. Briem

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.