Freyr - 01.08.1941, Page 9
FRE YR
119
megi bæta þau. Og munum það, að það
eru kýrnar, sem mestum afurðum skila,
sem gefið hafa mesta hreina arðinn í
búin.
Eins og sést á því, hve kúm fjölgaði
mikið hjá þessum bónda, varð hann að
ala upp mikið af kálfum og ól upp tals-
vert meira en tölurnar benda til, því hann
hefir á þessum árum lógað mörgum kúm,
sem ekki reyndust vel. Þó ól hann aðeins
kálfa undan sínum beztu kúm og fékk sér
svo kálfa að, undan kúm, sem álitlegar
voru taldar. Þetta, að vanda val lífkálfa
og síðan að lóga því, sem ekki reyndist
vel, mun eiga drýgstan þátt í því, hve
góður árangur náðist síðustu árin. En því
má ekki gleyma, að til þess að vel fari,
þarf uppeldi kálfanna og síðan fóðrun og
öll meðferð kúnna, að vera í góðu lagi.
Ég hefi tekið þetta dæmi hér, til að
sýna, hve mikill árangur getur náðst á
fáum árum, ef einlægur vilji er til stað-
ar. En rétt er að taka það fram, að það
eru fleiri bændur hér, sem náð hafa mjög
góðum árangri, þótt ég láti nægja að
benda á þennan eina.
Það er margt, sem við viljum breyta og
bæta hjá kúnum okkar. Við viljum að
þær mjólki mikilli og feitri mjólk, séu vel
byggðar og hraustar og geti umsett mik-
ið af því fóðri, sem íslenzki bóndinn
framleiðir sjálfur. Þegar svo er athugað,
að starf nautgriparæktarfélaganna er á
bernskuskeiði hér á landi, er varla við því
að búast, að völ sé á mörgum gripum, sem
hafi alla hina óskuðu eiginleika í ríkum
mæli.
En ég efast ekki um, að í hinum iítt
ræktuðu íslenzku nautgripum, eru margir
góðir eiginleikar. Þessa eiginleika þarf að
reyna að sameina og rækta. Og þótt að á
næstu árum verði ekki hægt að tala um,
að hér séu gerðar kynbætur með naut-
gripi, eftir beztu fyrirmyndum, þá má ó-
efað ná miklum árangri með því einu, að
vanda vel valið á undaneldisgripunum. En
til þess að það val verði ekki mest af
handahófi, þarf að halda skýrslur, og það
réttar skýrslur um reynsluna á kúnum.
Á starfi nautgriparæktarfélaganna velt-
ur það, hvort verulegur árangur næst á
þessu sviði.
Mér virðist, að reynslan, sem fengizt
hefir þessi ár, sem S. N. E. er búið að
starfa, sýna ljóslega, að það gagn, sem
nautgriparæktarfélögin geta unnið, ef vel
er á haldið, verði seint ofmetið. Það er
fleira, sem vinnst en auknar afurðir og
fjárhagslegur hagnaður líðandi stundar.
Nú eru til hér skýrslur um reynslu og
ættir kúa. í þessum skýrslum má fá marg-
ar upplýsingar. Upplýsingar, sem síðar er
ef til vill hægt að hafa ómetanlegt gagn
af við kynbætur nautgripa. Það einkennir
mjög alla starfsemi nautgriparæktarfélag-
anna, hve seint árangurinn af starfinu
kemur skýrt í ljós, og hve langt fram í
tímann árangurinn sem næst hvert ár,
getur haft áhrif. Því segir það vel til um
félagslegan þroska manna og umbótavilja,
af hve óskiptum huga þeir starfa í þessum
félögum.
Kröfurnar, sem þessi félagsskapur ann-
ars gerir til meðlimanna eru ekki sérlega
miklar. Það, sem ríkast þarf að ganga
eftir er að skýrsluhaldið geti orðið rétt.
Og svo þurfa menn helzt að láta kýrnar
hafa þá aðstöðu, að þær geti sýnt, hvað í
þeim býr. Sérstaklega eru það góðu kýrn-
ar, sem þyrftu að geta sýnt sem bezta
mynd af eiginleikum sínum En til þess
að það megi verða, þarf fóðrun kúnna og
öll aðbúð að vera í samræmi við þær kröfur
sem gerðar eru til góðra gripa.
Eyvindur Jónsson.