Einherji


Einherji - 01.04.1992, Side 2

Einherji - 01.04.1992, Side 2
2 EINHERJI Apríl '92 Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna í Norðurlandi vestra. Upplag: 3600 eintök. Ritstjóri og ábyrgðarmaður : Gunnar Bragi Sveinsson. Skrifstofa að Suðurgötu 3 Sauðárkróki. Sími 36757, heimasími 35805. Aauglýsingar: Elva Björk Guðmundsdóttir. Setning og prentun: SÁST sf. Sauðárkróki. Einherji Ágæti lesandi. Nú hafa þau tíðindi gerst að nýr ritstjóri hefur verið ráðinn að Einherja, Örn Þórarins- son hefur ákveðið að láta af störfum eftir mikið og gott verk. Örn hefur stýrt blaðinu af miklum myndugleik og hefur það verið í senn pólitískt og fréttablað. Ekki verða gerðar mjög miklar breyt- ingar á útliti blaðsins en ætlun mín er að gera blaðið pólitískara en það hefur verið og verður leitast við að fá sem flesta til að tjá sig á síðum blaðsins. Svokölluð flokksblöð hafa átt erfitt uppdráttar undan- farin ár og er nú svo komið að þau eru farin að týna tölunni. Skemmst er að minnast þess að ekki alls fyrir löngu lagði Þjóðviljinn upp laupana. Ekki ætla ég að gráta það mjög mikið en verra þykir mér ef lífdagar Tímans verða ekki fleiri. Hvað sem segja má um Tímann þá hefur hann sinnt því hlutverki ágætlega að vera málgagn síns flokks, efnislega séð, hitt er þó annað mál að útbreiðsla blaðsins er í molum og lesendahópurinn afar þröngur, jafnvel hinir hörð- ustu flokksmenn hafa sagt upp áskrift að blaðinu. En nú virðast bjartari tímar framundan því Tíminn er aftur farinn að batna, nýtt útlit, markvissari fréttir og vandaðri. Nú fyrir skemmstu varð Tíminn 75 ára og vonandi verður þetta afmælisár Tímanum til framdráttar og vaxtar. Sú ríkisstjórn sem nú er við stjórnvölinn er þannig mönnuð að hroll setur að landsbyggðarfólki við hugsunina eina, enda hefur það komið í ljós að hún er fjandsamleg flestu því sem getur eflt byggð í landinu. Aldraðir og barnafólk munu varla minnast þessarar ríkisstjórnar með miklum hlýhug eftir þær árásir sem hún hefur gert á velferðarkerfið með skatta- og verðlagshækkunum auk niður- skurðar. Það hlýtur að vera ósk okkar allra að viljum lifa í sem bestu þjóðfélagi þar sem jafnræði ríkir og allir njóta sömu lífskjara. Til að svo megi verða verðum við að verja okkur sjálf með því að láta skoðanir okkar í ljós og reyna þannig að ná sem flestra eyrum. Því eru blöð eins og Einherji tilvalinn staður til skoðanaskipta og kynningar á mikilvægum málum sem snerta okkur öll. Einherji hefur staðið vörð um stefnu Framsóknarflokksins og mun gera það áfram. Einherji er blað frjálslynds félagshyggjufólks. Það er von mín að sem flestir eigi eftir að viðra hin ýmsu málefni á síðum blaðsins. Gunnar Bragi Sveinsson. TILVALIÐ TIL FERMINGARGJAFA! SIEMENS sterió útworpsklukka aðeins kr. 3660 11 WDULUX skrifborðslampi aðeins kr. 3575 @ rafsjá hf Sæmundargötu 1 Sauðárkróki OPIÐ LAUGARDAGA 10-12 ör 0<9 FRAMSÓKNARMENN Framsóknarmenn í sveitar- stjórnum á Norðurlandi vestra og í nefndum á vegum þeirra Fundur verður haldinn í Framsóknarhúsinu Suðurgötu 3 Sauðárkróki miðvikudaginn 8. apríl kl. 20.30 Fundarefni: Málefni sveitarfélaga og samskipti ríkis- og sveitarfélaga Á fundinn koma þingmennirnir Guðmundur Bjarnason og Jón Kristjánsson auk þingmanna kjördæmisins Þingflokkur framsóknarmanna STEINSÖGUN TÖKUMAÐ OKKUR STEINSÖGUN OG KJARNABORUN GERUM TILBOÐ í VERK HAFIÐ SAMBAND VIÐ ERUM BESTIR Aðalsteinn ísfjörð Sími 96-41541 Stefán A. Steingrímsson Sími 96-41951 Einherji kemur næst út 28. apríl

x

Einherji

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.