Einherji - 01.04.1992, Side 6
6
EINHERJI
Apríl '92
Fundur á Sigluftrði
um S.A.A.
Verslun Á.T.V.R. á Sauöárkróki.
Miðvikudaginn 11. mars
1992 var haldinn fundur á
Hótpl Höfn á Siglufirði af
SÁÁ þar sem Þórarinn
Tyrfingsson læknir og Jóhann
Örn Héðinsson sögðu frá
starfsemi samtakanna og
lýstu árangri af baráttu gegn
áfengisdrykkju. Fundurinn
var mjög fjölmennur og urðu
nokkrar umræður auk þess
sem frummælendur svöruðu
ótal fyrirspurnum. Á sama
degi stóðu útvarps- og
sjónvarpsstöðvar landsins að
svonefndum Heilbrigðisdegi
Ijósvakamiðlana samkvæmt
tilmælum Áfengisvarnaráðs,
Landssambands gegn áfengis-
bölinu, Vímulausrar æsku og
foreldrasamtaka. Viðfangs-
ejni dagsins í ár var nefnt,
Áfengi og þjóðfélag. Á
þessum degi voru ljósvaka-
miðlarnir að upplýsa lands-
menn um ýmsar hliðar
áfengismála og áhrif áfengis-
neyslu á íslenskt þjóðfélag og
þegna þess. Á sama tíma
kom út skýrsla sem Hagfræði-
stofnun Háskólans hafðigert
að frumkvæði Landssambands-
ins gegn áfengisbölinu og var
kynnt blaðamönnum. Þar
kom fram að kostnaður
þjóðfélagsins vegna áfengis-
neyslu er um 6 milljarðar
króna á ári að lágmarki á
verðlagi ársins 1991. Til
viðmiðunar kostar sömu
upphæð að reka allar
hitaveitur landsins.
Tekjur rikissjóðs af áfengis-
sölu þ.e. hagnaður Á.T.V.R.
og skatttekjur ríkissjóðs
hverfa þar með upp í
kostnaðinn. Beinn kostnaður
sem einstaklingar greiða
sjálfir er þama ekki meðtalinn
og fjölmargir opinberir kostn-
aðarliðir eru vantaldir eða
ótaldir með öllu. Skýrslan
leiðir m.a. í ljós að þrátt fyrir
minni áfengisneyslu Islend-
inga en grannþjóðanna eru
áfengismeðferðarrými hér samt
tvisvar til þrisvar sinnum
fleiri og alltaf fullsetin.
Rekstur meðferðarstofnana
(285 rúm) og sjúkrahús-
kostnaður tengdur áfengis-
drykkju erum 1200 milljónir
kr. á ári.
Það var Landssambandið
gegn áfengisbölinu sem fékk
því framgengt eftir langa
baráttu að reynt vrði að gera
úttekt á kostnaði samfélagsins
vegna áfengisneyslunnar. Lands-
sambandið og Hagfræði-
stofnun lögðu frá upphafi þá
línu að reynt yrði að fá sem
raunsannasta mynd af kostnað-
inum og fara með fullri gát
varðandi allar áætlanir. Við
vinnu skýrslunnar kom ótví-
rætt í ljós að allt of víða
vantaði tölulegar upplýsingar
og kom á óvart í okkar
tæknivædda þjóðfélagi talna-
flóðsins hve örðugt reyndist
að fá kostnaðartölur sem
vörðuðu áfengið, ýmist sem
beinan orsakavald eða sam-
verkandi. Það kom m.a. í ljós
að tilraunir Hagfræðistofnunar
til að afla upplýsinga frá
stórfyrirtækjum um áfengis-
drykkju starfsmanna reyndust
með öllu árangurslausar t.d.
launagreiðslur á "veikinda-
dögum” sökum drykkju og
launagreiðslur starfsmanna
vegna fjarveru á meðferðar-
stofnunum. Fyrirtækin hafa
annaðhvort ekki tekið þennan
kostnað saman ellegar að
þau vilja ekki láta þessar
tölur af hendi. Þetta virðist
vera feimnismál, en gott
dæmi um kostnað sem ekki
er með í kostnaðartölum
skýrslunnar, þar sem áhersla
var lögð á að taka einungis
tillit til kostnaðar sem unnt
var að sannreyna.
Kostnaður vegna áfengis-
mála unglinga og barna-
verndarmála er annað dæmi.
Enga huglæga þætti var
heldur reynt að meta til fjár.
Árið 1988 skráir Hagstofan
39 dauðsföll af völdum
áfengisneyslu, sinni eigin eða
annarra (33 karla og 6
kvenna). Helstu orsakir eru:
drykkjusturlun, áfengissýki,
áfengiseitrun, skorpulifur,
slys, sjálfsvíg og manndráp.
Af þessum 39 voru 4 undir
tvítugsaldri og 8 á aldrinum
20-30 ára. En allir þessir 39
manns voru undir sjötugu.
Könnunin náði til áranna
1985 1989. Tölurum kostnað
og tekjur ár hvert voru
reiknaðar til verðlags 1991 til
að auðvelda samanburð milli
ára. Þannig reiknað voru
tekjurnar frá 5.3 til 6.9
milljarðar óbeinn kostnaður.
Læknishjálp er stærsti
liður beina kostnaðarins, um
1.2 milljarðar kr. þarafhefur
rekstur meðferðarstofnana
kostað sem svarar 510 til 540
milljónir kr. á ári en
kostnaður vegna legu á
almennum sjúkrahúsum er
vægt áætlaður um 670
milljónir á ári. Félagsleg
Sverrir Sveinsson frá Siglu-
firði skrifar.
aðstoð til drykkjumanna eða
aðstandenda þeirra er um
410 milljónir kr. Kostnaður
vegna löggæslu, réttargæslu
og fangelsa er talinn í
kringum 420 til 520 milljónir
á ári. Þá er miðað við að
aðeins 20% löggæslukostnaðar
og 10% af kostnaði dómstóla
og fangelsa tengist áfengis-
neyslu. Hinn óbeini kostnaður,
3,9 milljarðar á ári, er
reiknaður sem framleiðslu-
tap vegna áfengisneyslu. Þar
af er framleiðslutap vegna
dauðsfalla áætlað um 960
milljónir, vegna ótímabærrar
örorku um 715 milljónir og
vegna meðferðar um 255
milljónir kr. á ári.
Á fundinum á Siglufirði
lögðu frummælendur áherslu
á að ná betra samstarfi og
auka fræðslu kennara og
skólayfirvalda því niður-
stöður athugana meðferðar-
stofnana sýna, að áfengis-
neysla svo og önnur vímu-
efnaneysla færist neðar í
aldri. Því væri brýnt að ná
samstarfi við kennara og
uppalendur barna. Einnig
þurfi að ná betra samstarfi
við heilsugæsluna á hverjum
stað og sagðist Þórarinn
myndi halda fund með
starfsfólki heilsugæslunnar á
Siglufirði næsta dag.
Landsbyggðarþjónusta SÁÁ
hélt námskeið 1. viku í mars á
Siglufirði fyrir einstaklinga
og fjölskyldur þeirra um
áfengisvandamál og stendur
Jóhann Orn fyrir þeim. Er
þetta liður í starfi samtakanna
að fara um landið og auka
þjónustu við landsbyggðar-
fólk. Var þetta fjölmennt
námskeið og á SÁÁ þakkir
skyldar fyrir að hafa komið
þessari landsbyggðarþjónustu á
þar sem víða hefur verið
lélegt atvinnuástand og óöryggi
hjá einstaklingum og fjöl-
skyldum, en ljóst er að þá er
fólki hættara við að leita
huggunar hjá Bakkusi.
Trúnaðarmenn SÁÁ á
Siglufirði eru Guðrún Árna-
dóttir Suðurgötu 59, sími:
96-71187 og Kjartan Einars-
son Hólavegi 39, sími: 96-
71178.
TIL FERMINGARGJAFA
Loðfóðraðir gallar 3 litir - Verð frá kr. 9-800
Sjónaukar frá kr. 2273
Topplyklasett frá kr. 3228 - Margar gerðir
FYRIR HEIMILIÐ OG VINNUSTAÐEVN
Fjölnota álstigar - 3 stærðir
Hárýstiþvottatæki - Loftpressur
"Rafstöð" gefur 12 og 220 W
Handryksugur
Verkfæri í úrvali
Gasgrillin komin aftur
Verð aðeins kr. 14.990
ÁBÆR - ESSO