Einherji - 01.05.1997, Page 7
EINHERJI
MAÍ1997
7
Nýjasta fyrirtæki
Blönduóss - Árvirkni ehf
Hið nýja fyrirtæki Ár-
virkni, er stofnað eftir
gjaldþrot Vélsmiðjunnar á
Blönduósi. Eftir tveggja
mánaða viðræður margra
aðila hefur loks tekist að
koma nýju fyrirtæki á kopp-
inn, en mörg minnstur af
fyrirtækjum höföu skotið upp
kollinum á þessum tíma.
Niðurstaða viðræðnanna varð
fyrirtækið Árvirkni ehf sem
er hlutafélag margra aðila.
„Þetta er búin að vera mikil
törn núna síðasta hálfan
mánuðinn, meðan á fæðingu
þessa fyrirtækis stóð,“ segir
Gestur Þórarinsson stjómandi
hins nýja fyrirtækis.
„Við munum að öllum
líkindum verða með 14 menn
í vinnu, en það hefur verið
þónokkuð að gera alveg frá
fyrsta degi og þó sérstaklega
hjá járnsmiðunum. Eg var
einmitt í dag að ráða
bifvélavikja og skrifstofu-
stúlku. Það nýjasta hjá okkur
er „lakkbarinn" sem Bílanaust
setti upp og munum við þjón-
usta, með lakk á alla bíla og
getur fólk nú komið og fengið
blandað eftir númeri. Það
verður einnig mikill styrkur
að fá hingað fyrirtækið Vélar
og þjónustu í samstarf með
okkur. Þá munum við getað
þjónustað bændur miklu betur
en áður og verðum við með
þjónustu út um sveitir. Við
verðum hér með góðan
varahlutalager og nýjar vélar
á staðnum“ segir Gestur Þór-
arinsson þegar Einheiji hitti
hann að máli á dögunum.
Gestur hefur um árabil verið
hitaveitustjóri Blönduósbæjar,
en hann tók sér ársleyfi frá
störfum til að koma fótum
undir hið nýja fyrirtæki.
Bræðurnir á Skriðulandi þeir Bjarni og Pétur ásamt framkvæmda-
stjóra Véla- og þjónustu Magnúsi Sigurgeirssyni.
Þau stóðu sig frábærlega. Myndin ertekin að lokinni frumsýningu af leikurunum Guðmundi Karli
Ellertssyni, Hafliða Brynjólfssyni, Degi Kristinssyni, Bryndísi Sveinsdóttur og Jóhanni Erni Arnarsyni
MIKILL ÁHUCI Á SÖGU
HEIMABYGGÐARINNAR
Um 1100 manns sóttu
sýningu Leikfélags Blöndu-
óss á leikverkinu Hús
Hillebrandts, eftir Ragnar
Arnalds og hefur það
hlotið mikið lof gagn-
rýnenda.
„Við erum öll mjög
ánægð með árangurinn
sem að þessu verki stóðu.
Þetta var mannmargt og
stórt verk, en þó sannar-
lega þess virði þó erfitt
væri.“ segir Sturla Þórðar-
son formaður Leikfélags
Blöndóss.
„Fólk hefur greinilega
áhuga á því þegar tekinn er
saga úr héraðinu. Við erum
Ragnari Arnalds þakklát
fyrir hans framlag og er
þetta einnig hvatning til
þeirra sem fást við skrifitir
og skoða sögu heima-
byggðirnnar. Það kom
okkur skemmtilega á óvart
hvað margt ungt fólk hafði
áhuga á verkinu og komu
jafnvel á tvær sýningar til
að glöggva sig á sögunni,
sumir höfðu m.a. lesið sig
til milli sýninga,“ segir
Sturla Þórðarson.
vt Jar
VINSÆLASTA MERKIÐ j adidas FATNAÐUR & SKÓR SkarflFlÍimjiaM SPORTVÖRUR- ÍDAG adidas li