Einherji - 01.06.1997, Side 1
4. TBL.
JUNI 1997
66. ARG.
■ Atvinnumálanefnd Sauðárkróks-
bæjar stendur fyrir vöru- og þjónustu-
sýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
dagana 9.-13. júlí. Sýningin er öllurn
fyrirtækjum opin og er því ekki
svæðisbundin þótt kjarninn séu skag-
firsk fyrirtæki og stofnanir. Áætla
sýningahaldarar að íjöldi gesta geti
orðið á bilinu 4 - 5000. Meðan á
sýningunni stendur verður boðið upp
á skemmtiatriði, tónlist, tískusýningar
og afþreyingu fyrir börn.
Alþýðusönghátíð verður dagana 27.-
29. júní en þar ber hæst konsert er
haldinn verður í Bóknámshúsi Fjöl-
brautarskólans kl. 14.00 laugardaginn
28. júní. Þar koma frarn m.a. Karla-
kórinn Heimir, Kirkjukór Sauðárkróks,
Álftagerðisbræður og einsöngvararnir
Jóhann Már Jóhannsson, Svava Berg-
lind Karlsdóttir, Þuríður Þorbergsdóttir
og Gerður Bollaóttir. Sama kvöld kl.
21.00 verður dagskrá er nefnist
Listaskáld bæjarins. Þessi dagskrá fjall-
ar um í tali og tónum um ýmsa lista-
menn sem sett hafa mark sitt á bæjar-
lífið á Króknum og er í samantekt Jóns
Orms Ormssonar.
Ráðstefna um Heilsu og Heilbrigða
lífshætti verður í Bóknámshúsinu hel-
gina 12.-13. júlí en að ráðstefnuni stan-
da Afmælisnefnd Sauðárkróks Heilsu-
gæslustöðin á Sauðárkróki, Sjúkrahús
Skagfirðinga, Náttúrulækningafélag
íslands og Heilbrigðisráðuneytið. Til-
gangur ráðstefnunar er að fjalla um
hvernig heilbrigðir lífshættir geta eflt
bæði andlega og líkamiega heilsu
manna. Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða 14 talsins og koma úr hópi heil-
brigðisstétta, fólki úr íþróttaheiminum
ásamt hagfræðingi og heimspekingi.
Viðfangsefni ráðstefnunar spannar því
breitt svið og er það von aðstandanda
að hún höfði til sem flestra sem áhuga
hafa á betri heilsu.
Myndlistarsýning Ástu Pálsdóttur
stendur yfir í Safnahúsi Skagfirðinga frá
5.-20. júlí. Um er að ræða gamlar
minningar frá Króknum m.a. vatnslita-
myndir af eftirminnilegu fólki og
húsum.
Þá verður þjóðminjadagur í Byggða-
safninu í Glaumbæ þann 6. júlí. Hér
hefúr aðeins verið talið upp lítið brot
af því er verður á dagskrá nú í sumar
á afmælisári Sauðárkróksbæjar, af
mörgu er að taka og geta greinilega
flestir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Bum tólfþúsund tonn af síld voru
brædd hjá SR mjöli á Siglufirði í vor.
Það er rétt innan við hundraðþúsund
mál sé mælt með gamla laginu.
Einhverntíman hefði það talist lélegt
síldarsumar „í höfuðborg síldarinnar".
Jón Sigurðsson GK og Víkingur AK
lönduðu nokkuð af síld til söltunar hjá
Róaldsstöðinni fornum, þar sem nú er
Síldarminjasafnið.
Sú sfld verður söltuð í sumar til
skemmtunar og fróðleiks fyrir gesti
safnsins. Slíkar söltunarsýningar verða á
laugardögum og sunnudögum kl. 15 frá
5. júlí til 10. ágúst.
Þessar vinnusýningar hafa notið
mikilla vinsælda enda er mikið fjör á
planinu eins og oft áður fyrr, sfldarlögin
spiluð og sungin að lokinni vinnu og
dans stiginn á bryggjunni. Hópar geta
pantað minniháttar vinnusýningar með
skömmum fyrirvara. Safnið í Róalds-
brakka er opið kl. 10 - 18 alla daga í
sumar.
Síldarævintýrið sjálft útihátíðin um
verslunarmannahelgina er í fullunt
undirbúningi og er ekki annað séð en
hún verði haldin með pomp og prakt í
sjöunda sinn.
Ferðamálasamtök Siglufjarðar ásamt
nokkrum áhugamönnum hafa að
undanförnu átt í viðræðum við
bæjaryfirvöld um að taka hátíðina í sýnar
hendur verður það þá væntanlega í fyrsta
sinn sem „bærinn“ sér ekki um skipulag
og framkvæmd Sfldarævintýrisins.
BÆNDUR
ATHUGID!
Það ei gæðamunur
á plasti!
Vandið valið!
Hafið samband við
umboðs- og dreifingaraðila,
PLAST & GARN afgreitt
á eftirtöldum stöðum:
Benedikt Ragnarsson,
Barkarstöðum, V-Hún.
Kristján Sigfússon
Húnastöðum, A- Hún.
Vélaval, Varmahlíð Skagaf.
Árvirkni (V&Þ) Blönduósi
Heytætlur
...mest seldu dráttar-
vélarnar á íslandi
VELAR&
ÞJÓNUSTAhf
S: 587 6500
McHALE Pökkunarvélar Verð frá 778.000
KRONE
Rúllubindivél Verðfrá 1.002.000
STOLL
Heyvinnuvélar
Rakstrarvélar
Verðlrá 179.000
Heytætlur
Verðtrá 294.000
ÍRakstrarvélar ■