Einherji - 01.06.1997, Qupperneq 4
4
EINHERJI
JÚNÍ 1997
Plastiðnaður á Hvammstanga
Séð inn í plastverksmiðju hjá Pálma ehf. á Hvammstanga.
Pálmi ehf. er vax-
andi fyrirtæki á
Hvammstanga. Þar eru
framleiddir plastpok-
ar í nánast öllum
stærðum og gerðum,
allt frá pokum fyrir
bland í poka að sorp-
pokum og flest þar á
milli. Einnig fram-
leiðir Pálmi plastarkir
í ýmsum stærðum til
pökkunar þar á meðal
rifgataðar arkir fyrir
fískiðnaðinn.
Heimir undirbýr
Groenlanclsferð
Starfsemi Karlakórsins Heimis hefur
verið æði mikil nú síðasta starfsárið.
Heimismenn hafa sungið víða um land í
vetur og vor og ávallt sungið fyrir fullu
húsi.
Síðasta ferð kórsins var í norðanhret-
inu sem kom yfir landið nú fyrir skemm-
stu, er þeir heimsóttu Austfirði. Þeir
héldu tónleika niður á fjörðunum og
Egilsstöðum en þar urðu þeir að halda
aukatónleika þar sem þeir fylltu kirkjuna
á Egilsstöðum tvisvar sama laugardags-
kvöldið.
Nú er kórinn að undirbúa söngferð til
Grænlands en sú ferð verður farin 14.
ágúst og mun hún standa í fimm daga.
Verður komið til fjögurra byggðarlaga og
mun kórinn halda fjóra tónleika í þeim
byggðum. Fyrst verður flogið til Narsa-
suak en þaðan verður flogið með minni
flugvélum til þeirra staða sem kórinn
mun halda tónleika. Menningarsamtök
Nord vest, sem eru samtök íslendinga
Færeyinga og Grænlendinga standa að
ferðinni en fararstjóri verður Árni
Johnsen.
Að sögn Þorvaldur G. Óskarssonar for-
manns karlakórsins er kórinn í mjög
góðu formi og þakkar hann það ekki síst
mikilli æfingu kórsins og þeim skemmti-
legu verkefnum er kórinn hefur staðið
fyrir undanfarin misseri. Ber þar hæst
ferðin til Kanada síðasta sumar sem er
gott veganesti fyrir væntanlega Græn-
landsferð sem án efa verður viðburðar-
rík.
„Ég hef að mestu leiti
staðið í þessu einn með
hjálp eiginkonunnar Guð-
rúnar Jóhannsdóttur," segir
Hreinn Halldórsson eig-
andi Pálma. „Við liófum
starfsemina 1992, fyrst sem
aukavinnu og hobbý en nú
sem aðalstarf. Við byrjuð-
um starfsemina í 40m2 hús-
næði en stækkuðum það
um 20m2 nú í haust. Ef
heldur áfram sem horfir,
munum við stækka hús-
næðið um helming að ári.
Aðal markaður framleiðsl-
unnar er fyrir sjávarútveg
og landbúnað á Norður-
landi vestra en við höfum
verið að efla markaðsstarf
víðar um land.“
Pálmi ehf byrjaði nýver-
ið samstarf við Iðju,
svæðisskrifstofu um mál-
efni fatlaðra á Hvamms-
tanga sem pakkar öllum
sorppokum sem seldar eru
í neytendapakkningum til
verslana og söluskála.
Að sögn forráðamanna
Iðju er þetta ágætt verkefni
fyrir þeirra skjólstæðinga
sem erfitt eiga með að fá
hentug verkefni.
„Þetta hefur farið nokk-
uð vel af stað,“ segir
Hreinn. „Flestir verslunar-
menn hafa tekið þessu
mjög vinsamlaga. Samt
hefur það valdið von-
brigðum að aðrir hafa ekki
séð sér fært að leggja þessu
lið með sölu á þessari vöm.
Fyrir mig er þetta ekki neitt
sem skiptir máli í veltu en
ég hef eitt töluverðum tíma
í þetta og finn ánægju í því
að getað gert þessu fólki
gagn.“
af utanhús-
málningu
Þakmálning
og fúavarnarefni
frá Málningu hf.
I
=i
B)
VERSLUNIN HEGRI
Sæmundargötu 7
Sauðárkróki