Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.12.1937, Blaðsíða 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.12.1937, Blaðsíða 10
62 T í M A R I T V. F. í. 19 3 7 kennslustörf á vetrum, myndu þcir geía gefið sig við þessum rannsóknum á sumrin. Þá kvað hann nauðsynlegt að ríkisstjórnin léti nota hor þann seni landið ætti, til rannsókna einnig. Að lokum kvaðsl ræðumaður mundi hera fram tillögu þess efnis, að kosin verði nefnd innan Verk- fræðingafélagsins til að gera ályktanir um þetta efni. Árni Pálsson. Rað um leyfi til að fá að gera nokkrar fyrirspurnir, áður en H. S. fengi orðið til að svara þeim, er talað hefðu á síðasta fundi. í fyrsta lagi gerði liann þá fyrirspurn til fyrir- lesarans, hvort talin liafi verið með öll verzlunar- hús, þegar hitaþörf bæjarins hafi verið reiknuð úl. Kvað hann fróðlegt að vita, hve mikill hluti hit- ans færi til verzlunar- og skrifstofubygginga, lik- lega væru það 10—20%. Ef heita vatnið að Reykj- um revnist af skornum skammti, er eðlilegt að láta verzlunarhús fyrst um sinn sitja á hakanum, en láta ihúðir sitja að hitanum og ])að því frem- ur, sem vafalaust verður hægt að sjá verzlunar- liúsum fyrir hita á annan hátt, t. d. hita þau ineð raforku, þar eð ganga má út frá þvi sem vissu, að hin nýja Ljósafoss-stöð heri sig fljótlega það vel, að þar verði bætt við þriðju vélasamsiæðu og jafnvel hægt að ráðast í enn meiri stækkun, áður en langt um líður. Þá verður hægt að láta verzlunarhúsum næga raforku i té til hitunar við það vægu verði, að raforkan geti keppl yið kol. í öðru lagi gat ræðumaður þess, að i skýrslunni er gengið út frá miðlun frá nóttu til dags, og spurð- ist fyrir i samhandi við það, hvort rannsakaðir liefðu verið möguleikar á miðlun til fleiri daga í einu, t. d. þriggja, fjögurra daga eða þar vfir. Það er algengt, að hörð frost, t. d. 10 st. og þar yfir, standa aðeins fáa daga í einu og að á undan eru venju- lega gengnir nokkrir frostdagar með lægra frosti, sem oft er ekki meira en það, að nokkuð heitt vatn er aflögu, er safna mætti þá saman og nota þcgar frostið er orðið það mikið, að heita vatnið, sem fyrir hendi er, nægir ekki til að hita bæinn. Geri þá ráð fyrir, að hvenær sem hitastig að vetri til fer niður í 0°, sé þess vandlega gætt, að taka til að safna og geyma það vatn, sem afgangs er og ef þá jafnframt er tekin til notkunar öll næturraf- orka frá Ljósafossi og auk þess umframorka, sem til er á daginn, þá virðist á þann hátt mega safna á 2—3 dögum álitlegum hilaforða, er miðla mætti af í nokkra daga, er frost verður það mikið, að heita vatnið 160 lítr./sek. nægir ekki. Ef miðla þarf t. d. 30 lítr. í 14 tíma á sólarhring í 3—4 sólar- hringa, þyrfti til þess 5—6000 tonna geyma. Oft eru engin vandkvæði á því, að safna þeim vatnsforða saman á einum sólarhring og ef safnað er í tvo til þrjá sólarhringa, jafnframt með notkun raforku, má fá margfalt meiri vatnsforða; en þá þarf líka stærri vatnsgeyma. Ódýrir og liagkvæmir gevmar til vatnsmiðlunar, eru því hér eilt hið þýðingar- mesta atriði, því að með þeim má lil stórra muna auka uotagildi vatnsins. Viðvíkjandi borunum gjörði ræðumaður nokkr- ar fyrirspurnir. Kvaðst hann ganga út frá að hit- i/m hafi verið mældur i borholunum i mismunandi dýpi, enda þótt vatn streymi ekki upp. Benti hann á, að á jarðhitasvæðum væru oft jarðlög, sem hefðu svo mikinn liita, að til greina kæmi að binda hann, t. d. með því að veita vatni inn á svæðið og nota hita þessara jarðlaga til að hita vatnið upp. Jarð- hilasvæðið væri þá fyrst fullnotað, þegar auk þess heita vatns, sem fengizt hefir með fullnaðarhor- unuin, hefir verið bundinn liiti heilra jarðlaga og loks þegar einnig hefir verið notuð orka þeirrar gufu, sem þar kann að vera. Það má vel húast við að vatnið, sem úr borhol- unum kemur sé yfirborðsvatn og má vera, að það sé að miklu leyti komið frá því geografiska að- rennslissvæði og þeim nálægustu svæðum, sem að því liggja. Ef svo er, má búast við að aðeins fáisl viss fastur lítrafjöldi úr borholunum, hversu marg- ar sem þær verða og hversu mikill sem jarðhit- inn á sjálfu jarðhitasvæðinu kann að vera. Ef þá er þar um þurrar, lieilar borholur að ræða, virð- ist óneitanlega liggja nærri að binda hita jarðlaga, með þvi að veila vatni inn á þau. Kvað ræðumaður fróðlegt að vita, hvort mæling- ar á jarðhita hafi verið gerðar í holunum og ut- an þeirra á víð og dreif um jarðhitasvæðið, svo ganga megi úr skugga um, hversu mikið hitamagn er fyrir hendi, bæði í heitu vatni og lieitum jarð- lögum, þvi þegar virkja á jarðhita, verður það eitt af grundvallaratriðunum, að fá sem fyllsta vit- neskju um hitamagnið, sem fvrir hendi er. Hagnýting frárennslisvatnsins er mikið viðfangs- efni, sem vonandi lekst með tímanum að leysa. Flesta daga ársins myndi meiri hluti hitaorkunnar vera ónotaður, því við 0° hita þarf aðeins tæpan helming þess vatns, sem nægir öllum hænum í 10° frosti; verður þá flesta daga liðugur helmingur allrar orku ónotuð og mundi það jafnvel svara til nokkurra tuga þúsunda kílówatta. Það væri æski- legt, að geta notað hitann, t. d. í iðnaði, og þá náð honum heint úr heita vatninu; slíkan iðnað er nú ef til vill ekki hlaupið að því að finna og væri þá hugsanlegt að hrevta hitanum í annað orku- form, sem auðveldara er að selja, t. d. raforku, og þó að á þann hátt tækist ekki að nýta nema litið brot af hitaorkunni, gæti þá orðið um fleiri þúsund kílówött að ræða. Getur slik stöð lagt mun meiri orku til en þá, sem þarf til að knýja dælur þrýstivatnsleiðslu. Hún getur starfað mestallan árs- ins hring, nema rétt aðeins 10—20 frostmestu dag- ana. Má ná ágætri hagnýtingu með því að láta hana

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.